Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 22

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 22
20 LÆKNABLAÐIÐ Til þess að skilningur hins eigingjarna verði trúanlegur, þarf siðfræðilegur sérgæðingur að setja fram eftirfarandi: «Ég geri mér Ijóst, að íiestir í samfélagi okkar aðhyllast ákveðnar reglur og telja sig bundna af þeim um hegðun sína. Sjálfur sé ég enga ástæðu til þess að fallast á, að þessar reglur gildi um mína hegðun. Hvers vegna ætti ég nokkru sinni að gera nokkuð, sem er óhagkvæmt fyrir sjálfan mig?» í þessari framsetningu kemur sá sérdrœgni fram sem efahyggjumaður, að því er varðar viðteknar reglur í samfélagi hans. Hann efast um það, að þessar reglur eða nokkrar aðrar séu gildar. Til þess að hrekja þessa útgáfu sérdrægni verðum við að geta sýnt fram á, að tilteknar reglur eru gildar og þar af leiðandi bindandi fyrir hegðun allra. Til er önnur útgáfa sérdrœgni, sem ekki byggir á efahyggju. Sérdrægnisinninn hefir uppi eftirfarandi rök: «Ég viðurkenni, að fyrir hendi séu gildar reglur, sem eru bindandi fyrir mig og aðra. En mér skilst líka, að ég hafi rétt til þess að leita hamingjunnar. Komi fyrir, að siðferðileg regla sem ég viðurkenni, krefjist þess að ég fómi eigin hamingju, sé ég enga ástæðu til þess að fara eftir reglunni, vegna þess að ég má gera það sem veldur mér ánægju.» Þetta sýnir okkur árekstra milli t\’eggja reglna: Onnur veitir manni rétt til þess að gera ákveðinn hlut, en hin leggur bann við því að það sé gert. Sá eigingjami heldur því fram, að í þessum tilvikum hafi hamingjuleit einstaklingsins ávallt forgang. Til þess að geta fengizt við þessa útgáfu sérdrægni, þurfum við að gera okkur grein fyrir því hvernig við leysum úr, þegar reglur rekast á. MARKHYGGJUSIÐFRÆÐI OG SKYLDUSIÐFRÆÐI Umræðan hér á undan um siðfræðilega sérdrægni, hefir vakið tvœr mikilvœgar spurningar. 1. Sú fyrri er: Hvernig getum við ákveðið hvaða hegðun er rétf! Þessi spuming hefir bæði hagnýtt og fræðilegt horf. Frá hagnýtu sjónarmiði emm við oft í vafa um það, hvað sé rétt að gera: Er rétt af vanfærri konu að láta eyða fóstri? Er það rétt af lækni að segja sjúklingi umbúðalaust að hann eigi hugsanlega skammt eftir ólifað? Til þess að leysa hagnýt vandamál af þessu tagi, þörfnumst við aðferða eða skilmerkja, sem segja okkur hvemig á að greina rétt frá röngu. En jafnvel þó að við séum ekki í vafa, er spumingin eigi að síður frœðilega áhugaverð. Gerum ráð fyrir, að þú fylgir því siðferði, sem þér var innrætt sem barni eða því, sem vinir þínir og félagar fylgja. Jafnvel þó svo að þú sért ekki í vafa um það, að reglumar séu réttar, fýsti þig ef til vill samt að fá að vita hvers vegna þær eru réttar og hvers vegna reglumar, sem þú hafnar, eru rangar. Hugsunin um eigið siðferði getur orðið til þess, að sá efa í huga þér um gildi þessara reglna (3). 2. Síðari spumingin er þessi: Hvernig getum við leyst úr árekstrum reglna, sem við teljum réttar? Ef manni er leyfilegt að bæta sinn hag, en hann er jafnframt skyldur að virða hagsmuni annarra manna, hvemig á hann þá að bregðast við, þegar þessi sjónarmið rekast á? Nærri öll kerfi siðareglna sem til era, leiða til árekstra af þessu tagi í tilteknum tilvikum. Þannig þurfum við að eiga leið til þess að ákveða hvom kostinn við veljum (3). Mismunandi svör hafa verið gefin við þessum spumingum, en það er orðin venja að flokka kenningamar undir tvær yfirskriftir: Markhyggjusiðfrœði og skyldusiðfrœði. Til þess að skilja í hverju munurinn milli þessara tveggja liggur, þurfum við að veita því athygli að við beitum aðallega tvenns konar mati á breytni. Annars vegar segjunt við að athafnir séu siðferðilega réttar eða rangar, siðferðilega skyldugar eða forboðnar. Þessi matsgerð nýtir sér skilninginn á því hvað er rétt. Hins vegar getum við sagt að eitthvað sé gott eða eftirsóknarvert. Til dæmis tölum við um góða bók, góða mynd, gott vín, gott starf, góða veizlu. Það rétta og það góða er meðal grunnhugtaka, sem við notum til þess að meta og dæma gildi hluta, athafna og atburða (4). Markhyggjukenning um rétta hegðun felur í sér, að það sem gerir athöfn rétta,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.