Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 55
deilan um palestínu
37
sannfærðir um það, að með tíman-
um muni þetta Gyðingaríki leysast
UPP og hverfa. Við vitum ósköp vel,
sð þegar til lengdar lætur getur
ísrael ekki þrifizt nema það hafi
verzlunarsambönd við Arabaríkin.
Við munum aldrei líða eða leyfa
nein viðskipti við þessa innrásar-
naenn, önnur en vopnaviðskipti eða
brottflutning þeirra með alþjóða-
samningi. Án verzlunarviðskipta
verður ísrael brátt ómagi á amerísk-
um og annarra þjóða Zíonistum, sem
nu greiða stórar fúlgur árlega til
þess að halda þessu ríki við. Á milli
50 og 70 milljónir dollara koma nú
arlega frá Bandaríkjunum einum í
þessu skyni. Þýzkaland greiddi 70
milljónir í tólf ár í skaðabætur
íyrir Gyðingaofsóknir á stjórnartíð
Hitlers. Þeirri greiðslu er nú lokið.
Við gerum ráð fyrir, ef lífs-
skilyrði ísraelsmanna þrengjast,
rr^uni innflytjendahópurinn brátt
snúast við, þannig að Gyðingar
Hytji í burtu héðan, í stað þess að
°ska hér landvistar. Að okkar dómi
er ísrael eins og vaxblóm, útlend
jurt, sem ekki fær fest rætur í jarð-
Vegi Palestínu. Þetta ríki er eins
°g steinn, sem þvert ofan í þyngd-
arlögmálið hefir verið velt upp í
urabíska fjallshlíð. Arabar í kring
Uru Miðjarðarhafið teljast nú um
fimmtíu milljónir. Við stöndum nú
i fvrsta sinn sameinaðir. Gyðingar
ér eru nú aðeins hálf önnur milljón.
við höldum ísrael í einangrun,
rnun það brátt hverfa fyrir vaxandi
miði og styrkleika Arabaríkjanna.
ið innflutta blóm frá New York
mun visna, steinninn, sem velt hefir
Verið upp í arabísku fjallshlíðina,
mun losna og velta í hafið í vetrar-
ngningum þessa lands.
Á 25. alþjóðaþingi Zíonista, sem
haldið var um áramótin (1961), flutti
Ben-Gurion, forseti ísraels, mjög
hvassyrta ræðu, sem samkvæmt
blaðafregnum stóð yfir í klukkutíma
og fjörutíu mínútur. Þykir vel hlýða
að tilfæra hér að nokkru ummæli
hans, vegna þess að þau varpa ljósi
á það, hvernig málin horfa við frá
sjónarmiði þessa mikilhæfa for-
ystumanns. Þau staðfesta einnig
sum ummæli Araba, sem að framan
eru greind.
Ben-Gurion gat þess, að Zíonistar
og aðrir Gyðingar víða um heim
hefðu þá lagt fram nálægt fimm
hundruð millj. dollara til eflingar
ísraelsríki, frá því er það var stofn-
að fyrir tólf árum. En fjárframlög
eru ekki nóg. Félagið þarf að stuðla
að því af öllum mætti að útvega
ríkinu menntaða Gyðinga sem inn-
flytjendur frá vesturlöndum. Inn-
flutningur Gyðinga til ísrael hefir
ekki numið nema um 25 þúsundum
á ári síðastliðin ár. ísrael þjáist af
fólkseklu. Hinum óvinveittu Aröb-
um, einkum Egyptum, fjölgar
24 sinnum örar en ísraelsmönn-
um í Palestínu. Og það sem verra
er, flestir innflytjendur seinni
ára eru þeldökkir Asíu-Gyðingar.
Ef þetta fólk blandast ekki fljót-
lega vestrænum stofni, verður
ísrael annað svertingjaríki. Engir
Zíonistar, sem nokkuð kveður
að, hafa flutzt til Palestínu frá
Bandaríkjunum. í lýðræðisríkjum,
þar sem fólk nýtur almennrar vel-
megunar, eru Gyðingar í lífshættu;
þeir týnast 1 samruna við aðrar
þjóðir. Hér tilfærði forsetinn um-
mæli úr Talmud, trúarbók Gyðinga:
„Hver sá (Gyðingur), sem dvelur
langvistum erlendis, er guðlaus.“