Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 117
ÞINGTÍÐINDI
99
að ein eða tvær deildir hafa mikinn
áhuga á því að kenna börnum og ungl-
ingum þjóðdansana íslenzku.
3. Að skipuð verði tveggja manna
milliþinganefnd, sem hafi það með hönd-
um að hjálpa deildum, ef þær óska þess,
til þess að setja á stofn eða halda við
barnaflokkum, bæði söngflokkum og ís-
lenzkum lestrarflokkum.
Hólmfríður Daníelsson
Kristín Thorsteinsson
Hrund Skúlason
Louisa Gíslason
Margrét Goodman.
Flutningskona lagði til, að nefndar-
álitið yrði borið upp lið fyrir lið. Var
svo gert, og hlutu allir liðirnir stuðn-
ing og samþykki. Varðandi þriðja lið
skipaði forseti þau frú Hólmfríði Dan-
íelsson og próf. Harald Bessason í nefnd.
Að því búnu var fundi frestað þangað
til kl. 2 e. h.
Sjötti fundur
hófst kl. 2 e. h. miðvikud. 24. febrúar.
Lesin var fundargjörð síðasta fundar og
hún samþykkt.
Guðmann Levy flutti nefndarálit fjár-
málanefndar.
Nefndarálit fjármálanefndar
1. Nefndin leggur til, að skýrslur emb-
ættismanna séu samþykktar eins og þær
liggja fyrir.
2. Nefndin leggur til að styrkja Skóg-
ræktarfélag íslands með 1500.00 kr.
framlagi, þegar peningar eru fyrir hendi
á banka okkar í Reykjavík.
3. Nefndin leggur til að styrkja blað-
ið „Lögberg-Heimskringla“ með 500.00
dala framlagi árið 1960.
4. Nefndin leggur til, að greiddur verði
50.00 dala ferðakostnaður fyrir þingfull-
trúa þjóðræknisdeildarinnar „Ströndin“
í Vancouver.
Jón B. Johnson
Guðmann Levy
W. J. Lindal.
Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
álitið yrði borið undir atkvæði lið fyrir
lið. Það var samþykkt, og að lyktum
voru allir liðir samþykktir, svo og
nefndarálitið í heild.
Séra P. M. Pétursson flutti nefndar-
álit útbreiðslumálanefndar.
Nefndarálit útbreiðslumálanefndar
Nefndin leggur til:
1. Að þingið þakki forseta sínum, dr.
Richard Beck, hið mikla og óeigingjarna
starf, sem hann hefir unnið á árinu í
þágu útbreiðslumála félagsins.
2. Að þingið þakki meðlimum félags-
ins og öðrum, sem með myndasýningum,
ræðuhöldum eða á annan hátt hafa
stuðlað að því að útbreiða þekkingu á
íslenzkum málum og menningu á um-
liðnu ári.
3. Að þingið þakki öllum þeim, sem
á árinu hafa hjálpað börnum og ungl-
ingum til þess að læra íslenzka tungu
og til þess að læra íslenzk ljóð og söngva.
Enn fremur hvetur þingið deildir sínar
til þess að örva þessa viðleitni eftir
mætti. Einnig felur þingið væntanlegri
stjórnarnefnd að athuga möguleika á því
að efna til samkeppni meðal ungmenna
í söng og framsögn íslenzkra ljóða í
sambandi við ársþing Þjóðræknisfé-
lagsins.
4. Að þingið láti ánægju sína í ljósi
yfir fréttum, sem hafa borizt af góðum
árangri af kennslu próf. Haralds Bessa-
sonar og vaxandi aðsókn að námsskeið-
um hans í íslenzku. Enn fremur, að
þingið þakki honum mörg ágæt og fræð-
andi erindi um ísland og íslenzk mál,
sem hann hefir flutt í byggðum íslend-
inga.
5. Að þingið feli stjórnarnefnd félags-
ins að veita deildum aðstoð við útvegun
lit- og hreyfimynda og annars fræðslu-
efnis um íslenzk mál, sem að gagni
mætti koma á fundum og samkomum.
Einnig mælist nefndin til, að þingið fari
þess á leit við meðlimi stjórnarnefndar,
að þeir heimsæki deildir félagsins á
komandi ári, eins oft og auðið er.
6. Að þingið feli væntanlegri stjórn-
arnefnd að athuga möguleika á því að
fá hingað vestur til afnota hreyfimynd
þá, er próf. Finnbogi Guðmundsson lét
taka hér í íslendingabyggðum með at-
beina Þjóðræknisfélagsins og nú mun í
vörzlum hans á íslandi og einnig, að
þess verði farið á leit við prófessor
Finnboga, að hann komi með myndina
hingað vestur, þar sem hún nyti sín bezt
með góðum útskýringum kunnugs
manns. Einnig felur þingið stjórnarnefnd
að skipuleggja myndasýningarnar í fs-
lendingabyggðum vestra hér.
7. Að þar sem íslenzku blöðin, Heims-
kringla og Lögberg, hafa séð sér fært
að sameina krafta sína með því að koma
út undir einu nafni „Lögberg-Heims-
kringla“, sem er nú eina tengitaugin
milli Vestur-fslendinga og heimaþjóð-
arinnar, þá hvetji þingið alla íslendinga
til að styrkja blaðið eftir mætti. Enn
fremur leggur nefndin til, að blaðið
flytji fréttir frá hinum ýmsu byggðar-