Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 103
þingtíðindi
85
tökuna á kveðjum þessum og flutti inn-
gangsorð.
Þjóðræknisfélagið á íslandi lét taka
á segulband og senda hingað vestur um
haf kveðjur frá biskupnum yfir Islandi,
herra Sigurbirni Einarssyni, og Sigurði
Sigurgeirssyni, ritara félagsins. Hafa
þessar hlýyrtu og sérstaklega kærkomnu
kveðjur þegar verið fluttar á ýmsum
stöðum og munu verða fluttar hér á
þinginu, en Grettir ræðismaður hefir
þaer með höndum og mun á sínum tíma
gera nánari grein fyrir þeim og flutn-
ingi þeirra. En Þjóðræknisfélaginu á ís-
landi vil ég, í nafni félags vors, þakka
þetta bróðurlega handtak yfir hafið,
annan góðhug í vorn garð og alla sam-
vinnu við oss.
Ræktarhugur vor til ættjarðarinnar
stendur djúpum rótum. Vér fögnum með
henni á sigur- og gleðistundum, en finn-
nna til djúprar samúðar, er hún drýpur
höfði í sorg og á um sárt að binda. Því
snart það oss djúpt, er oss barst á síð-
asta þjóðræknisþingi harmafregnin um
hmar hörmulegu slysfarir á hafinu við
íslandsstrendur. Að sjálfsögðu sam-
þykkti þingið að senda forseta íslands
°g íslenzku þjóðinni samúðarkveðjur.
En vér vildum einnig sýna samhug vorn
1 verki. Þess vegna var það, að í sam-
raemi við tillögu, sem samþykkt var á
Þmginu, ráðstafaði stjórnarnefndin á
fyrsta fundi sínum eftir þingið, að_ fé-
tagið greiddi úr sjóði sínum 2,500 krónur
1 samskotasjóðinn á íslandi, sem efnt
var til vegna sjóslysanna. Þá skal þess
ao verðleikum getið, að sambandsdeild
telagsins „Vestri“ í Seattle efndi til sam-
komu 17. júní til arðs fyrir ofannefndan
samskotasjóð. Enn fremur er mér kunn-
ugt um, að ýmsir einstaklingar meðal
y°r Vestur-fslendinga hafa sent tillög
í þ.°nnan sjóð. Vel sé þeim öllum, félags-
neildum og öðrum, sem það hafa gert.
pao er fögur ræktarsemi í verki.
En vér höfum eigi aðeins á árinu vilj-
eiga nokkurn hlut að því að bera
smyrsl samúðarinnar á hjartasár þeirra,
er særinn svipti ástvinum í slysförunum
tyrra vetur; vér höfum nú eins og
aour viljað eiga þátt í því að græða
■,yo°usár íslenzkrar moldar, ,,að klæða
samræmi við samþykkt þjóð-
„v*?lsþ'ngsins, veitti stjórnarnefndin úr
?Joði félagsins 2,500 kr. til skógræktar
Islandi. í þakkarbréfi til forseta (dags.
,mai 1959) gerjr Hákon Bjarnason
Kogræktarstjóri svofellda grein fyrir
nvernig þessi fjárgjöf verði notuð:
ð ®unum nota þessa peninga til þess
t , s°ya niður plöntur í Reit Vestur-
jœamgii á Þingvöllum, og við munum
olykar hezta til að það komi vel
- °ur. Eins og ég hefi getið um áður,
hefst allt mjög vel við, sem sett er í
reitinn, og það líða ekki mörg ár þang-
að til maður sér votta fyrir honum af
þjóðveginum, jafnvel þó að hann sé í
400—500 metra fjarlægð frá bílvegi.
Stærstu plönturnar eru nú um það bil
hálfur metri á hæð og er það ágætur
vöxtur miðað við það, sem hér er al-
mennt.“
Annars er skógræktarmálið í höndum
milliþinganefndar undir forystu frú
Marju Björnsson, sem unnið hefir að
framgangi þess með góðum árangri.
Leggur hún síðar fram skýrslu sína hér
á þinginu, en þökk sé henni og þeim
öðrum, sem þar eiga hlut að máli, fyrir
viðleitni þeirra í þessu ágæta og þarfa
máli.
Ég veit, að blaðafregnin um væntan-
lega söngför Karlakórs Reykjavíkur
hingað vestur um haf á komandi hausti
er oss öllum fagnaðarefni. Undir eins
og oss í stjórnarnefndinni barst sú frétt,
ræddum við um söngförina á fundi vor-
um, og fól nefndin Gretti L. Johannson
ræðismanni að athuga málið og mun
hann flytja skýrslu um það síðar á þing-
inu. Söngstjóri Karlakórsins er nú sem
áður Sigurður Þórðarson tónskáld, heið-
ursfélagi vor. Veri hann, og þeir söng-
bræðurnir allir, hjartanlega velkomnir
á vorar slóðir á ný. Þeir munu nú eins
og í fyrri ferð sinni flytja oss „íslands
lag“ í sínum tónatöfrum: „bjarkaþyt og
brimsins raddir — blíðan lóuklið".
Útgáfumál
Tímarit félagsins kemur í ár út undir
sameiginlegri ritstjórn Gísla skálds Jóns-
sonar og Haralds prófessors Bessasonar,
er tók við meðritstjórninni að ósk hins
fyrrnefnda, er hefir í áratugi annazt rit-
stjórnina með mikilli prýði, og skuldar
félagið honum ómælda þökk fyrir það
ágæta starf hans. Valinn maður hefir
einnig komið í meðritstjórasessinn þar
sem er ritari félags vors. í samræmi við
samþykkt síðasta þings, hefir ritið verið
dálítið minnkað að stærð, en er að öðru
leyti með svipuðu sniði og verið hefir.
Halldór Stefánsson hefir annazt söfnun
auglýsinga með aðstoð þeirra Páls S.
Pálssonar að Gimli og ólafs Hallssonar
að Lundar. Votta ég þeim og öðrum,
sem þar kunna að hafa lagt hönd á plóg,
þakkir félagsins.
Það þótti að vonum tíðindum sæta,
þegar sá atburður gerðist síðastliðið
sumar, að vestur-íslenzku vikublöðin
Heimskringla og Lögberg sameinuðust,
enda var þar um sögulegan atburð að
ræða í félags- og menningarlífi voru.
Engin ástæða er til að rekja þá sögu
hér; það hefir þegar verið gert á prenti
bæði í blaðagreinum og þá eigi síður