Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Qupperneq 18

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Qupperneq 18
96 NVJAR KVÖLDVÖKUR. setn sýndi henni nokkra samúð síðan Karl veiktist. Níels var vanur að koma á hverju kvöldi til þess að vita um frú Ahrnell og segja Gerðu hvernig Karli liði. Það var á laugardagskvöld að Gerða ræddi við Níels utn það, hve sárt sig tæki að þurfa að koma móður sinni á sjúkrahús. Gerða grjet sáran yfir því, að hin raunamædda Mari- anne skyldi eigi fá að deyja í heimkynni sínu. »Hefir ungfrúin talað um það við lækninn?« spurði Níels. »Nei, það hefi jeg eigi gert, þar eð jeg hefi viljað kornast hjá því í lengsíu lög, að aumingja mamma yrði flutt burt.c »Þá getum við ef til vill frestað því enn um stundarsakir,* sagði Níels vandræðalegur á svip, »og ef ungfrúnni er það eigi á móti skapi, þá gæti jeg máske hjálpað yður. Jeg get lánað yður 25 ríkisdali í bráð, og svo held jeg, að jeg geii útvegað yður aívinnu. Ef frú Sjöberg fær dálítið hærri laun, þá hjálp- ar hún til að hjúkra sjúklingnum, og þá þurfið þjer kanske éigi að senda móður yðar á sjúkra- húsið. Þjer getið tekið við þessum peningum; þeir eru vel fengnir. Þegar Karli og frúnni er batnað, gerið þjer mjer þá ánægju, að koma í brúðkaup okkar Lovísu.* Nú tók að vænkast ráð þeirra mæðgna að nýju. Gerða fjekk nóg að starfa og lán það, sem Níels Ijet henni í tje, gerði henni fært að sjá fyrir og annast uin sjúklinginn. Karl var nú orðinn heilbrigður, og seinast f mai fjekk hann að fara af sjúkrahúsinu. Dvaldi hann í fyrstu nokkrar vikur hjá bróður sínum meðan hann mátti eigi vinna. Hann lagði af stað til Gerðu jafnskjótt og kraftar hans leyfðu- Það var á sunnudagsmorgni. Kirkjuklukk- urnar höfðu nýhringt til tíða, þá er Karl lauk upp dyrunum að‘ bústað þeim, þar sem hann hafði verið svo hamingjusamur og þar sem svo margar þungar þrautir höfðu þjakað síðan hann hafði komið þangað. Dauðaþögn ríkti þar inni, þá er hann steig inn. Hann stóð sem steini iostinn stundar- korn og starði á þá sjón, er birtist augum hans. í rúminu hvildi Marianne hræringarlaus, köld og föl; dauðinn hafði þrýst kossi sínum á varir hennar. Á gólfinu fyrir framan rúmið lá Gerða, hræringarlaus sem móðir hennar. Hún virtist hafa hnigið niður meðvitundarlaus og tekið síðasfa andvarpið jafnhliða henni, sem fætt hafði hana til lífsins. Þá er Karl hafði með skelfingu virt þessa sjón fyrir sjer stundarkorn, hljóp hann til Gerðu, varpaði sjer á hnje við hlið hennar og fór að reyna til að vekja hana til meðvitund- ar. Loks kom hún til sjálfrar sín “aftur og andvarpaði sáran. Hún leit fyrst á Karl, síðan á hið bleika andlit móður sinnar og tárin hrundu niður kinnar hennar. Við dveljum eigi við atburði þá, sem á eftir fóru. Sorg þeirri og gleði, sem sprottin er frá insta grunni hjartans, verður eigi með orðum lýst. Tveim dögum eftir lát Marianne kom Karl aftur á myndastofuna eftir tveggja mánaða burtveru. Starfsbræður hans buðu hann hjart- anlega velkominn. Af hinni fölu og mögru ásýnd hans og hinum raunalega svip var auð- sætt, að þungar þrautir höfðu þjakað honum. Honum var sagt, að háskólakennarinn hefði ferðast til Kaupmannahafnar, en hefði komið heim kvöldið áður og fyrst spurt um Karl. Það hafði glatt hann mjög að heyra, að Karl væri kominn af sjúkrahúsinu. Hann hafði einn- ig látið á sjer skilja, að hann hefði harmað það mjög, ef þessi bráðefnilegi listamaður hefði dáið í blóma aldurs síns. »Svo virtist,« mælfi H., hinn elsti lærisvein- anna, »að hann hefði einhverja gleðifregn að færa þjer. Hann hefir kanske útvegað þjer ferðastyrk.« Karl fjekk eigi ráðrúm til að svara, því að háskólakénnarinn kom inn. Hann hneigði sig fyrir lærisvéinunum og gekk rakleitt til Karls. »En hvað þjer eruð hræðilegur ásýndum, kæri Gústavson. Ætla mætti, að þjer hefðuð bæði verið dáinn og grafinn,* mælti háskóla- kennarinn. >Jeg held, að loftið hjerna á myndastofunni sje eigi mjög holt fyrir yður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.