Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 112
94
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Borgað Hákoni Bjarnasyni í Reykja-
vík, 10. júní 1959 $87.00. Peningar þess-
ir voru sendir með frú Herdísi Eiríksson
frá Árborg og kvittun meðtekin frá H.
B., og fylgir sú kvittun ofangreindri
skýrslu. Enn fremur afhenti frú Herdís
Eiríksson meðlimagjald frá „Esjunni“ í
Árborg að upphæð $10.00. Heildarupp-
hæðin, sem afhent var, nam því $97.00.
Bréfaskipti hefi ég átt við H. H. Aust-
mann og Sigurð Johnson í Vancouver
viðvíkjandi fræsöfnun í þarfir skóg-
ræktarinnar. Hefir sá fyrrnefndi áður
verið hjálplegur í þessum efnum og er
ávallt fús að leggja okkur lið og útvega
allar nauðsynlegar upplýsingar í sam-
bandi við útvegun fræs frá skógræktar-
stöðvum hér í landi.
Samkvæmt beiðni hans voru nokkur
sýnishorn af fræi send heim til íslands
frá Skógræktarstöð ríkisins í Ottawa
síðastliðið sumar. Hvort þær voru not-
hæfar á íslandi, er mér ókunnugt um.
Þá skrifaði ég Sigurði Johnson í Van-
couver varðandi útvegun á sýnishorn-
um, en sonur hans, Valtýr, er skógrækt-
armaður í B.C. Hafði Valtýr gert fyrir-
spurn um þetta þar, en árangurslaust.
í svarbréfi Sigurðar til mín segir hann
meðal annars: “He (Valtýr) tells me that
The Federal Government does give and
exchange such samples with other gov-
ernments, wherein Iceland would no
doubt be included. Now it is reasonable
to suppose that their experts at the Do-
minion Experimental Farm, Ottawa
would have a good idea of suitable
varieties of growth in Iceland.”
Hákon Bjarnason skrifar mér meðal
annars:
„Ég er þér afar þakklátur fyrir að
hamra á þeim skógræktarmönnum í
B.C. Ekki veitir af. Þeir eru mjög tregir
til að gera ýmislegt fyrir okkur, sem við
höfum beðið þá um, en ég vona, að það
fari að lagast. Þeir hafa nýlega fengið
fyrirmæli frá Ottawa um að reyna að
gera okkur greiða, svo að nú ætti eitt-
hvað undan að láta, þegar ýtt er við
þeim frá tveimur hliðum. Annars hefi
ég mikinn hug á að skreppa til Ameríku
næsta sumar, fyrst og fremst á skóg-
ræktar kongress í Seattle í ágústlok 1960,
en halda þaðan til Alaska og síðan til
B.C.“
Síðan áðurgreint var skrifað, þ. e. í
apríl síðastliðið vor, hefir dr. Beck til-
kynnt mér í bréfi, að kr. 2500.00 hafi
verið greiddar af Þjóðræknisfélaginu til
Skógræktarfélags fslands og að hann
hafi fengið viðurkenningu ásamt með
þakklæti frá Hákoni Bjarnasyni snemma
í maí. „Tjáir hann mér, að þeir muni
nota þessa peninga til að setja niður
plöntur í reit Vestur-íslendinga á Þing-
völlum og segir enn fremur, að allt haf-
ist vel við, sem sett sé í reitinn. Stærstu
plönturnar eru nú um það bil hálfur
metri á hæð.“
f bréfi til mín, dagsettu 1. júlí 1959,
getur Hákon þess, að hann hafi fengið
nokkur sýnishorn af fræi frá Helga Aust-
mann, en því miður hafi þær verið svo
litlar, að þær hafi ekki komið að nein-
um notum. Sýnishorn þessi, segir hann,
að þurfi að vera að minnsta kosti eitt
pund hver. í þessu bréfi biður Hákon
mig að skila kærri kveðju til allra
þeirra, „sem styrkja okkur þarna
vestra" og að plönturnar í reit Vestur-
fslendinga á Þingvöllum hafist yfirleitt
mjög vel við. „Sumt af þessu er nú
komið í hnéhæð og jafnvel meira.“ Ég
hefi nýlega meðtekið pund af trjáfræi
frá Helga Austmann og mun senda það
heim fljótlega. Fræ þetta er nefnt „Lodge
Pole Pine Seed“.
Samkvæmt beiðni minni hefi ég nú
fengið síðasta ársrit Skógræktarfélags-
ins, og verður það afhent hér þeim, sem
vilja halda áfram að vera meðlimir fé-
lagsins og þeim nýjum meðlimum, sem
vilja gefa sig fram og styrkja þannig
Skógræktarfélag íslands.
Marja Björnson.
Flutingskona lagði til, að skýrslan
yrði viðtekin. Stefán Eymundsson studdi,
og var skýrslan að við búnu samþykkt.
Frú Herdís Eiríksson lagði til að milli-
þinganefnd í skógræktarmálinu yrði
endurkosin með þeirri breytingu, að séra
Jón Bjarman tæki sæti séra ólafs Skúla-
sonar. Sú tillaga var studd og sam-
þykkt. Frú Marja Björnson gerði þessu
næst tillögu þess efnis, að Þjóðræknis-
félagið verji á ári komanda $25—50 til
frækaupa. Frú Kristín Johnson gerði
tillögu um að vísa því máli til væntan-
legrar fjármálanefndar. Tillaga frú
Kristínar var studd og samþykkt. í milli-
þinganefnd í skógræktarmálinu eiga nú
sæti: frú Marja Björnson, próf. Haraldur
Bessason og séra Jón Bjarman.
Frú Marja Björnson flutti þessu næst
skýrslu milliþinganefndar í minjasafns-
málinu.
Ársskýrsla milliþinganefndar
í minjasafnsmálinu
Því miður hefir lítið áunnizt í þessu
máli á liðnu ári. í janúar í fyrra sendi
ég lista til Heimskringlu yfir þá muni,
sem gefnir höfðu verið í safnið, og var
sá listi þá prentaður með nöfnum geí-
enda. Fór ég þá fram ó, að fólk héldi
áfram að sinna þessu máli, en auðsjáan-
lega hefir þeirri beiðni verið lítið sinnt.
Fyrir stuttu síðan endurtók ég þá beiðni
mína í Lögbergi-Heimskringlu, þar sem