Árbók VFÍ/TFÍ - 01.01.1997, Blaðsíða 32
30 Árbók VFÍ/TFÍ 1995/96
Verkei'ni Orðanefndar er að semja heilsteypt íðorðakerfi fyrir hverja grein byggingarverk-
fræðinnar, svo að ræða megi og rita um hana á fullgildri íslensku og af þeirri fræðilegu ná-
kvæmni sem við hæfi er.
Einingar íðorðakerfis eru hugtökin sem fræðigrein byggist á. Iðorðasafn nefndarinnar er
því safn íslenskra skilgreininga á hugtökum ásamt íslenskum íðorðum um þau og samsvar-
andi íðorðum á fjórum eða fimm erlendum tungum. Mestur tími í starfinu fer í að semja skil-
greiningarnar. Þær þurfa að vera stuttar, fræðilega réttar og á auðskildu máli. I skilgreining-
unum þarf jafnan að nota mörg orð úr undirstöðugreinum verkfræðinnar. Það er til mikils
trafala í starfi Orðanefndar hve mjög skortir skilgreiningar og íslensk íðorð í undirstöðugrein-
unum. Nefndin þarf því oft að fara út fyrir eiginlegt verksvið sitt og bæta við orðum úr undir-
stöðugreinum í orðasafn sitt. Leitar hún tíðum aðstoðar annarra fagmanna, einkum háskóla-
kennara. í þessu starfi ber mjög á því hve tungutak íslenskunnar er lítt þróað á sviði tækni og
raunvísinda. Nefndin leggur mikla vinnu í að ganga svo frá skilgreiningum að þær geti verið
til fyrirmyndar í notkun tungunnar.
Nefndin leitast við að leysa verk sitt af hendi í samræmi við þá íðorðafræði (termínó-
lógíu), sem hefur verið að þróast í öðrum löndum á undanförnum árum, og í samræmi við
leiðbeiningar Alþjóðlegu staðlastofnunarinnar (ISO) um það efni.
Árið 1995 störfuðu eftirtaldir 12 verkfræðingar í nefndinni:
Bragi Þorsteinsson, Verkfr.st. Braga og Eyvindar
Einar B. Pálsson, Verkfræðist. Háskóla íslands
Eymundur Runólfsson, Vegagerð ríkisins
Gísli Valdimarsson, Gatnamálastj.í Reykjavík
Halldór Sveinsson, verkfræðingur
Hjörtur Þráinsson, Verkfræðist. Háskóla íslands
Jens Bjarnason, Flugmálastjórn
Olafur Jensson, verkfræðingur
Páll Flygenring, verkfræðingur
Ragnar Sigbjörnsson, Háskóla íslands
Signtundur Freysteinsson, Landsv.
Sigurður Erlingsson, Háskóla íslands
Formaður nefndarinnar er Einar B. Pálsson. Hann hefur vinnuaðstöðu í húsi Verkfræði-
deildar og Raunvísindadeildar Háskóla íslands, þar sem bókasafn deildanna er. Orðanefndin
nýtur aðstoðar málfræðings, sem íslensk málnefnd leggur henni til, en það er dr. Halldór Hall-
dórsson prófessor. Hann situr alla fundi nefndarinnar og undirbýr einnig ntál milli funda
ásamt formanni. Auk nefndarmanna komu ýmsir aðrir sérfræðingar og gestir á fundi, sumir
til þess að kynnast vinnutilhögun nefndarinnar.
Árið 1995 veitti Málræktarsjóður Byggingarverkfræðideild Verkfræðingafélagsins styrk,
1.200 000 kr., vegna íðorðastarfsins. Það er í fyrsta sinn sem slíkt hefur gerst.
Verður nú getið starfa hvors vinnuhóps um sig á árinu 1995.
Vinnuhópur A: I honunt voru Bragi Þorsteinsson, Einar B. Pálsson, Eymundur Runólfsson,
Gísli Valdimarsson, Halldór Sveinsson, Ólafur Jensson, Páll Flygenring og Sigmundur Frey-
steinsson.
Fundir voru haldnir reglulega einu sinni í viku, síðdegis á þriðjudögum, nema unr há-
sumarið. Þeir voru haldnir í húsakynnum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Enn sem fyrr
á Orðanefnd Landsvirkjun þökk að gjalda fyrir gestrisni.
Vinnuhópurinn hélt 36 fundi á árinu 1995. Á þeim var fjallað um hugtök er varða fráveitur
og umhverfismál, alls um 260 hugtök. Einar B. Pálsson hefur annast undirbúning þessa safns
frá upphafi, 1982, en í ársbyrjun 1993 gekk Ólafur Jensson til liðs við hann og hefur unnið að