Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1990, Side 17

Læknablaðið - 15.01.1990, Side 17
LÆKNABLAÐIÐ 15 eiga að hafa í íhugun okkar, þegar þær rekast á við stjómmálalegar, lagalegar og trúarlegar leiðbeiningar. Ekki er með vissu hægt að segja, að siðferðileg yfirvegun verði samkvæmt skilgreiningu að vera þyngri á metunum, en aðrar yfirveganir, sem komast í samkeppni við hana. Ekkert það er í siðferðinu sjálfu, sem krefst þess. 2. Annað og almennt viðurkennt skilyrði siðferðilegra athafnaleiðbeininga er algildingarhœfið. Það felur í sér, að öll tilsvarandi tilvik ber að meðhöndla á sama hátt. Þetta getur verið nauðsynlegt skilyrði siðferðilegrar hugsunar, en það er ekki nægilegt til þess að greina siðferðilegt mat frá öðru mati á athafnaleiðbeiningum, þegar það mat uppfyllir einnig þetta skilyrði. Margar algildingarhæfar athafnaleiðbeinandi staðhæfingar eru ekki siðferðilegar. Það sem hér skiptir máli er það, að mat á því hvort athöfn telst rétt (eða röng), skuldbindur þann sem metur, til þess að komast að sömu niðurstöðu um samsvarandi tilvik. Ef viðkomandi telur að ein athöfn sé rétt og önnur röng, en getur ekki bent á marktækan mun, er hann ekki að tjá siðferðilegt mat. Algildingarhæfið hefir stundum verið útlistað þannig í siðferðilegum fræðiritum, að það fæli í sér að allar siðferðilegar meginreglur eigi undantekningarlaust við alla á sama hátt og þær eigi aldrei eingöngu við takmarkaða hópa, án tillits til siðferðilegra hefða og siðferðilegs skoðanamunar. Ef þessu væri þannig varið, yrðu ávallt að fara saman hugmyndir ýmissa hópa, ella yrði að úrskurða að sumar hugmyndir væru hreinlega rangar. Algildingarhæfi þarf því ekki að fela í sér, að einvörðungu eitt kerfi siðferðilegra reglna og meginreglna sé rétt og að það verði heimfært undantekningarlaust, án tillits til félagslegs samhengis. Öllu heldur leggur algildingarhæfi formlega áherzlu á rökfestu siðferðilegs mats: Það verður að vera heimfæranlegt á allar hliðstæðar aðstæður af öllum, sem fallast á matið (5). 3. Lagt hefir verið til að þriðja skilyrðið sé sett, það er skilyrði um siðferðilegt inntak. Það byggir á þeirri rökleiðslu, að nauðsynlegt sé, að siðferðilegar athafnaleiðbeiningar feli í sér beina skírskotun til velferðar annarra. Þetta skilyrði útilokar sérdrægnimeginreglur og sumar trúarlegar leiðbeiningar af vettvangi siðferðilegra athafnaleiðbeininga. Ljóst er, að flestar reglur og meginreglur, sem varða læknisfræði, hvort sem þær eru siðferðilegar eða ekki, fjalla beint um mannlega farsæld. Það er ennfremur ljóst, að sú staðhæfða skoðun, að siðferðilegar athafnaleiðbeiningar verði að einhverju leyti að taka mið af velferð annarra manna, felur ekki í sér, að velferð allra hópa hafi sama vægi. Sem dæmi má taka, að sé rekinn áróður fyrir því, að í þágu samfélags verði gerðar umfangsmiklar rannsóknir á bömum og rannsóknimar væru ekki af klínískum toga, (þ.e.a.s. að þær tengdust ekki lækningu bamanna) og fælu þar að auki í sér vissar hættur fyrir bömin, gætum við ekki sagt, að sú stefna, sem þar er boðuð, væri siðferðilega röng, einungis vegna þess að þar væri fómað hagsmunum sumra í þágu annarra. Hins vegar telst téð athæfi siðlaust samkvæmt flestum siðfræðikenningum (6). ALMENN REGLUSIÐFRÆÐI En víkjum þá að því hvaða athafnaleiðbeiningar em verðugar siðferðilegrar viðurkenningar og þá af hvaða ástæðum. Almenn reglusiðfrœði er sá rannsóknavettvangur, þar sem leitað er svara við þessu (7). Hún er gerð úr siðfræðikenningum, þar sem leitazt er við að setja fram og verja siðferðilegar grunnreglur og grunnmeginreglur, sem ákvarða hvaða athafnir era réttar og hverjar þeirra era rangar. Gert er ráð fyrir, að þessar athafnaleiðbeiningar gildi fyrir alla jafnt. Þegar allt er eins og bezt verður á kosið, þarf siðfræðikenning að geyma fullskipaða samstæðu siðfræðilegra athafnaleiðbeininga og kenningin þarf að verja þær á þeim granni, að þær séu undantekningalaust gildar. Samt væri mörgum siðfræðilegum spumingum ósvarað, jafnvel þó svo að mótuð væri aigjörlega fullnægjandi siðfræðikenning. Til dæmis: Hvað gefa þessar mismunandi reglur og meginreglur til kynna um raunveralegar ákvarðanir sem fólk tekur í daglegu lífi sínu? HAGNÝT REGLUSIÐFRÆÐI Viðleitni í þá átt að beita þessum athafnaleiðbeiningum við lausn mismunandi vandamála er hægt að nefna hagnýta reglusiðfrœði. Lýsingarorðið hagnýtur á

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.