Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Side 32

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Side 32
110 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ofan í sig, á nú skrautlegt hús, og er velmeg- andi handiðnamaður. Án starfs og iðjusemi er engin blessun, þótt maður sje góðum gáfum gæddur.* Karl var nú kominn upp og hringdi. Fóta- tak heyrðist inni. Hjartað tók að slá hraðar í brjósti Karls, er hann hugsaði til þess, að á næsta augnabliki stæði hann augliti til auglitis við Níels, sem mundi eiga bágt með að þekkja, að þessi skeggjaði maður væri Karl. Dyrnar lukust upp. En það var eigi Níels, sem opnaði þær, en maður nokkur dökkleitur með flöktandi augnaráði. Karli fanst hann þekkja þennan mann, en kom honum þó eigi fyrir sig. »Er Gústavson heima?« spurði Karl. Maðurinn svaraði engu, en benti honum að ganga inn. Úr anddyrinu kom Karl inn í rúmgóða stofu, og stóð þar morgunvérður á borðum. Við borðið sat maður, sem sneri baki að komu- manni. »Þetta er Níels,« hugsaði Karl. Maðurinn leit við. Rað var Níels, sem nú var rúmlega fertugur, með sama vingjarnlega og ráðvendislega svipinn og broshýru augun. Augnablik stóðu bræðurnir þögulir. Níels leit rannsakandi augum á komumann, síðan fleygði hann hnífnum og brauðinu frá sjer, og hrópaði: »Er það, sem mjer sýnist? Er þetta eigi Karl?« Og bræðurnir heilsuðust nú ástúðlega og fjellust í faðma. »Lovísa! Karl! Anna!« hrópaði Níels, þá er þeir höfðu heilsast, »hraðið ykkur, þið vitið eigi hve kærkominn gest jeg hefi fengið. Flýtið ykkur. Nú verður hjer glatt á hjalla.« Lovísa kom inn í herbergið, með henni kom fimm ára piltur og þriggja ára stúlka. Lovísa var kona um þrítugt; hugró ogánægju mátti lesa úr svip hennar. Hún heilsaði Karli hjartanlega. Níels og Lovísa voru glöð, hamingjusöm og hreykin yfir því að hafa hinn fræga lista- mann á heimili sínu. Níels fagnaði, og reyndi að gera börnum sínum það skiljanlegt, að þessi frændi væri eigi neinn hversdags frændi. Hann væri fyrst og fremst bróðir Níelsar og auk þess mikilmenni. Lovísa brosti og var hamingjusöm, er hún sá gleði manns síns. Karl átti að borða morgunverð og fagna átti heimkomu hans með víndrykkju. Rá er lokið var snæðing, var farið með Karl inn í næsta herbergi. Par átti að skrafa og skeggræða í næði. Níels spurði Karl margs um það, með hvaða hætti hann hefði orðið slíkur maður, sem raun var á orðin og sem blöðin töldu föðurlandi hans heiður að, að telja meðal sona sinna. Auk þess ætlaði hann að spyrja Karl margs úr utanför hans, en hann sagði að það yrði að bíða betri tíma; kvaðst hann vilja fá fregn- ir af ýmsu heima fyrir. Fyrst vildi hann frjetta eitthvað um Stínu. »Eigi er margt af henni að segja,« mælti Níels; »hún býr með gamalli konu, sem er ámóta illlynd og hún sjálf. Hún kemur aldrei til mín. Hún var svo raussöm fyrsta árið eftir að jeg giftist, að jeg bannaði henni að stfga inn fyrir þrepskjöld minn. Jeg heimsæki hana einu sinni viku hverja, og geri jeg það aðeins, af því að jeg hefi lofað foreldrum mínum því: það er mjer hreinasta kvalræði að sjá hana og heyra. Nú hefir hún til allrar ógæfu náð í einn af starfsmönnum mínum, sem er dálítið rugl- aður, og jeg er hræddur um að hún spilli honum og geri hann alveg frávita. En hvert er Sjökvist farinn? í gleði minni hefi jeg alveg gleymt honum.« Hann beindi þessum orðum að Lovísu. Hún hafði eigi heldur hugsað neitt um Sjökvist, en minti að hann hefði farið fram til að Ijúka upp, þá er hringt var. Karl sagði, að sá mað- ur hefði farið leiðar sinnar. Níels varð ögn dapur í bragði, en hætti þó brátt að hugsa um Sjökvist og hjelt áfram samræðunum

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.