Læknablaðið - 15.04.1996, Blaðsíða 28
Léttir af
þungu fargi
Framleióandi: Lyfjaverslun íslands hf..
Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Nafn sérlyfs: Fluoxin. HYLKI; N 06 A B 03
Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríö,
samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg eöa 20 mg.
Eiginleikar: Flúoxetín er geödeyföarlyf, sem er taliö
blokka endurupptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila.
Flúoxetín minnkar matarlyst. Lyfið hefur lltil sem engin áhrif á noradrenalín eöa önnur boðefni f heila.
Blóöþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns í blóöi er 2-3 dagar.
Aöalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álfka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-
9 dagar. Próteinbinding f plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út f þvagi, aö mestu
sem umbrotsefni. Vegna þess hve helmingunartími lyfsins er langur koma breytingar á skammtastæröum
ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geödeyfö (unipolar og bipolar). Alvarlegt,
langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Matgræögiköst (bulimia nervosa). Þráhyggjusýki (obsessive-
compulsive disorder). Frábendingar: Meöganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúöar ber aö gæta viö
flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Aukaverkanir: Ógleði,
óróleiki, minnkaöur svefn, höfuðverkur, skjálfti, kvíöi, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi meö
útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfiö má ekki nota meö MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfiö og
umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir aö töku þess er hætt, er ekki óhætt aö nota
MAO-hemjandi lyf fyrr en liðiö hafa a.m.k. 5 vikur frá því aö töku flúoxetfns er hætt. Ekki ætti aö nota tryptófan meö
þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af flúoxetíni og þarf aö fylgjast vel meö litíummagni í
blóöi. Athugiö: Viö þunglyndi getur sjálfsmoröshætta aukist í byrjun meöferöar. Flogaveikisjúklingar þurfa aö vera
undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Skammtastæröir handa fullorónum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er aö taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki
fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Viö matgræögiköstum: Skammtar
eru oftast 40 - 60 mg á dag. Viö þráhyggjusýki: Upphafsskammtur er 20 mg á dag. Ef ekki næst viðunandi árangur, má auka
skammtinn eftir 3-4 vikur. Hærri skammta en 20 mg á aö gefa í tveimur skömmtum á dag. Hámarksskammtur er 80 mg
daglega. Viö mikið skerta lifrar- eöa nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft aö gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Útlit: 10 mg hylki: Eru græn og Ijósblá og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132) og títantvíoxíö (E 171).
20 mg hylki: Eru vínrauö og græn og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132), títantvíoxíö (E 171) og
erýtrósfn (E 127). Pakkningar: Hylki 10 mg: 30 stk./100 stk. Hylki 20 mg: 30 stk./100 stk.
Geódeyfóarlyf
með eiginleika
frumlyfs á verði
samheitalyfs