Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 101

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1960, Page 101
þingtíðindi 83 i nefndum af félagsins hálfu, og stutt starf þess með öðrum hætti. Skjalavörð- ur, Ragnar Stefánsson, hefir, sérstak- lega seinni helming ársins, átt við veik- indi að stríða og liggur nú á sjúkrahúsi. Pæri vel á því, að þingið sýndi honum góðhug sinn með viðeigandi hætti, í viðurkenningar- og þakkarskyni fyrir störf hans í þágu félagsins árum saman og hlutdeild hans í félagslífi voru og nienningarmálum. . Forseti flutti kveðjur af hálfu félags- ins á fslendingadeginum að Gimli, í kveðjusamsæti fyrir séra Ólaf Skúlason og frú hans að Mountain, í samsæti til heiðurs dr. Valdimar J. Eylands og frú nans hér í Winnipeg, á tíu ára afmælis- hátíð elliheimilisins „Borg“ að Moun- tsin, og í ársveizlu Icelandic Canadian Cluþ. Enn fremur hélt forseti aðalræð- una við hátíðarguðsþjónustu í Víkur- kirkju að Mountain í tilefni af 15 ára afmæli íslenzka lýðveldisins, er fram fór að öllu leyti á íslenzku. Einnig flutti hann tvö útvarpserindi frá stöð ríkis- háskólans í N. Dakota, hið fyrra í til- efni af afmæli lýðveldisins, en hið síðara um landnámsferðir norrænna nianna; auk þess, einnig á ensku, erindi um íslenzk skáld í Norður-Dakota á árs- fundi Félagsins til eflingar norrænum fræðum (The Society for the Advance- ment of Scandinavian Study) í August- ana College, Rock Island, Illinois, síðar a árinu þrjá fyrirlestra um íslenzk og norraen efni á þeim skóla, og endurtók Pá á Dana College, Blair, Nebraska, en haskólar þessir eru aðal æðri mennta- stofnanir Svía og Dana vestan hafs. í uafni félagsins hefir forseti einnig á ár- mu sent ýmsum félögum og einstakling- um bréflegar kveðjur; meðal annars sendi hann frú Hólmfríði Pétursson heillaóskir vorar í tilefni af áttræðis- afmæli hennar og þakkir fyrir marg- hattaðan stuðning hennar við málstað félagsins og starf, en öll erum vér jafn- framt minnug forystu manns hennar, dr. Rögnvaldar heitins Péturssonar, í þjóð- ræknismálum vorum og þessu félagi ára- fugum saman. Forseti hefir auk þess á hðnu ári birt ritgerðir um íslenzk efni 1 blöðum og tímaritum vestan hafs og austan, og á ensku í kanadískum og ameriskum tímaritum, sem og í amer- iska alfræðiritinu The World Book En- cyclopedia. Skal þá vikið að því, sem unnið hefir yerið að íslenzkukennslu og söngfræðslu a islenzku. Prófessor Haraldur Bessason hefir síðan í haust haldið áfram kvöld- uamskeiði í íslenzku fyrir fullorðna með sama fyrirkomulagi og í fyrra. Frú fl^lmfríður Danielson hefir einnig aftur 1 ar kennt nokkrum ungum stúlkum ís- lenzku í heimahúsum með góðum ár- angri. Af hálfu deildarinnar að Gimli er haldið áfram að kenna unglingum ís- lenzk ljóð og söngva. Unglingasöng- flokkur deildarinnar söng á íslendinga- deginum á Gimli í sumar, eins og þeir, sem á hann hlýddu, munu minnast með ánægju. Er þessi fræðslustarfsemi deild- arinnar hin athyglisverðasta og þakkar- verð að sama skapi. í sambandi við kennslu í íslenzku skal þess getið, að þau prófesssor Haraldur og frú Hólm- fríður hafa sem milliþinganefnd verið að leitast við að undirbúa hentugar lexí- ur til notkunar við kennsluna. Munu þau skýra þinginu frá árangri þeirrar viðleitni sinnar. Tengslin og samvinnumálin við ísland Hugur vor til ættlandsins er fagur- lega túlkaður í bréfi, sem Jóhann skáld Sigurjónsson, þá nýkominn til Kaup- mannahafnar, skrifaði Jóhannesi bróður sínum á Laxamýri haustið 1899, og prent- að er í síðasta jólahefti Lesbókar Morg- unblaðsins. Skáldið ávarpar bróður sinn í bréfsbyrjun með þessum orðum: „Hugur minn flýgur til fjallanna fögru og fossanna hvítu, en þótt fossar og fjöll laði huga minn heim yfir hafið, þá er þó annað, sem dregur hann meir, það eru vinirnir góðu heima á Fróni.“ Það er áreiðanlega þetta, sem um ann- að fram dregur huga vorn heim um haf; og ánægjulegt er það, hve margir úr vorum hópi gátu látið þann draum sinn rætast á síðastliðnu sumri. Það yrði of langt mál að telja þá alla upp, þótt verð- ugt væri, og verð ég því að láta mér nægja að minnast á þá, er fóru þangað sem sérstakir boðsgestir og í opinberum erindum. Nefni ég þá fyrst séra Eric H. Sigmar, forseta lúterska kirkjufélagsins, er fór til íslands í boði íslenzku þjóðkirkj- unnar sem fulltrúi kirkjufélags síns, til þess að vera viðstaddur og flytja kveðj- ur við vígslu hins nýja biskups íslands, herra Sigurbjarnar Einarssonar prófess- ors. Þáverandi biskup, dr. Ásmundur Guðmundsson, heiðursfélagi vor, hafði einnig, í nafni íslenzku ríkiskirkjunnar, sýnt Þjóðræknisfélaginu þá sæmd að bjóða forseta þess að vera viðstaddur biskupsvígsluna, en anna vegna gat hann eigi þegið það virðingarboð. Að beiðni hans og sameiginlegri ósk stjórn- arnefndarinnar, sýndi séra Eric félag- inu þá vinsemd að fiytja kveðjur þess við biskupsvígsluna. Skylt er jafnframt að geta þess, að varaforseta félags vors, séra Philip M. Pétursson, var einnig boðið að vera fulltrúi Hins Sameinaða Kirkjufélags fsl., nú „The Western Can- ada Unitarian Conference", við vígslu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.