Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 50

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 50
32 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA stað, þar sem þeir telja bein hans hvíla, í Hebron. Þeir viðurkenna einnig fyrirheitin um að Palestína skuli vera eign niðja hans um allar aldir. En þeir benda á, að Isak var ekki frumgetinn sonur Abrahams, heldur Ismael, sem hann gat með ambáttinni Hagar, með góðu sam- komulagi við Söru konu sína. Hinn frumgetni sonur hlaut að vera rétt- mætur erfingi þjóðföðurins, en þeir rekja ættir sínar einmitt til Ismaels. Enn fremur benda þeir á þá stað- reynd, að þegar umskurnarsáttmál- inn var gerður við Abraham, þá var það Ismael, sem var umskorinn. Hann var þá fimmtán ára gamall, en Isak ófæddur. Eldri bróðirinn og niðjar hans eru því réttmætir eig- endur og íbúar Palestínu um allar aldir. Um Ismael er sagt, að hann muni verða ólmur sem villiasni; hönd hans muni verða á móti hverjum manni, og hvers manns hönd uppi á móti honum (I. Mós. 16-12). Þessi spásögn virðist hafa rætzt að því leyti, að afkomendur Ismaels, Arab- ar, hafa löngum verið íbúar eyði- merkurinnar og eins konar olnboga- börn í fjölskyldu Abrahams fram á þennan dag. Margir þeirra eru heim- ilislausir hirðingjar, sem reika stað úr stað með hjörðum sínum og búa í tjöldum úr úlfaldahári. Arabiskir hirðingjar eru mjög frumstæðir í lifnaðarháttum sínum. Eyðimörkin er konungsríki þeirra, úlfaldinn og hesturinn eru herskipið og eimreið- in. Þeir láta sér fátt um finnast alla menningu og tækni nútímans og bera djúpa fyrirlitningu fyrir bændalýð og bæjarmönnum, telja þá hafa fætur fasta við jörð, en sjálfa sig frjálsa sem fugla loftsins. Fjöldi Araba er einnig iðnaðar- og verzlunarmenn og hafa fyrir löngu samið sig að siðum og hátt- um vestrænna manna. En þrátt fyrir útilokunarstefnu fyrri alda og inn- byrðis deilur eru Arabar nú betur sameinaðir en nokkru sinni fyrr. Þjóðerniskennd þeirra hefir vaknað fyrir alvöru, einmitt í sambandi við hið umdeilda föðurland. Þeir eru einnig sameinaðir um trú og tungu. Flestir eru þeir Múhameðstrúar og tala arabísku eða afbrigði hennar. Þó eru víða stórir hópar af kristn- um Aröbum, svo sem í Líbanon, Sýr- landi, Egyptalandi og í Jerúsalem, Betlehem og Nazaret í Gyðinga- landi. Það er talið, að um fimmtíu milljónir Araba eigi heima í lönd- unum austan og sunnan við Mið- jarðarhafið. Arabar neita því harðlega, að Gyðingar eigi nokkur sérréttindi í Palestínu, telja þá ekki eiga neitt sögulegt tilkall til landsins. Þeir gera lítið úr sérsamningi þeim, sem talið er að Drottinn hafi gert við þá grein fjölskyldunnar, sem frá Isak er sprottin. Hafi slíkur sér- samningur verið gerður, þá hafi þeir sjálfir brotið hann af sér og hlotið makleg málagjöld. Þeir benda á, að Gyðingar hafi aftur og aftur reynt að ná landinu á vald sitt, en það hafi aldrei tekizt nema um stundarsakir. Þeir benda á, að fyrsta innrásin af hálfu Gyðinga var gerð á dögum Jósúa. Hann náði að vísu hálendi Júdeu á sitt vald, en frum- byggjar landsins, forfeður þeirra sjálfra, héldu strandlengjunni og sléttunum og bjuggu þar í friði öld fram af öld. Fyrst lengi voru þeir sjálfstæðir, en síðan undir stjórn Rómverja og byzantíska keisara-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.