Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 115
þingtíðindi
97
F raeSslumálanef nd:
Frú Hólmfríður Daníelson
Frú Kristín Þorsteinsson
Frú Louisa Gíslason
Frú Margrét Goodman.
Þá kom einnig fram tillaga þess efnis,
að forseta yrði falið að skipa fimm
manna nefnd, er fjalla skyldi um sam-
vinnumál við ísland. Sú tillaga var studd
og samþykkt.
Samvinnumálanefnd:
Dr. Valdimar J. Eylands
Frú Herdís Eiríksson
G. L. Johannson
Walter J. Líndal dómari
Séra Jón Bjarman.
Eftir sömu reglum skipaði forseti og
Prjá menn í útgáfumálanefnd.
Úigáfumálanefnd:
Grettir L. Johannson
Árni Brandsson
Friðfinnur O. Lyngdal.
Þessu næst var samþykkt að fresta
fundi til kl. 1.30.
Fjórði fundur
hófst þriðjud. 23. febr., kl. 2.15 e. h.
Lesin var fundargerð síðasta fundar og
hun samþykkt.
Frú Hólmfríður Daníelsson flutti
munnlega skýrslu um kennslubókar-
malið. Kvað hún sig og próf. Harald
Bessason fús til að athuga þetta mál
serstaklega í náinni framtíð. Grettir L.
Johannson gaf skýrslu varðandi vænt-
anlega heimsókn Karlakórs Reykjavík-
Ur til Manitoba. Kvað Grettir forráða-
haenn söngmála í Winnipeg vilja hafa
samvinnu við Þjóðræknisfélagið um
Þetta mál. Samþykkt var að vísa mál-
inu til þingnefndar í samvinnumálum
við ísland.
Er. Tryggvi J. Oleson flutti þessu
naest nefndarálit milliþinganefndar í
husbyggingarmálinu.
Skýrsla milliþinganefndar
í húsbyggingarmálinu
Nefndin í húsbyggingarmálinu hélt
með sér þrjá fundi á árinu og leyfir sér
f.,...leggja fram eftirfarandi skýrslu og
tillogur:
Samkvæmt þingsályktun síðasta þings
uSIlr nefndin í húsbyggingarmálinu leit-
sér um möguleika á samvinnu
íð Fyrstu lútersku kirkju í því að
fí®Sja félagshús, er fullnægði þörfum
siendmga í Winnipeg. Lagði formaður
nefndarinnar, frú Björg ísfeld, þetta
mál fyrir stjórnarnefnd Fyrsta lúterska
safnaðar 17. jan. síðastl., og var máli
hennar vel tekið. Afstaða nefndarinnar
var síðar framsett í bréfi 23. jan., þar
sem tekið er fram, að nefndin væri
hlynnt þessari hugsjón og muni fús til
að leggja málið fyrir aðalfund safnað-
arins, ef til þess kemur, til endanlegrar
ályktunar. Telur nefndin því, að það
verði hlutverk þessa þings að ákveða,
hvort þessi leið sé æskileg til úrlausnar
málinu, og hvort að þingið vilji veita
heimild til frekari framkvæmda í þessu
máli. Nefndin mælist því til þess, að
þingið taki ákveðna og endanlega af-
stöðu í þessu máli.
16. febr. 1960,
Björg ísfeld, forseti
Tryggvi J. Oleson, skrifari
Valdimar J. Eylands
Hólmfríður Daníelsson
Ólafur Hallsson.
Einn nefndarmaður, Guðmann J. Levy,
sá sér ekki fært að skrifa undir þessa
skýrslu og mun eflaust skýra afstöðu
sína fyrir þinginu.
Guðmann Levy tók þessu næst til
máls og skýrði afstöðu sína. Kvaðst
hann ekki hafa skrifað undir skýrsluna,
þar sem hann teldi ógjörlegt að koma
nokkru í framkvæmd varðandi húsbygg-
ingarmálið. Miklar umræður og langar
urðu um þetta mál. Að lokum var sam-
þykkt tillaga, sem borin var fram af
Walter J. Líndal dómara, en sú tillaga
er á þessa leið:
„Húsbyggingarmálinu verði vísað til
væntanlegrar stjórnarnefndar með það
fyrir augum að leitað verði samvinnu
við Fyrsta lúterska söfnuðinn í Winni-
peg. Einnig sé þeim tilmælum beint til
væntanlegrar. stjórnarnefndar, að hún
afli álitsgjörðar frá einstökum deildum
Þjóðræknisfélagsins um það, hvort þær
telji áðurgreinda samvinnu æskilega.“
Forseti, dr. Beck, þakkaði milliþinga-
nefnd í húsbyggingamálinu og sér í lagi
frú Björgu fsfeld óeigingjarnt starf á
liðnum árum.
G. L. Johannson flutti þessu næst sím-
senda kveðju frá ambassador Thor Thors,
en kveðjan kom frá Mexico City og
hljóðar þannig:
“Please convey greetings all good
wishes to Icelandic Congress.”
Thor Thors.
Að því búnu var samþykkt að fresta
fundi til næsta morguns.
Fimmti fundur
hófst miðvikudaginn 24. febrúar, kl. 10
f. h. Lesin var fundargerð síðasta fundar
og hún samþykkt. Síðan kom fram til-