Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 29

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 27-33 27 Örn Bjarnason Siöamál lækna 6 SKYLDUSIÐFRÆÐI A deontological theory is one which asserts that at least some actions are right and wrong and we have a duty or obligation to perform them or refrain from them, quite apart from considerations of consequences (1). SKYLDUSIÐFRÆÐIKENNINGAR fela í sér, að önnur sérkenni athafnar en afleiðingar eða önnur sérkenni ásamt afleiðingum athafnar, ráði því hvort athöfn er rétt eða röng. Þær fullyrða, að skilningur á rétti eða skyldu sé ekki að fullu háður skilningi á því góða. Til þess að geta aðhyllst skyldusiðfræði, verður maður að vera þeirrar skoðunar, að sumar athafnir séu réttar og aðrar rangar óháð afleiðingum þeirra. I skyldusiðfræði eru það sérkenni eins og orðheldni varðandi loforð og samninga, þakklœti fyrir hagsbætur, sem manni hafa fallið í skaut, sannsögli og réttlœti, sem ákvarða réttar athafnir og skyldur. Skyldusiðfræðikenningar keppa innbyrðis og svo við markhyggjukenningar út á við. Þetta er hægt að skoða frá ýmsum sjónarhomum: 1. I fyrsta lagi má kanna á hvern hátt skyldusiðfrœðingar réttlœta mat á því, að vissar athafnir eru réttar eða rangar. Sumir vísa til guðlegrar opinberunar og aðrir til náttúruréttar, sem þeir fullyrða að hægt sé að bera kennsl á með mannlegri dómgreind. Þá eru þeir sem telja innsæi og brjóstvit nægja. Enn aðrir, svo sem John Rawls, leiða meginreglur af tilgátusamfélagssáttmála, með því að spyrja hvaða meginreglur skynsamir samningsaðilar samþykktu, væru þeir settir handan «hulu þekkingarleysis» og þannig blindaðir á eigin hæfileika og getu, svo og á eigin hugmyndir um gott líf (2). 2. í öðm lagi er, á sama hátt og var í markhyggjukenningum, greint á milli einhyggju- og fjölhyggjukenninga (2). Einhyggjuskyldukenning felur í sér, að frá einni reglu eða meginreglu megi leiða allar aðrar reglur og annað mat á skyldu og á réttu og röngu. Fjölhyggjuskyldukenning staðfestir hins vegar fleiri en eina gmnnreglu eða meginreglu. 3. Að lokum em svo til tvær gerðir skyldusiðfræði, athafnaskyldusiðfræði og regluskyldusiðfræði (2). Athafnaskyldusiðfrœði á sér fáa formælendur. Þó em þeir til, sem telja að þeir geti, umsvifalaust og beint, skynjað hvað þeim ber að gera af innsæi, út frá samvizku sinni eða vegna trúar á opinbemn eða fyrir Guðs náð. Þetta jafngildir því að segja við lækninn: «Láttu stjómast af samvizku þinni». Skyldusiðfræði af þessu tagi er vafasöm af ýmsum ástæðum. Við höfum ekki of fastan gmnn fyrir trú okkar á eigin innsæi eða annarra, á samvizku eða trú, sérstaklega þegar hafður er í huga beinn þrýstingur, tímaþröng við ákvörðunartöku og máttur eiginhagsmuna við að brengla skynnæmi. Regluskyldusiðfrœði felur í sér kerfi reglna og meginreglna, sem flokka athafnir sem réttar eða rangar, skyldubundnar eða forboðnar. Þannig hélt Kant því fram, að margar reglur mætti draga af undirstöðureglunni, skilyrðislausa boðinu, eins og við munum von bráðar kynnast. FJÖGUR DÆMI UM SKYLDUSIÐFRÆÐI A. Elst þeirra fjögurra dæma um skyldusiðfræði, sem hér verða stuttlega rakin, er gyðingleg - kristin siðfrœði. Hún setur fram ímynd hins fullkomna og eftirbreytniverða lífs, sem hlýðni við vilja Guðs eða eitthvert jákvætt lögmál eða reglu, sem álitin em tjá þennan vilja, hverjar svo sem em ætlanir og langanir einstaklingsins. Meginhugmyndin hér er sú, að skilningur á hinu fullkomna lífi ákveður réttar gerðir og það er óháð því, hvað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.