Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 118
100
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
lögum og að deildir, hver í sínu lagi,
velji fréttaritara til þess að skrifa reglu-
lega í blaðið.
Philip M. Péiursson
Marja Björnson
Stefán Eymundsson
John B. Johnson
G. J. Jónasson.
Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
álitið yrði borið upp undir atkvæði lið
fyrir lið. Var sú tillaga samþykkt. All-
miklar umræður urðu um suma liðina.
í sambandi við 7. lið tók til máls meðal
annars frú Ingibjörg Jónsson ritstjóri
Lögbergs-Heimskringlu og fylgdi mjög
eftir þeim fyrirmælum, sem sá liður
hefir að geyma. Allir liðir nefndarálits-
ins hlutu stuðning og samþykki, svo og
álitið í heild.
Séra Philip M. Pétursson flutti skýrslu
allsherjarnefndar.
Skýrsla allsherjarnefndar
1. Nefndin leggur til, að ritara sé falið
að þakka fyrir félagsins hönd á viðeig-
andi hátt allar kveðjur, sem félaginu
bárust á 41. þingi þess og þá sér í lagi
eftirfarandi: Sigurbirni Einarssyni bisk-
upi íslands, ambassador Thor Thors,
Washington, Ólafi Thors forsætisráð-
herra íslands, herra Ásmundi Guð-
mundssyni fyrrverandi biskupi íslands,
Árna Bjarnarsyni, Akureyri, og ritara
Þjóðræknisfélagsins í Reykjavík, herra
Sigurði Sigurgeirssyni.
2. Þjóðræknisfélagið þakkar hinum
virðulega gesti, dr. Árna Helgasyni frá
Chicago, komuna og margvíslegan stuðn-
ing hans við þjóðræknismál og árnar
honum og fjölskyldu hans góðs gengis
og gæfu.
3. Þjóðræknisfélagið vottar Ragnari Á.
Stefánssyni þakklæti sitt fyrir margra
ára óeigingjarnt starf sem skjalavörður
félagsins og árnar honum allrar bless-
unar,
4. Nefndin leggur til, að stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins sé falið að ganga
frá fundargjörningum, sem ólokið er,
og öðrum störfum, sem henni hefir verið
falið að vinna.
P. M. Pétursson
S. E. Björnson
T. Böðvarsson.
Næsta mál á dagskrá var kosning
embættismanna Þjóðræknisfélagsins, en
þessi voru kjörin í stjórnarnefnd: dr.
Richard Beck, forseti; séra P. M. Pét-
ursson, varaforseti; prófessor Haraldur
Bessason, ritari; W. J. Líndal dómari,
vararitari; G. L. Johannson, féhirðir;
frú Hólmfríður Daníelson, varaféhirðir;
Guðmann Levy, fjármálaritari; Ólafur
Hallsson, varafjármálaritari; frú Marja
Björnson, skjalavörður. Endurskoðendur
voru kjörnir þeir J. T. Beck og Davíð
Björnsson.
Um kvöldið var hinu fertugasta og
fyrsta þjóðræknisþingi formlega slitið af
forseta, dr. Richard Beck, á lokasam-
komu Þjóðræknisfélagsins í Sambands-
kirkjunni á Banningstræti.
Haraldur Bessason, ritari
Richard Beck, forseti.