Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Side 10

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Side 10
88 NYJAR KVÖLDVÖKUR. eigi sjerléga hýr á svip yfir þessum óvænta fundi. Háskólakennaranum var einnig órótt innan brjósts. »Er ungfrú Ahrnell heima?« spurði hann. Karl_ veik til hliðar og frammi fyrir háskóla- kennaranum stóð ung, íturvaxin stúlka, fríð sýnum, svo fríð, að háskólakennarann virtist furða á. Hann hneigði sig djúpt fyrir hinni fögru mær og. nefndi nafn sitt; en þess þurfti eigi, því að Gerða hafði sjeð hann forðum, þá er hún vann að sautnum fyrir Editb. Hann lýsti ánægju sinni yfir afrituninni og hitnaði þá Gerðu um hjartarætur. Hún hugsaði að eins um það, að hún stæði frammi fyrir föð- ur Richards, en jafnaði sig þó brátt og benli á Marianne og mælti: »Móðir mín.« Schneider talaði nokkrum vinarorðum til hennar, sneri sjer s ðan að Gerðu og kvaðst vera kominn til þess að spyrja um, hvort hún vildi takast á hendur að afskrifa annað rit. Væri það erfiðara verk en áður, en einnig betri laun í boði. Meðan hann var að skýra frá þessu, varð honum litið á dráttmynd, sem lá á borðinu. Pað var blýantsmynd, sem dregin var eftir Ijós- mynd af frú Ahrnell. Háskólakennarinn hætti talinu til þess að spyrja, hver hefði dregið þessa mynd. .Gerða stokkroðnaði og sagði, að hún hefði gert það. Listamanninum fanst .nú enn meir til um stúlkuna. Hann athugaði myndina gaumgæfi- lega, undraðist hve hún var lík og spurði toks, hver hefði kent henni. Hún nefndi Karl. »Sá, sern gæddur er slíkum gáfum,* míelti háskólakennarinn, »á alís eigi að eyða tíman- um í að sauma og afrita. Rjer getið orðið góður myndamálari,* bætti hann við, »og þjer eigið að leggja kapp á slíkt nám.« »Jeg get að eins varið litlum tíma til þess,« mælti Gerða. »Jeg lifi að eins af vinnu minni.« Háskólakennarinn bað um að fá að sjá nokkr- ar myndir henuar; hann gagnrýndi þær og gaf henni ýms holl ráð og bendingar. Meðan þáskólskennarinn dvaldi hafði Karl staðið við hliðina á legubekknum, sem frú Ahrnell hvíldi í. Hann hafði eigi tekið neinn þátt í samræðunum. Hann hugði, að Gerðu gæti orðið það happadrjúgt, ef háskólakennar- inn yrði listgáfu hennar var. Loksins kvaddi háskólakennarinn. Kvaðst hann mundi koma aftur og reyna að stuðla að þroska lístgáfu Gerðu með hollum ráðum. Hann sneri sjer að Karli og mælti: »Verður þú samferða, Gústayson?« Karl sagðíst ætia að teikna með Gerðu og varð kyr. Pá er tilsögnínni var lokið, dvaldi hann enn stundarkorn, og spurði Gerðu loksins, hvort hún færi út daginn eftir. Gerða ætlaði til Kon- ungshólmsins og Karl mæltist til, að mega fylgja heuni. Hann ætlaði að koma og sækja hana klukkan 5 síðdegis. Henni heyrðist það á málrómi hans, að hann þyrfti að skýra henni frá einhverju sjerstöku. Hún veitti honum bæn hans og þau skildu. Klukkan 5 daginn eftir gekk Karl inn í íbúð frú Ahrnells. Gerða var ferðbúin. Pau Karl kvöddu Marianne og lögðu af stað. Gerða var hýr og ánægjuleg, Karl alvarlegur, nærri raunalegur. Hann var þögull og fálátur fram- an af, svo Gerðu varð hálfgramt í geði. »þaunig mundi Richard eigi hafa verið,« hugsaði hún, og hún stundi sáran, er hún hugsaði til ástvinarins ógleymanlega. »Rjer andvarpið, ungfrú Ahrnell,« mælti Karl,. »og mig furðar eigi ájrví. Yður finst jeg sjáifsagt- leiðinlegur og þó vil jeg eigi vera svo, en jeg er svo sárhryggur.« »Hefir eitthvað ógeðfelt borið yður að hönd- um?« spurði Gerða í meðaumkvunarróm. »Eigi er það, en svo virðist, sem jeg sje yður til óþæginda,* mælti Karl dapur í bragði. »Mjer?« sagði Gerða undrandi. »F*jer hafið verið mjer huggari í sorginni, hjáfpari í neyð- inni og frelsað mig, þá er örvænt var um alt. Hvernig niundi okkur mömmu hafa farnast, ef þjer hefðuð .eigi stutt okkur?«

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.