Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Page 159
ÞINGTIÐINDI
141
Fundur settur kl. 1.30. Fundargjörningur frá
síðasta fundi lesinn og saraþyktur.
Fjármálanefndarálit. Guðmann Levy lagði
fram álit þeirrar nefndar og lagði til að það
væri samþykt. Álitið var í tveimur liðum og
hljóðar sem fylgir.
Álit Fjármálanefndar
1. Fjárhagsskýrslur Embættismanna.
Nefndin hefir farið yfir fjárhagsskýrslur em-
bættismanna félagsins og leggur tii að þær séu
samþyktar eins og þær liggja fyrir.
2. Tillaga G. J. Oleson um að gefa $100,
dollara til United Nation Children’s fund.
Nefndin hefir athugað þetta mál, og leggur
til að í staðin fyrir 100 dollara komi 50 doll-
arar.
3. Þingnefndarálit í kennslumálum. —
(1) Nefndin leggur til, að í stað orðanna —
“og að félagið borgi ferðakostnað eins kennara
frá hverri deild” í annari grein þingnefndar-
álitsins, komi: “og að félagið borgi fargjald
eins kennara frá hverri deild”.
(2) í I'riðja lið þess sama álits komi í stað
orðanna “og ef hún í samráði við kennara álít-
ur þær ákjósanlegar fyrir íslenzku skólana, að
útvega þá áminstar plötur til afnota í öllum
skólum”, komi "og ef hún í samráði við kenn-
ara álítur þær ákjósanlegar fyrir íslenzku skól-
ana, þá heimilar þingið stjórnarnefndinni að
kaupa áminstar plötur til afnota í öllum skól-
um”.
Fcbr. 22. 1950
Guðmann Levy
J. B. Johnson
E. Magnússon
Báðir þessir liðir voru samþyktir og svo
nefndarálit í heild samþykt.
Háskólamálið. Gunnar Sæmundsson var
framsögumaður þingnefndarinnar í því máli
°g var álit nefndarinnar í þremur liðum.
1. Nefndin þakkar fjársöfnunar nefndinni
fyrir framkvæmd sína í fjársöfnun fyrir is-
lenzka kennarastólinn.
2. Nefndin hefir yfirfarið reglur og skipu-
lags fyrirkomulag háskólastóls nefndarinnar
°g hefir ekkert að athuga við þær eða það,
og mælum með áframhaldandi starfi, undir
fyrirkomulagi fjársöfnunar formannsins.
3. Nefndin óskar eftir að þetta fjársöfnunar-
fyrirkomulag verði skýrt fyrir íslendingum í
vikublöðunum Heimskringlu og Lögbergi.
Gunnar Sæmundsson
Kristín Pálsson
E. Magnússon
Einar Sigurðsson
T. J. Gíslason
1 liður samþyktur, 2 liður sömuleiðis. f
sambandi við 3 liðinn bar Walter Lindal dóm-
ari fram þau tilmæli til þingnefndarinnar að
hún bætti The Icelandic Canadian við, á
eftir orðinu Heimskringlu og féllst nefndin á
það — liðurinn svo samþyktur og nefndaráilt
í heild samþykt.
Námsstyrksmálið — Séra Jóhann Friðriksson
lagði fram álit þingnefndarinnar í því máli
sem hljóðar þannig:
Þar sem Þjóðræknisfélagið hefir í liðinni
tíð styrkt íslenzkt námsfólk á sviði sönglistar-
innar, með ágætum árangri og sér til sóma, er
nefndin því eindregið mcðmælt, að félagið
haldi áfram slíkri styrktarstarfsemi eftir föng-
um.
Nefndin leggur því til, að fimm manna
milliþinganefnd sé kosin í málið er kynni sér
ástæður og áhugaefni þess fólks, sem nefnt
hefir verið í þessu sambandi hér á jiinginu, og
vinni í sainráði við væntanlega stjórnarnefnd
að framkvæmdum í þessu máli, eftir því sem
ástæður leyfa.
J. Friðriksson
Richard Beck
E. H. Fafnis
Nefndarálitið var samþykt umræðulaust, og
í millijnnganefndina í málinu voru kosnir:
Trausti fsfeld, Mrs. P. S. Pálsson, Jónbjörn
Gíslason, Ingibjörg Jónsson og Mrs. H. Daniels-
son.
Minjasafnsmál — Framsögumaður Dr. Beck
Skjalavörður upplýsir, að minjasafnið sé geymt
í sérstökum skáp í Jóns Bjarnasonar skóla-
byggingunni og að ekkert muni hafa bæst við
safnið á síðastliðnu ári.
Þar sem æskilegt er, að þessu máli sé haldið
vakandi vill nefndin hvetja fólk til að senda