Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 116
98
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
laga um það að þakka milliþinganefnd
í húsbyggingarmálinu, en tillagan hljóð-
aði þannig:
„Þjóðræknisþingið þakkar milliþinga-
nefnd í húsbyggingarmálinu, og sérstak-
lega frú Björgu ísfeld formanni nefnd-
arinnar, vakandi áhuga á því máli og
alla viðleitni í þágu þess, og telur víst,
að stjórnarnefndin notfæri sér eftir
ástæðum reynslu og þekkingu þeirra,
sem átt hafa sæti í húsnefndinni og haft
það mál með höndum árum saman.“
Tillaga þessi var studd og samþykt.
Þessu næst flutti Grettir L. Johannson
nefndarálit þingnefndar í útgáfumálum.
Nefndarálit útgáfumálanefndar
1. Þingið þakkar ritstjórum Tímarits-
ins, þeim Gísla Jónssyni og próf. Haraldi
Bessasyni ágætt starf.
2. Þingið þakkar enn fremur þeim,
sem söfnuðu auglýsingum í Tímaritið,
þeim Halldóri Stefánsson, Ólafi Halls-
son og Páli S. Pálsson.
3. Þingið felur væntanlegri stjórnar-
nefnd að gefa út Tímaritið næsta ár og
ráða ritstjóra og auglýsingastjóra.
Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
álitið yrði borið undir atkvæði lið fyrir
lið. Var svo gert, og hlutu allir liðir
samþykki.
G. L. Johannson
Árni Brandsson
F. O. Lyngdal.
Séra Jón Bjarman flutti nefndarálit
þingnefndar í samvinnumálum við fs-
land.
Nefndarálit samvinnumálanefndar
1. Þingið fagnar því, að góð samvinna
hefir haldizt við ísland, og hefir sú sam-
vinna heldur aukizt á árinu. Þingið álítur
slíkt nauðsynlegt tilveru Þjóðræknisfé-
lagsins. Meðan slík samskipti haldast,
telur þingið að tilveru félagsins sé
borgið.
2. Þingið þakkar Þjóðræknisfélagi ís-
lendinga í Reykjavík fyrir kveðjur, sem
hingað bárust á segulbandi frá íslandi
á vegum félagsins í sambandi við ný-
afstaðna jólahátíð. Þingið þakkar enn
fremur alla þá fyrirgreiðslu, sem félagið
lét í té þeim Vestur-íslendingum, sem
heimsóttu ættjörðina á síðastliðnu ári.
3. Þingið minnist með þakklæti heim-
sóknar góðra gesta frá íslandi á síðast-
liðnu ári, þeirra sem erindi hafa flutt á
meðal Vestur-íslendinga eða á einhvern
annan hátt stuðlað að því að halda við
sambandinu milli heimaþjóðarinnar og
þjóðarbrotsins hér í Vesturheimi.
4. Þingið leggur til, að væntanlegri
stjórnarnefnd verði falið að annast und-
irbúning varðandi móttöku Karlakórs
Reykjavíkur á komandi hausti. Þingið
hvetur enn fremur deildirnar til þess
að leggja sig fram um að telja félags-
menn á það að taka þátt í samkomum
kórsins.
5. Þingið telur það mikið ánægjuefni,
að „Canada-Iceland Foundation“ og sam-
svarandi samtök á íslandi, „ísland-
Kanada ráð“, hafa bæði haldið áfram
starfi beggja megin hafsins og hafa náð
árangri í starfi sínu við útvegun náms-
styrkja handa efnilegum íslenzkum
námsmönnum, sem hug hafa á því að
stunda framhaldsnám í Kanada. Þingið
álítur starf þetta góðan skerf til eflingar
þjóðræknismálum beggja megin hafsins.
6. Þingið felur stjórnarnefndinni að at-
huga möguleika á að fá sýnishorn af
eftirprentunum íslenzkra listaverka, sem
Ragnar Jónsson, forstjóri Helgafells,
hefir látið gera. Væri æskilegt að koma
á fót sýningum á þessum eftirprentun-
um hér vestra.
V. J. Eylands
W. J. Lindal
Herdís Eiríksson
Greiiir L. Johannson
Jón Bjarman.
Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
álitið yrði borið upp lið fyrir lið. Var
svo gert, og hlutu allir liðir stuðning og
samþykki.
Frú Hólmfríður Daníelsson las þessu
næst nefndarálit þingnefndar í fræðslu-
málum.
Nefndarálil í fræðslumálum
Nefndin lætur í ljósi ánægju sína yfir
því, að nokkrar deildir hafa innan sinna
vébanda barnasöngflokka, sem hafa
staðið sig ágætlega og einnig yfir því,
að íslenzkukennsla í smáhópum heldur
áfram, þar sem próf. Haraldur og frú
Hólmfríður Daníelsson kenna í heima-
húsum. Allt slíkt miðar í rétta átt. Einn-
ig eru það góðar fréttir, að við megum
eiga von á því, að samið verði kennslu-
kver í íslenzku nú á næstunni.
Nefndin leggur til:
1. Að deildirnar, hver í sinni byggð,
stofni barnasöngflokka, ef möguleikar
eru fyrir hendi. Slíkt getur orðið til
þess, að börn og unglingar taki fremur
eftir íslenzkunni, og ómetanlegt væri
það, ef deildirnar gætu nú enn á ný
sagt unglingum til í íslenzkulestri.
2. Að stjórnarnefnd Þjóðræknisfélags-
ins reyni að útvega nýja þjóðdansabók,
sem mun fyrir skömmu út komin á ís-
landi. Það hefir komið í ljós á þinginu,