Læknablaðið - 15.04.1996, Blaðsíða 101
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
349
LANDSPÍTALINN
Barna- og unglingageðdeild Landspítalans
Yfirlæknir
Staöa yfirlæknis við Barna- og unglingageðdeild Landspítalans er laus til umsóknar frá 1.
júlí næstkomandi. Umsóknarfrestur er til 22. apríl næstkomandi. Umsækjendur láti fylgja
ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og rannsóknir. Auk klínískra starfa þarf
umsækjandi að taka þátt í kennslu stúdenta og starfsmanna.
Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublöðum lækna. Nánari upplýsingar veitir Tómas
Helgason prófessor, forstöðumaður geðdeildar Landspítalans, sem jafnframt tekur við
umsóknum.
Sérfræðingur
Staða sérfræðings í geðlækningum er laus til umsóknar á Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans. Staðan veitist til eins árs. Auk klínískra starfa þarf viðkomandi að taka þátt
í kennslu stúdenta og starfsmanna. Umsækjandi láti fylgja ítarlegar upplýsingar um
menntun, fyrri störf og rannsóknir. Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublöðum
lækna. Umsóknarfrestur er til 22. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar veita Valgerður
Baldursdóttir settur yfirlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og Tómas
Helgason forstöðulæknir geðdeildar Landspítalans, sem jafnframt tekur við umsóknum.
Barnaspítali Hringsins
Sérfræðingur
Staða sérfræðings í barnalækningum er laus til umsóknar. Starfsvettvangur er Barna-
spítali Hringsins og starfssvið miðast að verulegu leyti við bráðamóttöku sjúklinga.
Ákveðin rannsóknar-, þróunar- og kennsluverkefni fylgja stöðunni. Staðan verður fyrst
um sinn greidd af styrktarfé.
Umsóknum fylgi nákvæm greinargerð um nám og fyrri störf ásamt ritskrá og fleiru
(curriculum vitae). Umsóknum skal skila til forstöðulæknis Barnaspítala Hringsins er
veitir nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. maí næstkomandi.
Krabbameinslækningadeild
Deildarlæknar
Tvær stöður deildarlækna/aðstoðarlækna við krabbameinslækningadeild Landspítalans
eru lausartil umsóknar. Önnur staðan er laus frá 1. apríl næstkomandi hin frá 1. júní að
telja.
Starfið er fólgið í vinnu á legu- og göngudeild í samvinnu við sérfræðinga deildarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Sveinsson forstöðulæknir í síma 560 1440.
Rannsóknadeild Landspítalans
Yfirlæknir
Staða yfirlæknis á rannsóknadeild Landspítalans (meinefnafræði) er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. maí næstkomandi. Staðan veitist frá 1. júlí næstkomandi.
Umsækjendur láti fylgja ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og rannsóknir.
Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublöðum lækna.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Veigar Guðmundsson lækningaforstjóri, sem jafn-
framt tekur við umsóknum.