Læknablaðið - 15.04.1996, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
313
Við höfum meðhöndlað tvo sjúklinga með
lungnakrabbamein sem taka átti í kransæðaaðgerð,
sem lá á að gera. Fyrir kransæðaaðgerðina var út-
breiðsla æxlisins könnuð, teknar voru sneiðmyndir
af heila, lungum, nýrnahettu, lifur og gert beina-
skann. Báðir þessir sjúklingar gengust undir krans-
æðaaðgerð án aukakvilla. Þeir voru síðan berkju-
speglaðir 10 dögum eftir kransæðaaðgerðina en þá
var ljóst að þeir voru með skurðtækan, illkynja sjúk-
dóm. Þeir fóru síðan í framhaldi af þessu í brjóst-
holsaðgerð þar sem gert var brottnám á lungna-
lappa. Aðgerðirnar gengu eðlilega fyrir sig og sjúk-
lingarnir útskrifaðir af spítalanum án aukakvilla eftir
10 daga.
Við teljum að það sé öruggari leið að gera þessar
aðgerðir ekki samtímis, heldur gera hjartaaðgerðina
fyrst og síðan meta sjúkling betur og gera lungnaað-
gerðina í framhaldi af því.
Nánar verður gerð grein fyrir þessum aðgerðum
og sjúklingum á þinginu.
45. Stómíuaðgerðir á FSA á 10
ára tímabili
Haraldur Hauksson, Valur Þór Marteinsson, Sltree
S. Datye
Handlœkningadeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri
Á árunum 1984-1993 voru gerðar 49 stómíuað-
gerðir á 43 sjúklingum á FSA. Þar með eru einnig
taldar átta stómíulokanir, en magastómíur undan-
skildar. Konur voru 28 en karlar 15 og meðalaldur 64
ár. Gerð var 21 bugaristilsstómía, 10 dausgarnar-
stómíur, sex botnristilsstómíur, ein þverlæg stómía
og þrjár þvagstómíur. Tólf stómíur voru lagðar fram
við bráðaaðgerðir vegna lífhimnubólgu eða garnar-
stíflu þar af allar sex botnristilsstómíurnar. Á eftir-
litstímanum hafa komið fram þrír fylgikvillar hjá
sjúklingum með dausgarnarstómíu, þar af hefur einn
krafist minni háttar aðgerðar (samdráttarvanda-
mál). Af bugaristilsstómíusjúklingum hafa þrír feng-
ið parastomal haul (hernia) sem ekki hafa krafist
aðgerðar þó einn hafi verið lagfærður í sambandi við
seinni dausgarnaraðgerð og ein stómía var svolítið
þröng en það nægði að víkka hana nokkrum sinnum.
Engir fylgikvillar urðu við átta stómíulokanir og
fimm botnristilsstómíur lokuðust af sjálfu sér án
vandræða.
Aðrir sjúkdómar hafa í ríkum mæli áhrif á afdrif
sjúklinga en illkynja sjúkdómur er undirrót hjá 16
sjúklingum með bugaristilsstómíu og öllum þremur
sem fengu þvagstómíu. Af 41 sjúklingi eru 11 lifandi
með stómíu og níu án stómíu.
46. Er saphena magna alltaf
ónothæf sem hjáveita ef hún er
umbreytt af æðahnútum?
Haraldur Hauksson
Handlœkningadeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri
Yfirleitt er saphena magna talin ónothæf sem hjá-
veita, ef hún er umbreytt af æðahnútum. Eftirfar-
andi sjúkratilfelli sýnir að svo þarf ekki að vera.
Karlmaður á áttræðisaldri sem lifir fyrir göngu-
ferðir hafði gengist undir buxnagraftaðgerð 1987
vegna útbreiddrar æðakölkunar sem gaf slæm helti-
köst (claudicatio intermittens). Einkenni minnkuðu
en hurfu ekki vegna lokunar í a. fem. sup. hægra
megin. Sjúklingur var óbreyttur fram að ársbyrjun
1991,en þá fór honum hratt versnandi og var hann
kominn með hvíldarverki þegar ákveðið var að taka
hann í aðgerð í marsmánuði 1991.
Sjúklingur hafði lengi haft æðahnúta sem hafði
dregið úr ábendingum fyrir aðgerð uns honum
versnaði. Við skoðun fannst meðal annars greinilega
stór æðahnútur (varix) á saphena magna á miðju læri
og einnig var æðin víkkuð í náranum. í aðgerðinni
var samt ákveðið að nota æðina sem hjáveitu frá
buxnagrafti niður í distal fossa poplitea með því að
laga hana og styrkja með aðferðum sem nánar verð-
ur lýst.
Sjúklingi farnaðist vel eftir aðgerð og stundar
göngur sem aldrei fyrr fimm árum síðar. Hann hefur
þó reyndar vegna hraðfara versnunar í vinstri fæti
fyrir ári síðan gengist undir hjáveituaðgerð einnig
þeim megin.
47. Aðgerðir á sjúklingum með
stjarnfrumnaæxli af lágri gráðu
og krampa þrátt fyrir
lyfjameðferð
Þorsteinn Gunnarsson", Elías Ólafsson2>, Bjarni
Hannesson"
"Heila- og taugaskurðdeild Sjúkraliúss
Reykjavíkur, "taugalœkningadeild Landspítalans
Stjarnfrumnaæxli af lágri gráðu (low grade astro-
cytoma) geta valdið krömpum sem erfitt er að halda
í skefjum með lyfjum. Slíkir krampar hindra fólk í
námi og starfi og valda sjúklingum miklu andlegu
álagi. Auk þess geta slík æxli breytt sér yfir í meira
illkynja form. Því væri hentugast að fjarlægja öll slík
æxli en því fylgir talsverð áhætta þar sem þessi æxli
eru oft á tíðum staðsett nálægt mikilvægum stöðvum
í heila.
Á Borgarspítalanum hafa verið gerðar aðgerðir á
sex sjúklingum með stjarnfrumnaæxli af lágri gráðu.
Allir sjúklingarnir höfðu æxli sem á segulsneiðmynd
líktist stjarnfrumnaæxli af lágri gráðu og höfðu þeir
verið í eftirliti í nokkurn tíma hjá taugasérfræðingi