Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Blaðsíða 24
102 NÝJAR KVÖLjDVÖKUR. að minna íbúðarhúsinu. Á litla gangriðinu sat roskin kona að saumum. Hún leit endur og sinnum á aðkomumanninn, sem nálgaðist hana. »Býr ungfrú Ahrell hjer?« spurði hann og var auðheyrt á málrómi hans, að hann var ó- vanur að tala sænsku. »Já,« mælti gamla konan og Ieit á komu- mann gegn um gleraugun; »en sem stendur er hún hjá nábúakonu sinni, ekkjufrú Schneider.* »Gæti jeg eigi fengið að tala nokkur orð við hana? Jeg er útlendingur og hefi áríðandj mál að segja henni.« Konan, sem komið hafði auga á heiðurs- merkið, stóð þegar á fætur og bað komumann að ganga inn, meðan hún sækti ungfrúna. Hún fór með hann inn í lítinn sal, bauð honum til sætis í hægindastól og fór síðan. Þessi gamla kona var frú Birgitta Sjöberg. Komumaðurinn með heiðursmerkið er kunn- ingi okkar frá eimskipinu; hann settist eigi nið- ur, en gekk út að glugganum og staðnæmdist þar, Hann virtist bíða með óþreiju eftir því að hitta Gerðu. Dyrnar lukust upp. Aðkomumaður tók allur að nötra ákaft. Stundarkorn leið án þess hann áræddi að snúa sjer við. Loks gerði hann það. Gerða hafði staðnaemst við dyrnar. Henni virtist hafa orðið svo órótt innan brjósts, er hún sá komumann, að hún gat eigi hrært sig úr stað. »Richard!« hrópaði hún loks og rjetti fram hendurnar, en ljet þær undir eins hníga niður — Hann var kvæntur. »Já, Richard, sem kominn er til þes9 að spyrja, hvort Gerða muni heit sitt, aldrei að gleyraa honum,« mælti ungi maðurinn,' gekk til Gerðu, greip báðar hendur hennar og þrýsti þær. »Manstu hin helgu heit þín? Ó, Gerða. hversu miklar þrautir hefir þú ekki bakað mjer' Hvíjiefir þú brugðist mjer eins og raun er á orðin?« »Jeg heíi eigi brugðist; get ekki svikið neinn, síst af öllú þig,« svaraði Gerða. »Ef jeg hefði getað það, Richard,fstæði jeg e<gi óháð frammi fyrir þjer. En hjarta mitt gat eigi brugðist ást- vini sínum.« »Hefir bjarta mitt gert það?« hrópaði Ric- hard heitur. »Hefi jeg máð mynd þína úr liuga mínum? Rú varst fyrsta — einasta ástin mín — þrátt fyrir allar þjáningarnar, sem þú hefir bak- að mjer. Pú hefir gert mig að köldum, dramb- sömum sjergæðing, sem að eins á eina tilfinn- ingu ólamaða: ástina til þín.« »Richard, þú gleymir, að þú hefir heitið annari konu ást þinni og trygð.« »Heldurðu jeg stæði þá frammi fyrir þjer og krefði þig til sagna um breytni þína? Held- urðu hinar drambsömu varir mínar mæltu ást- arorð til þín, ef að jeg væri heitbundinn ann- ari konu? Nei, dauðinn hefir leyst þau bönd, sem gremjan yfir breytni þinni kom mjer til að hnýta; og í dag stend jeg frammi fyrir þjer, Gerða, til þess með fullum rjetti að heimta af þjer skýringu, og jeg veit að þú getur ekki neitað mjer um hana.« »F*að vil jeg heldnr eigi,« svaraði Gerða með ástúðlegu brosi. Hún dró hann með sjer að einum legubekknum; þar settist hann við hlið hennar og hlýddi- á frásögn hennar. Gerða sagði honum frá, að hún hefði sjeð föður sinn á Englandi og einnig komist að því, að sá Ijóður væri á ráði hans, sem skildi þau Richard að fullu. Hún hefði ákveðið að leggja heldur sjálfa sig í sölurnar, en baka Richard þá smán, sem líklegt var að lenda myndi á henni. Hún mintist einnig örbirgðar og ógæfu foreldra sinna, og vildi eigi verða sök á því að Richard sætti sömu örlögum og faðir henn- ar. Hún ætlaði að segja Richard alt -þetta seinast er þau fundust, ef hann hefði eigi farið svo skyndilega. Hún hafði ritað þetta í brjefið, sem hún skyldi honum eftir, þá er hún fór frá Englandi. Hún hafði vonast eftir svari, en áraug- urslaust. Loks hafði hún fengið þá fregn, að hann ætlaði að kvongast Milly. »En, Gerða, jeg fjekk aldrei brjef frá þjer,« mælti Richard. sRú inanst víst vel eftir síðasta samtali okkar, og að jeg fór burt í ákaflega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.