Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Blaðsíða 100
82
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Skýrslur deildanna lýsa annars nánar
starfi þeirra, og mun það koma á dag-
inn, að margar þeirra halda vel í horfi,
en aðrar miður, eins og gengur, enda
aðstæðurnar til starfans ærið misjafnar
eftir staðháttum. Þá þykir mér sérstök
ástæða til að geta þess, að sambands-
deild vor, Lestrarfélagið „Vestri“ í Seat-
tle hélt sextugustu áramótasamkomu
sína 31. des. síðastliðinn, og á því yfir
langa og merka sögu að líta, og er enn
vel lifandi og starfandi, eins og skýrsla
ritara sýnir. Núverandi forseti „Vestra“
er Karl F. Frederick ræðismaður, ritari,
Jón Magnússon, og féhirðir, S. B. John-
son. í félagsins nafni óska ég „Vestra“,
embættismönnum og félagsfólki, hjart-
anlega til hamingju og þakka ágætt
menningar- og þjóðræknisstarf um sex-
tíu ára skeið.
St j órnarnef nd Þ j óðræknisf élagsins
hefir á árinu unnið með mörgum hætti
að útbreiðslu- og fræðslumálunum, og
ýmsir aðrir lagt þar hönd að verki, enda
ber brýna nauðsyn til að efla sem mest
sambandið og samstarfið við deildirnar,
hvar sem því verður við komið. Harma
ég einlæglega, að ég hef eigi getað heim-
sótt eins margar þeirra og ég hafði ætlað
mér, en leikur hugur á að bæta úr því á
komandi ári.
Fyrrv. forseti félagsins, dr. Valdimar
J. Eylands, flutti erindi og sýndi mynd-
ir frá íslandi á samkomu deildarinnar á
Gimli, enda er hann ávallt reiðubúinn
að leggja málum félagsins lið. Hann
hélt einnig ræður um íslenzk efni víðar
á árinu, og hefir birt greinar um ís-
lenzka menn og málefni í vikublaði voru
og Sameiningunni.
Núverandi varaforseti, séra Philip M.
Pétursson, flutti ávarp í ársveizlu Ice-
landic Canadian Club, hefir ritað blaða-
greinar um íslenzk efni, og í embættis-
ferðum sínum víðs vegar um byggðir
vorar beint og óbeint treyst félags- og
ættarböndin. En hvar sem kirkjuleg at-
höfn fer fram vor á meðal á íslenzku,
er ofinn þáttur í viðhald máls vors og
erfða og þjóðernisvitundar vestur hér.
Það skyldi munað og metið, enda á félag
vort ómetanlega s kuld að gjalda ís-
lenzku prestunum hér vestan hafs fyrr
og síðar.
Ritari vor, prófessor Haraldur Bessa-
son, hefir verið mikilvirkur á árinu.
Hann hefir unnið ötullega að söfnun
sögulegra heimilda, einkum kirkjubóka
og annarra gagna, sem varða vora vest-
ur-íslenzku söfnuði, og að mikrófilmun
þessara gagna, og hefir þegar sent Þjóð-
skjalasafni íslands stóra sendingu af því
tagi. Er hér um að ræða mikilvægt verk
fyrir framtíðina. Annað meginstarf rit-
ara síðastliðið sumar var að undirbúa
íslendingadaginn að Gimli, en hann var
forseti dagsins, eins og kunnugt er. Síð-
astliðið vor tók ritari enn fremur saman
kvöldvöku fyrir deildina „Frón“ hér í
Winnipeg, flutti inngangserindi um
Njálu og stjórnaði upplestri úr sögunni.
Hann flutti ræður á íslenzku á sumar-
málasamkomu í lútersku kirkjunni hér
í borg og nú í haust á samkomu deild-
arinnar að Gimli, einnig ræðu, á ís-
lenzku og ensku, á samkomu í Wynyard,
og nú nýverið erindi (að sjálfsögðu á
ensku) um sögu íslenzkrar tungu fyrir
hópi íslenzkra stúdenta við United Col-
lege hér í Winnipeg. Síðast en ekki sízt
ber þess að geta, að hann hefir birt
ræður og margar ritgerðir um íslenzk
efni í vikublaði voru og víðar.
Vararitari, Walter J. Lindal dómari,
hefir flutt ávörp á ýmsum samkomum
og nú sem áður ritað greinar um íslenzk
þjóðræknis- og menningarmál bæði í
The Icelandic Canadian og í vikublað
vort. Hann hefir einnig haldið áfram
starfi sínu í þágu Canada-Iceland Foun-
dation, en hann er formaður fram-
kvæmdanefndar þeirrar stofnunar. Jafn-
framt vinnur hann þjóðræknisstarf á
breiðum grundvelli með starfsemi sinni
varðandi hin ýmsu þjóðarbrot í Kanada,
ekki sízt sem forseti blaðamannafélags
þeirra (Canadian Ethnic Press Federa-
tion).
Féhirðir, Grettir L. Johannson ræð-
ismaður, flutti á árinu fjögur erindi um
ísland á ensku, einnig, í embættisnafni,
ávörp og kveðjur við ýmis tækifæri, og
hefir auk þess haft með höndum víð-
tæka upplýsingastarfsemi um fsland.
En hjá honum, sem öðrum fulltrúum
íslands hérlendis, falla landkynningar-
og þjóðræknisstarfið eðlilega í sama far-
veg.
Varaféhirðir, frú Hólmfríður F. Dan-
ielson, flutti erindi um ísland á ensku
á samkomum tveggja félaga í Fort Gar-
ry og lagði ýmsum öðrum til efni í er-
indi um ísland, sem flutt hafa verið í
Winnipeg og víðar. Hún undirbjó einnig
og sá um þátttöku íslendinga í hinni
miklu skrúðsýningu, er hin ýmsu þjóð-
arbrot í Manitoba efndu til í sambandi
við komu Elízabetar drottningar og
Philips prinz til Winnipeg síðastliðið
sumar. Hún hefir einnig skrifað greinar
um íslenzk efni bæði á ensku og ís-
lenzku.
Starf fjármálaritara, Guðmanns Levy,
er eðlilega einkum falið í bréfaskrift-
um til deilda og því unnið í kyrrþey, en
eigi að síður grundvallaratriði í viðhaldi
sambandsins við deildirnar.
Varafjarmálaritari, ólafur Hallsson,
hefir nú sem áður unnið dyggilega í
heimadeild sinni að Lundar, átti sæti