Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 71
gimliför min
53
svarar spurnum fávita upp úr miðju
mælskukafi.
Héðin: Brasklistin er mest allra
lista, sem sögur fara af. Fyrst nú,
eiga einstaklingar og þjóðir alla sína
rnenningu, allt sitt góss og lífið sjálft
undir listinni. En sannlega segi ég
yður, að nú er svo komið. Eða getur
nokkur hugsað sér auglýsinga-
fræðslu án myndlistar; bissnes án
auglýsinga; gengi framtaksins ann-
urs staðar en í bissnesinu? Og ein-
staklingsframtakið er potturinn og
pannan að frjálsu lýðræði og allri
blessun því meðfylgjandi, hér og
hinu megin.
Áheyrandi: En er nokkuð hinu
megin?
Héðin (alvarlegur): Áður en brask-
listin kom í heiminn, þekktist hann
Sem dauðans skuggadalur. Nú er
hann landið lífs og ljóss. Áður lötr-
uðu menn í hægðum sínum í skugg-
anum eða brokkuðu um á bykkjum,
t*egar bezt gerði; nú þeysa þeir um,
1 glansandi djöflavögnum, eða líða
um 1 loftinu eins og fuglinn fljúg-
andi. Áður var öll vinna þrældómur
Vesælla manna; nú leikur mótor-
véla. Hlutir voru sagðir lifandi eða
úauðir, eftir því hvort þeir voru
hlaðnir orku eða ekki. Á þessu hafa
gerzt hausavíxl. Nú er orka þess,
Sem dautt var kallað, milljón sinn-
Um rneiri en ins lífræna. Hvað er
lífskrafturinn, sé miðað við gasolíu-
°5ku, rafurmagn og atomsprengju?
Hvað hefur vesælt líf að segja móti
ðllum maskínum, sem framtakið og
issnesið hafa hleypt af stokkunum,
°g við auglýsarar höfum dreift um
andið; svo „allir landar eiga djöfla-
Vagna, sem ætla að drepa þá, sem
passa sig“? í inum fyrri „dal“ ríkti
jafnan þögn, svo djúp, að heyra mátti
tittling tísta; nú er þar sá skarkali
og gleðilæti, að fólk verður heyrn-
arlaust fyrir tímann, og kaupir
heyrnartól. Og hvar eru skuggarnir?
Sól og tungl og ellefu stjörnur, nei,
allar stjörnur, eru mýraljós hjá
ljóma og litum, sem stafa frá einni
stórborg — og það að næturlagi!
Þessar og aðrar framfarir eru fram-
takinu, í k læ d d u bissnesinu, að
þakka. En bissnesið án auglýsinga
er eins og gasolíulaus djöflavagn.
Og gildir sama líking um auglýs-
ingabissnesið sjálft og brasklistina.
Áheyrandi: Vildi meistarinn gefa
dæmi?
Héðin: Með ánægju! Iiem: í mesta
menningarlandi heimsins seljast ár-
lega vörur til líkamans fagurgern-
inga upp á 8 billjónir. Iiem: Árleg
verzlun barna og unglinga nemur
og svo 8 billjónum. Verzlun þessa og
viðkomandi framleiðslu þakka fé-
lagsfræðingar brasklistinni og oss,
sem nýtum hana.
Áheyrandi: En félagsfræðingar
segja einnig, að brasklistar-auglýs-
ingar æri peningalausa unglinga,
sér í lagi stelpukrakka, upp í rán
og þjófnað. Og hvar er þá siðferðis-
prinsipið, sem við höfum patent á,
eða sama sem?
Héðin: Vel spurt af vanfróðum.
Skal þess fyrst getið, að auglýsinga-
bissnesið hefur snjalla félagsfræð-
inga, sálfræðinga m. fl. í þjónustu
sinni. í öðru lagi ber oss að minnast
orða ins heilaga Ágústínusar, sem
eru á þá leið, að hvert mannsins
skammarstrik sé honum nægilegt og