Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1990, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.01.1990, Blaðsíða 52
50 LÆKNABLAÐIÐ í 10. og 11. grein Codex Ethicus segir enn fremur, »að lækni hlýðir að birta nýjungar í fræðigrein sinni með mikilli gát. Hann má ekki gefa fyrirheit um undralækningar né heldur gefa í skyn, að honum séu kunn lyf eða lækningaaðferðir sem ekki séu á vitorði lækna almennt... og ... lækni er ósæmandi að vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína yfir aðra lækna með því að hampa eða láta hampa menntun sinni, þekkingu, hæfni, afrekum eða vinsældum, hvort heldur er í auglýsingum, viðtölum, blaðagreinum, ritgerðum, fyrirlestrum, útvarpserindum, sjónvarpi eða á annan hátt. Læknir má ekki leyfa notkun á nafni sínu, aðstöðu eða lærdómstitli í auglýsingum um lyf, sjúkravörur eða neinn þann vaming, sem talinn er lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma eða sjúkkdómseinkenni. Ummæli um lyf eða sjúkravörur í faglegu sambandi, greinum eða fyrirlestrum, teljast ekki til auglýsinga, enda sé þar ekki um fjárhagsvon að ræða.« Hér ber ekki annað á milli en það, að í læknalögum hefir gleymzt (?), að setja inn heimild fyrir lækna til þess að auglýsa starfsemi sína í símaskrá. Hins vegar eru siðareglumar mun nákvæmari en lögin, enda ætlað að leiðbeina um athafnir. Ekki eru opinber stefna og siðareglur lækna alls staðar jafn samhljóma: A. Arið 1979 gaf Federal Trade Commission út tilskipun til Ameríska læknafélagsins (AMA) og tveggja svæðafélaga þess efnis, (6) (to) »cease and desist from restricting, regulating, impeding, declaring unethical, interfering, advising against the advertising... of physician’s services« (5). B. Á Bretlandi hefir það síðan nýverið gerzt, að Monopolies and Mergers Commission hefir úrskurðað, að vissar takmarkanir á auglýsingum á starfsemi lækna séu andstæðar samkeppni og gangi gegn hagsmunum almennings (15). í leiðara brezka læknablaðsins, BMJ, kemst framkvæmdastjóri BMA að þeirri niðurstöðu, að félagið verði að breyta leiðbeiningum sínum um auglýsingar lækna eða eiga ella á hættu »heavy penalties under the restrictive practices legislation« (16). Þessi afstaða er í samræmi við samþykkt Alþjóðafélags lækna um það, að eigin auglýsingar lækna teljist siðferðilega rangar, nema að leyfðar séu í landslögum og siðareglum læknafélags viðkomandi lands (17). 2. Að valda dauða annarrar mannveru »Sem almennur borgari verð ég að fallast á það, að þingið gæti lögleitt dráp á óæskilegum einstaklingum, en sem læknir hlýt ég að vita, að ákveðin atriði, sem tilheyra siðfræði starfsstéttar okkar, verða ekki réttlætt eða gerð viðeigandi með lagasetningu« (17). í þessari tilvitnun felst ekki einungis það, að læknar hafi sérstakar skyldur, að því er varðar það að viðhalda lífi, heldur einnig það, að læknar búi yfir einhverri þekkingu um hlutverk lækna, sem aðrir hafi ekki. Yfirlýsing af þessu tagi er næsta haldlítil. Ætlist starfsstétt til þess, að aðrir taki alvarlega túlkun á siðferðilegum kröfum starfshlutverksins, nægir ekki eingöngu að staðhæfa, að siðferðilegu skorðumar séu heimfæranlegar á þá sem utan stéttarinnar standa, heldur verða þær einnig að vera öðrum skiljanlegar. Ákvörðun um það hvort meðferð skuli hætt eða að hún verði ekki hafin, er tekin fyrir opnum tjöldum og ákvörðunin varðar fleiri en lækna. Því er mikilvægt að fullur skilningur ríki. Löggjöf er víðast sagnafá, en nýlega hafa verið kveðnir upp dómar um líknardauða í Hollandi, sem kveða á um það, að læknir verði ekki lögsóttur, þó að hann eigi aðild að líknardrápi. 3. Að varðveita trúnað í Codex Ethicus segir í grein II.3: »Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að hafast nokkuð að, er veikt gæti trúnaðarsamband hans við sjúklinga. Honum er óheimilt að ljóstra upp einkamálum, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða hann hefur fengið vitneskju um í starfi sínu, nema með samþykki sjúklingsins, eftir úrskurði eða samkvæmt lagaboði. Einnig ber honum að áminna samstarfsfólk um að gæta fyllstu þagmælsku um allt, er varðar sjúklinga hans.« Síðan segir í grein II.4: »Lækni ber að halda til haga gögnum, sem skipt geta máli í samskiptum við sjúklinga eða aðra aðila síðar. Um afhendingu slíkra gagna fer eftir reglum greina 1.9 og II.3 í Codex þessum.« í grein 1.9 er meðal annars þetta að finna: »Lækni ber að vanda til vottorða og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.