Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 53

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1921, Page 53
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 131 ferðamaðurinn rumdi skrítilega og horfði í gauptiir sjer. Hann virtist íhuga eitthvað eitt augnablik, svo stökk hann á fætur og hrópaði nærri því hranalega: »Bob! — Will! — Af stað, áfram, annars komumst við ekki þangað fyr en tunglið sýnir sig. Reynið að hypja ykkur, drengir! Ef yður er það ekki ógeðfelt, herra, verðum við samferða.« Jeg stóð á fætur. Drengirnir settu dráttaról- arnar um axlir sjer og gripu um vagnstöngina. Við lölluðum á eftir í hægðum okkar. Eins og samferðamaður minn hafði sagt, komum við úr dalnum fram á víða völlu, grasivaxna og rennsljetta Við fórum þvert yfir þá og vor- um hálfnaðir, þegar drengirnir stönsuðu alt í einu. Við nálguðumst smám saman, og þegar við komum til þeirra, lá Bob á jörðinni, en Will sat á vagnstönginni. »Nú, nú, hvað á þetta að þýða, hvað er að ykkur? Hvers vegna haldið þið ekki áfram?« spurði faðirinn alvarlegur, en vingjarnlega. »Af því við gátum ekki meira!« svaraði Bob þurlega og hálf þrjóskulega, en bróðir hans leit til hans sefandi augnaráði. »Hó, hó, drengur minnf segir þú það? Á fætur í snatri! Grípið stöngina, og af stað á mínútunni!« »Já,« svaraði Bob reiðilega, »þú getur djarft úr flokki talað! Pú labbar í hægðum þínum á eftir og lætur vesalings veikbygða drengi þína draga alt hlassið. Fjandinn hafi þennan vagn! Pú gætir líka gert bæði þjer og okkur þetta Ijettara, ef þú keyptir hestskrifli eða hunda, því þessi hundavinna er ekki hæf mönnum — því siður börnum.« »Svona ér það!« kallaði faðirinn og leit á mig alvarlega, en alls ekki óvingjarnlega. »Pessi piltur er Iifandi eftirmynd móður sinn- ar! Hún vildi líka konia sínu fram, meðan hún lifði — guð blessi hana í gröf sinni — hann líkist henni bæði í orðum og æði, og það vill honum til núna, annars færi illa fyrir honum, Ert þú líka þreyttur, Will?« »Nei — jeg hangi sennilega!« svaraði Will hikandi og laut höfði í því hann roðnaði, og mátti sjá á honum, að hann var engu síður þreyttur en bróðir hans. »Já, nú þegir hann,« hrópaði Bob, »en áð- an sagði hann, að hann kæmist ekki lengra.* »Drengirnir eru sannarlega þreyttir,* sagði jeg til að stilla til friðar, »því jarðvegurinn er hjer gljúpur og hjólin sökkva í.« »Pað getur vel verið, að þjer hafið á rjettu að standa, herra minn. Jeg. andmæli yður ekki. Ef strákurinn hefði talað til mín eitt einasta almennilegt orð, hefði jeg hjálpað honum fyrir löngu, en hann er staður eins og húðarjálkur. Stattu upp, Bob! fljótur. Will! jeg skal nú hjálpa ykkar.« Drengirnir slóðu seint á fætur og tóku á. Pabbi þeirra ýtti öðrum megin á vagninn, en jeg hinum megin, og gekk nú ferðin bæði fljótt og vel. Innan skams varð vegurinn aftur harður og sljettur, vagninn rann því nær sjálfkrafa, og hjálpar okkar þurfti ekki Iengur við. Karlinn benti mjer, að jcg skyldi dragast ögn aftur úr og sagði svo í lágum hljóðum. »Pjer megið ekki halda, að jeg heimti o? mikið að drengjunum minum. Jeg vil síður en svo, að þeir reyni of mikið á sig, en í þetta sinn var það nauðsynlegt. Jeg hefi hugsað um það, að tveir duglegir hundar væru betur falinir til þessa verks en börnin, og jeg veit vel, að þeim yrði skólaganga gagnjegri; en jeg hefi ekki lengi haft þá hjá mjér, og þess vegna gat jeg ekki íehgið. það af mjer, að skilja strax við þá. Pað er svo erfitt að skiljast. En þegar þeir eru hjá mjer, verða þeir að hafast eitthvað að. Hann Bob þarna er annars alt of svörull, og því varð jeg að herða að honum í þetta sinn. Annars er þetta í fyrsta sinn, og manni fellur ætíð illa að byrja á nýju verki. Jeg keypti vagninn í gær, en bar áður varning minn ætið á bakinu — jæja, nú vitið þjer þetta.« »Pað er rjett, að þjer ættuð að hlífa drengj- unum, og láta þá læra eilthvað; mjer virðist 17*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.