Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 26
8
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
vortíma. Enn er ógetið útgáfu Þor-
kels Merkir íslendingar, ævisögur
og minningargreinar, er fyrst komu
út 1947; alls hafa komið sex bindi,
gefin út af Bókfellsútgáfunni; margt
af þessu eru ævisögur merkismanna
úr Andvara, sem annars mundu vera
gleymdar og grafnar í tímaritinu.
Virtist mér fara vel á því að fylla
eitt bindi af ævisögum eftir Þorkel
sjálfan, en hann hefur skrifað um
Einar Benediktsson, Tryggva Þór-
hallsson, Dr. Rögnvald Pétursson,
Magnús Stephensen, Guðmund Frið-
jónsson, Unni Benediktsdóttur, og
mun þá ekki allt upp talið. Árið
1955 var Þorkell einn af stofnendum
Almenna bókfélagsins og var kosinn
formaður ráðs þess vorið 1959. Hann
hafði líka stundum verið í Mennta-
málaráði. Enn fremur var hann í út-
gáfuráði Nordisk Kuliurleksikon, er
gefið var út í Kaupmannahöfn.
Hann varð prófessor í sögu við Há-
skólann 1944. Loks var hann kosinn
rektor Háskólans eftir Alexander
Jóhannesson haustið 1954 til þriggja
ára, endurkosinn 1957 og loks 1960.
Sýnir þetta vel traust manna á hon-
um, enda veit ég ekki til þess að
hann hafi nokkurn tíma brugðizt
neinum. Um störf hans fyrir Háskól-
ann er mér lítt kunnugt, þó vissi
ég að Háskólinn átti í sumar kvik-
myndahús í byggingu. Enn fremur
var rektor boðið á háskólahátíðir í
Noregi í sumar og skildist mér á
honum, að slík reynsla mundi koma
sér vel næsta vor, er íslenzki Há-
skólinn ætti hálfrar aldar afmæli.
Var hann með hugann við það, er
ég hitti hann síðast.
Þorkell var kvæntur Hrefnu
Bergsdóttur frá Ökrum á Mýrum.
Þau giftust sumarið 1935. Var hún
manni sínum mjög hjálpleg í starfi
hans og enginn eftirbátur um gest-
risni, höfðingskap og híbýlaprýði
utan húss og innan, eins og gestir
þeirra geta borið. Þau hjónin áttu
ekki barn, en höfðu tekið telpu til
fósturs. Mjög á þessi kona nú um
sárt að binda að missa mann sinn
svo óvænt og langt um aldur fram,
þótt það eitt sé til bóta að bezt sé
bráðkvöddum að fara. Er vonandi,
að vinir Þorkels muni henni nú
drengskap hennar við bónda sinn
og reyni að hjálpa henni í hvívetna
yfir þann örðuga hjalla, er hún hef-
ur nú lagt á.
The Johns Hopkins University,
Siefán Einarsson
Rit Þorkels eru skráð í Árbók
Háskóla íslands 1946-47 og 1951-52.