Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 39

Læknablaðið - 15.01.1990, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ 37 vinnumálastofnunarinnar í Philadelphia 1944 um félagslegt öryggi fyrir alla. Sú samþykkt vísar aftur til Atlantshafssáttmálans, sem gerði ráð fyrir «fyllstu samvinnu milli allra þjóða á sviði atvinnumála, með það fyrir augum að tryggja aukið öryggi hvað atvinnu snertir, efnahagslegar framfarir og félagslegt öryggi. Síðar afgreiddi aðalfundur Alþjóða vinnumálastofnunarinnar samþykkt þá um lágmark félagslegs öryggis (12), sem vitnað er til í grein 12.2 í Félagsmálasáttmála Evrópu. SAMFÉLAGSSÁTTMÁLINN Að gefnum þeim forsendum, sem felast í því sem rætt hefir verið, leyfi ég mér að grípa til kenningar Bandaríkjamannsins Johns Rawls um réttlœti sem óhlutdrœgni (13). Frásögn hans felur í sér þá staðhæfðu skoðun, að við eigum að deila jafnt öllum efnahagslegum gæðum og þjónustu, nema ójöfn útdeiling kæmi þeim raunverulega til góða, sem minnst mega sín. Hann setur viðhorf sín fram í tilgátusamfélagssáttmála, sem hann segir sóttan að verulegu leyti í skilning Kants á sjálfræði. I frásögn Rawls felst, að þær meginreglur eru gildar, sem við myndum öll fallast á, ef við gætum skoðað félagslegu aðstæðumar frá þeim sjónarhóli, sem hann kallar »upphaflegu stöðuna«. Reynt er að tryggja jafnræði í þessari tilgátustöðu, með því að koma á frjálsum jafnræðissamningum milli málsaðila og jafnframt er þátttakendum ókunnugt um eigin auðkenni og um þá aðstöðu, sem þeir hafa eða munu fá. Samkvæmt þessu mætti hugsa sér eftirfarandi afstöðu til opinberrar heilbrigðisstefnu: Skynsamir þátttakendur myndu kjósa meginreglur um réttlæti, sem gætu hugsanlega veitt þeim aukna hlutdeild í frumgæðum, til þess að geta varið lífsnauðsynlega hagsmuni við óvissar og jafnvel voveiflegar aðstæður. Þessir aðilar myndu þannig velja félagslega úthlutun, sem vemdaði heilbrigði og heilbrigðisþarfir allra, teljist heilbrigði til fmmgæða. Svarið við þeirri spumingu felst hins vegar í yfirlýsingunni um heilbrigði sem fmmrétt mannsins. Þessi túlkun á kenningu Rawls, að því er veit að heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn, felur í sér jafnréttisvísbendingar: Hverjum manni, konu og bami ætti að tryggja sama aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu á öllum sviðum. Úthlutunin er í samræmi við þarfir og þörfum yrði svarað með jafngildum aðgangi að þjónustu. Heimfært á íslenzka heilbrigðisþjónustu mætti túlka kenningu Rawls á eftirfarandi hátt: í upphaflegu stöðunni varð samkomulag allra aðila um það, að komið skyldi á heilbrigðisþjónustu og allsherjartryggingum, sem byggðar væru á meginreglu um réttlæti. Jafnframt var staðfest að heilbrigði er fmmréttur hvers manns og að ríkisstjómir bera ábyrgð á heilbrigði þjóðarinnar. Staðfestingu ríkisstjóma á því, að samfélagssáttmálinn er í gildi, finnum við í lögum um heilbrigðisþjónustu númer 56/1973, 57/1978‘Og 59/1983, sem öll geyma ákvæðið um það, að allir landsmenn skuli eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu, sem hægt er að veita til vemdar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði. Þessar hugrenningar byggja á ýmsum samningsbundnum atriðum og þeirri forsendu að allir menn eigi tiltekin réttindi. Því þarf að huga nánar að eðli þessara réttinda og verður það gert síðar. Ljóst var af umræðunni um heilbrigði, að þar vom ekki öll kurl komin til grafar. Þar vantar umfjöllun um sjúkdómshugtakið og verður það því tekið fyrir í næsta kafla. TILVITNANIR 1. Benditt TM. Rights, Totowa, New Jersey: Rowman and Littlefield 1982, s. 1. 2. Universal Declaration of Human Rights of the United Nations 1948. 3. Intemational Convenant on Economic, Social and Cultural Rights. United Nations 1966. 4. World Health Organization: Formulating strategies for health for all by the year 2000. »Health for all« series, no. 2. Geneva: WHO 1979. 5. World Health Organization: Alma-Ata 1978. Primary Health Care. Report of the Intemational Conference on Primary Health Care Alma-Ata, USSR, 6- 12 September 1978. Jointly sponsored by the World Health Organization and the United Nations Children’s Fund. »Health for all« Series, no. 1. Geneva: WHO 1978. (Sjá Læknablaðið 1983; 69: 272-4). 6. Auglýsing um þátttöku fslands í Evrópuráðinu nr. 74 10. marz 1950. Stjómartíðindi C 1950 s. 163. Fylgiskjal, Stofnskrá Evrópuráðsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.