Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 33
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011 33
Uppeldi og menntun
20. árgangur 2. hefti 2011
HrafnHildur v. kjartansdóttir
náMs- oG starfsráðGjöf Háskóla íslands
kristjana stella blöndal
félaGs- oG Mannvísindadeild Háskóla íslands
sif einarsdóttir
félaGs- oG Mannvísindadeild Háskóla íslands
„Bara ef maður hefði sett meiri
kraft í þetta“
Aðdragandi og afleiðingar síðbúins brotthvarfs úr háskólanámi
Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í reynslu einstaklinga sem hurfu frá
háskólanámi sem þeir voru vel á veg komnir með að ljúka . Rannsóknin er byggð á viðtölum
við sjö einstaklinga sem hurfu frá námi úr félags- eða hugvísindum við Háskóla Íslands .
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þó að þessir einstaklingar hafi verið ánægðir
í námi og náð ágætum árangri hafi námsval þeirra verið lítt ígrundað og þeir hafi ekki haft
skýr markmið með náminu . Þeir áttu erfitt með að skipuleggja tíma sinn og vinnu í námi,
fannst þeir ekki fá nægilegar leiðbeiningar innan skólans um BA-ritgerðarskrif og tókst ekki
að samræma ritgerðarskrifin starfi og öðrum hlutverkum í lífinu . Þeir voru ósáttir við að
hafa ekki lokið háskólanáminu þótt þeir teldu það ekki skipta sköpum fyrir núverandi starf
að ljúka því . Þeir töldu að háskólagráða gæti styrkt stöðu þeirra á vinnumarkaði og aukið
möguleika þeirra á frekara námi . Fyrst og fremst töldu þeir það þó mikilvægan persónulegan
ávinning að ljúka náminu . Niðurstöðurnar varpa skýrara ljósi á það ferli sem leitt getur til
síðbúins brotthvarfs úr námi og geta nýst til þess að vinna gegn brotthvarfi úr háskólanámi .
Efnisorð: Brotthvarf, háskólanemar, námsval, náms- og starfsferill, náms- og
starfsráðgjöf
inn gang ur
Menntun er mikilvæg í nútímasamfélagi þar sem miklar kröfur eru gerðar um þekk-
ingu, hæfni og sveigjanleika fólks í síbreytilegu starfsumhverfi. Hún gerir fólki einnig
kleift að eflast og þroskast og ná markmiðum sínum í námi og starfi (Savickas, 2005).
Haustið 2010 voru rétt tæplega 20 þúsund nemendur á háskólastigi á Íslandi en brott-
hvarf úr háskólanámi hér á landi er mikið (Hagstofa Íslands, 2004, 2011). Þó ekki séu
fyrir hendi nákvæmar upplýsingar um umfang þess hefur það mælst allt að 57% á