Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 7

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 7
NÝJAR KVÖLDÖVKUR. 85 hafði verið þar daginn áður. Á honum sióð mynd, hjúpuð dökkum dúk. Petta var svo vanalegt, að Karl gaf því eng- an frekari 'gaum. Eftir stundarkorn sneri háskólakennarinn sjer að elSta nemandanum og mælti: »Hr. F., hafið þjer heyrt söguna um þræl Múrillos ?« »Já, háskólakennarinn hefir sagt okkur hana.« »Jæja, jeg hefi þá gleymt því., Mjer kom hún til hugar út af nýjum atburði, sem jeg heyrði getið um á sviði listanna.* ■»Ef til vill eitthvað í sömu grein?« spurði F. »Já, þið kannist tnáske við söguna um það, hvernig Friðrik mikli fór með Voltaire og eitt kvæða hans?« »Já, hnnn Ijet mann; sem gæddur var af- bragðs minni fela sig bak við tjald, og hlýða á meðan Voltaire las upp kvæðið upp fyrir kon- unginn. Pá er því var lokið lýsti konungur því yfir, að kvæðið væri ekki eftir Voltaire, hann kvaðst hafa heyrt það af muni höfundarins dag- inn áður. Voltaire varð forviða og fullyrti að hann hefði einmitt ort kvæðið daginn áður, og að skoðun konungs gæti eigi verið rjett. Frið- rik gekk þá inn í herbergið og kom aftur með manninn, sem Ia§ kvæðið upp orðrjett Voltaire til mikillar undrunar.« »Svipuð þessari sögu er hin, sem jeg ætla að segja ykkur,« mælti háskólakennárinn og leit á Karl. »Ágætur'myndhöggvari nokkur hafði tekið til náms svein einn, sem gæddur var góðri dráttlistargáfu. Hann hafði ákveðið að dreng- urinn yrði dugandi starfsmaður í heimi listar- innar, en haldið að hann gæti eigi orðið sann- ur listamaður, því að myndhöggvarinn haíði andstygð á öllum miðlungs listamönnum. Alt gekk að óskum. Sveinninn varð dugandf mynd- amótari, og þótt hann stundum ljeti í ljósi þá ósk sína, að verða listamaður, þá vildi mynd- höggvarinn eigi láta það eftir honum; þar eð hann hugði, að hann myndi eigi sæma á því sviði. Hann áleit þessa háfleygu þrá sveinsins hjegómagirni án satnsfáfaodi ba?íileika. Eitt sinn sögðu mcnn myndhöggvaranutn frá að að sveinninn tæki eftirmyndir af likneskjum hans, og seldi þær síðan sér til'hagnaðar. Sagt var *að margar slíkar eftirmyndir væru faldar í herbergi hans. Dag einn er sveinninn var eigi heima fór myndhöggvarinn inn í herbergi hans, og hvað haldið þið að hann hafi fundið? Hann finnur hulda í herberginu . mynd sann- fagra. Hún var alls eigi stæling af verki mynd- höggvarahs en frumlegt verk ungmennisins. Hann hafði unnið að því í kyrþey. Pessi leyni- vinna verðskuldaði hegningu og myndhöggvar- inn mintist sögunnar um Voltaire. Hann gerði dráttmynd af höggmyndinni og sýndi ykkur hana í gær, sem frunrmynd nýrrar hugsjónar. Pað myndi máske skemta, yður herrar mínir, að sjá frummyndina, sem dráttmyndin var gerð eftir.« Háskólakennarinn svifti dúknum burt af mynd- inni. Höggmynd Karls stóð þar á gólfinu. »Hugsjónin og leirmyndin eru verk Karls Gústavsons,« mælti háskólakennarinn og jeg hugsa, herrar mínir, að þið verðið að skipa hinum unga manni sess í myndasíofunni. Hvað andríki snertir, þá er hann kennifaðir ykkar. Framvegis heggur hann f marmara. »Sje maður fæddur örn,« sagði háskólakenn- arinn og lagði áherslu á orðin, þá á rnaður eigi að ^fvelja meðal spörfuglanna. Eg vona að Gústavson verði sannur eítirmaður minn í ríki listarinnar, þá er jeg legg frá mjer meitil- inn.« . . Karl varð svo hrærður, að hann ætlaði að varpa sjer að fótum háskólakennarans, en Schneider varnaði því með þessum orðum: »Engan barnaskap. Jeg hefi aðeins bieytt rjeltlátlega við Gústavson, og vona, að sá, sem ann listinni án allrar eigingirni eins og hann, verði síðar frægur listamaður. Hann hættir nú að starfa í vinnustofunni, en leggur framvegis stund á að þroska listagáfu sína, en aflar sér tekna með þvi að fullgera dráttmyndirnar að ritverki mínu. Hann er best hæfur til þess.« Háshólakennarinn gekk skjótlega burt úr myndastofunni og allir tóku tii starfa, {

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.