Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Blaðsíða 104

Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Blaðsíða 104
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011104 „mín köllUn er að hJálpa og reyna að láta gott af mér leiða“ fjölmörgum innan- og utanlandsverkefnum Rauða krossins, m.a. Vinalínunni, vinaneti og söfnunarstjórn vegna verkefna innanlands og utan, ásamt stjórnarsetu. Þá hafi hann í framhaldsskóla byrjað sem sjálfboðaliði innan skátahreyfingarinnar og orðið þar foringi. Gunnar segist hafa verið vinafár á unglingsárum, en hann hafi eignast stóran vinahóp bæði í starfi Rauða krossins og skátastarfinu. Helga segist vera ákaflega félagslynd: „Ég er svona manneskjan sem var alltaf ein- hvers staðar að gera eitthvað … í nemendaráði, árshátíðarnefnd, árbókarnefnd og öllu þessu. Það var bara hnippt í mig og ég sagði bara allt í lagi.“ Hún fór í ungmennaráð og Reykjavíkurráð og hefur tekið þátt í félags- og stefnumótunarstarfi ungs fólks á vegum Reykjavíkurborgar. Helga segir sjálfboðaliðaþátttöku „ástríð[u]“ hjá sér „þótt maður sé ekki endilega að vinna í þessu [þá stundina] þá er maður voðalega mikið að pæla í þessu og alltaf eitthvað að hugsa um þetta“. Tinna segist hafa kynnst æskulýðsfélagi kirkjunnar í tengslum við sjálfboðaliða- störf móður sinnar í kirkjunni: „Ég er náttúrulega búin að vera í kirkju síðan ég var eins árs eða eitthvað.“ Síðar hafi hún unnið sem leiðbeinandi í sjálfboðaliðastarfi fyrir æskulýðsfélagið: „Ég var búin að vera svo lengi í æskulýðsfélaginu og þar er svo skemmtilegt og skemmtilegt fólk … Við erum að vinna fyrir börn í útlöndum og leysa þrælabörn á Indlandi og svona.“ Auk þess starfar Tinna í kirkjuhljómsveit sem spilar reglulega til að safna fé fyrir hjálparstarf kirkjunnar. Sjálfboðaliðastarfið í æskulýðs- félaginu hafi einnig gefið henni tækifæri til að taka þátt í ýmsum verkefnum: „Ég var til dæmis fyrir jólin í Mæðrastyrksnefnd við að úthluta matarpökkum.“ Skúli hóf störf sem sjálfboðaliði í æskulýðsstarfi kirkjunnar 12 ára: „Ég var ekki alveg með það á hreinu hvað þetta var fyrst þegar ég fór í þetta“ en segist „feginn … það er snilld að vera í þessu“. Hann hafi viljað „kynnast fleirum og styrkja [s]ig félags- lega“. Þetta hafi byrjað „á því að við fórum fyrst í kirkjuna út af fermingunni“. Það hafi verið boðið upp á þátttöku í „hljómsveit og við strákarnir fórum og ætluðum bara að hafa gaman af þessu en svo fór þetta út í alvarlega hluti [hjálparsöfnun fyrir fátæk börn á Indlandi]“. Skúli hefur einnig setið í nemendaráði, nemendaráðgjöf og tekið þátt í sjálfboðaliðastarfi í félagsmiðstöðinni í skólanum sínum. Hann segist hafa byrjað í sjálfboðaliðastarfi fyrir hvatningu frá systur sinni og vinkonu hennar og „mamma hefur oft sagt að ég skuli fara í þetta allt … Ég er ekki í íþróttum eða einhverju svo- leiðis … þannig að hún vildi hvetja mig til að finna mér minn farveg“. Eins og sjá má nefna ungmennin ýmis sjálfboðaliðastörf og margvíslegar ástæður fyrir áhuga sínum á þátttöku í sjálfboðaliðastarfi. Flest nefna hvatningu úr umhverfinu: heima fyrir (Skúli, Tinna), vinar (Ari), félaga (Helga) og jafnvel heimabyggðar (Gunnar). Eigin lífsreynsla virðist líka hafa skipt máli. Piltarnir áttu það til dæmis sameiginlegt að leita eftir félagsskap og vilja styrkja sig félagslega, en þeir höfðu m.a. upplifað einelti, annaðhvort náins ættingja eða á eigin skinni. Málefnin sem unnið er að skipta þau einnig máli og þau vilja gefa af sér. Afraksturinn nær bæði til nærsamfélagsins (öll) og fjærsamfélagsins (Ari, Gunnar, Skúli, Tinna). Hjá öllum ungmennunum kemur fram að með þátttöku í sjálfboðaliðastarfinu virðist áhugi þeirra aukast samfara skýrari markmiðum og sterkari hugsjónum eins og sjá má hér á eftir í umfjöllun um markmið þeirra og gildi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.