Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1926, Blaðsíða 99
KRAFTAVERK OG ANDEEGAR EÆKNINGAR.
97
aðstoÖar, til þess að rneiri trygg-
ing fáist fyrir því, að tjón hljót-
ist ekki af, 0g einnig til þess meiri
vitneskja fáist um gagnsemi þess-
ara lækninga. Yerður fróðlegt að
frétta nánar af þeirri samvinnu
presta og lækna. Reynist þetta
vel, er enginn vafi á, að 'kirkjur í
öllum löndum taka upp hænalækn-
ingar.
Mér finst fyrir mitt leyti, að eg
vildi gjarnan vera í samvinnu við
trúaða presta um að lækna þá
taugaveiklunar- og .sefasjúklinga,
er ervitt gengur með upp á venju-
lega vísu. Það er viðkunnanlegra,
heldur en að hlaupa fram í Öxna-
fell til huldumanns.
VI.
Mér og öðrum læknum hér á
landi hefir verið álasað fyrir, að
vilja ekki gefa huldulækningum
meiri gaum, en vér gerum. Or-
sökin er auðvitað sú, að vér höf-
urn ekki getað fallið í stafi fyrir
neinurn lækningum, en hins vegar
reynt margar sögur afar-ýktar
eða ósannar. Og þó um furðuleg-
an bata virtist vera að ræða, þá
hefir hann aldrei verið furðulegri
en vér læknar sjáum livað eftir
annað sjálfir. í rauninni eru allar
lækningar að meira eða minna
leyti dulrænar, hvort sem er ibeitt
andlegum áhrifum, eða lyfjum og-
hníf.
Af því sem eg til þessa liefi
sjálfur séð og lesið, er niðurstaða
mín um kraftaverk andlegra lækna
yfirleitt sú, að þau eigi svipaða
■sögu að segja sem fyr. Árangur-
inn virðist vera hinri sami, hvort
sem er læknað með ákalli dýrð-
inga eða huldumanns eða fyrir
bænir til guðs eða skurðgoða eða
með hughrifum (suggestion eða
autosuggestion). Veldur hver á
lieldur og live traust sjúklingsins
er mikið. En ætíð er hætt við
blekkingu.
Það er áreiðanlegt, að í stöku
tilfellum geta andleg áhrif haft
snögg læknandi áhrif, en sjaldan
þó á alvarlega líkamlega sjúk-
dóma.
Það er trúlegt, að ákall huldu-
mannsins í Öxnafelli sé öldungis
eins affarasælt eins 0g voru á-
heitin á vora helgu biskupa fyrr-
um. Nú eins og þá getur viljað til,
að batni snögglega eftir ákallið, ef
svo heppilega vill til, að það komi
á réttum tíma, þ.e. þegar sjúkdóm-
urinn er í þann veginn að batna
snögglega af sjálfu sér, eins 0g á
sér stað u.m marga bráða sjúk-
dóma og suma geðveiklunarsjúk-
dóma. En .sama kemur þráfalt
fyrir lækna jafnt sem skottulækna,
að sjúkdómurinn sýnist batna af
gagnslausum lyf jum. Og nú, eins
og þá, getur ákallið haft sömu
andlegu áhrifin, að þau verða til
að flýta náttúrlegum bata, en í öllu
falli til að eyða hræðslu sjúklings-
ins, svo honum líður betur. En
sama á sér stað, oft, hjá oss lækn-
um, fyrir andleg áhrif okkar í sam-
bandi við gagnslítil lyf 0g aðgjörð-
ir—þó ekki sé verið að halda slíku
á lofti með auglýsingum 0g vott-
orðum.
Og nú, eins og þá, mun oft 0g
rnáske venjulega brenna við, að á-
kallið hafi engan minsta árangur.