Læknablaðið - 15.04.1996, Blaðsíða 89
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
339
veita viötöku úr hendi hins
tryggða.
Svæfingar vegna tannaðgerða
greiðir TR í sömu hlutföllum og
tannaðgerðina sjálfa.
6. grein
Fyrir læknishjálp sérfræðings
samkvæmt samningi þessum
greiðir TR það, sem á vantar að
greiðsla sjúklings samkvæmt 5.
gr. nemi fullri þóknun að frá-
dregnum afslætti samkvæmt 3.
og 4. gr.
7. grein
í greiðsluhluta TR samkvæmt
6. gr., er innifalið gjald til Líf-
eyrissjóðs lækna 7%. Gjald
þetta rennur til Elli- og örorku-
tryggingasjóðs lækna eða til
annars lífeyrissjóðs, óski læknir
þess. TR skal halda eftir gjaldi
þessu og greiða til viðkomandi
lífeyrissjóðs nema þegar um er
að ræða greiðslur fyrir blóð-
meina- og meinefnarannsóknir
svo og röntgenrannsóknir. Með
sama hætti skal greiða 0,2% í
Orlofsheimilasjóð lækna.
Sjóðagjöld greiðist mánaðar-
lega til viðkomandi sjóða.
Sjóðagjöld reiknast ekki af
greiðslum til lækna, sem orðnir
eru 70 ára.
8. grein
Reikningur læknis til TR skal
vera í stöðluðu formi og skal þar
meðal annars tekið fram nafn,
kennitala og heimili sjúklings,
hvaða dag verkið var unnið og
hvað var gert, gjaldskrárlið
þess, einingafjölda og greiðslu-
hlut sjúklings. Sjúklingur skal
staðfesta reikning með undir-
skrift sinni við hverja heimsókn,
og skal hann fá afrit hans. Enn-
fremur skal koma fram hvar
þjónustan var veitt.
Reikningar læknis til TR
skulu flokkaðir eftir þjónustu-
mánuðum og eftir því hvar
þjónustan var veitt og skal fylgi-
seðill, þar sem getið er fjölda
reikninga, heildarfjölda ein-
inga, heildarfjárhæð reikninga
og heildargreiðslu sjúklinga,
annars vegar á stofu og hins veg-
ar á stofnun, fylgja reikningum
hvers mánaðar.
Reikningar fyrir unnin verk
hvers mánaðar þurfa að berast
TR í síðasta lagi 10. næsta mán-
aðar. Reikningar, sem berast
síðar greiðast að hámarki 3/4 og
eftirstöðvar í síðasta lagi við þar
næsta ársfjórðungsuppgjör.
Fyrir sérfræðistörf í hvorum
tveimur fyrstu mánuðum hvers
ársfjórðungs greiðir TR reikn-
inga inn á bankareikning læknis
innan 12 daga frá móttöku
reikninga ásamt fylgiseðlum,
séu reikningarnir athugasemda-
lausir. Frá því TR berast reikn-
ingar vegna þriðja mánaðar í
hverjum ársfjórðungi skal TR
innan tveggja virkra daga frá því
að reikningar ásamt fylgiseðlum
berast TR greiða að minnsta
kosti 40% af hluta sjúkratrygg-
inganna af reikningum þessa
þjónustumánaðar samkvæmt
útreikningi læknis á fylgiseðli
enda hafi þeir borist TR í síð-
asta lagi 10. dag næsta mánaðar.
Uppgjör hvers ársfjórðungs skal
hefjast 15 dögum síðar og vera
lokið fyrir mánaðamót. Upp-
gjöri ársins skal lokið eigi síðar
en fyrsta virkan dag eftir 25.
febrúar næsta árs.
9. grein
TR og LR skulu í sameiningu
vinna að eðlilegri og samræmdri
beitingu gjaldskrárinnar. Skulu
aðilar skipa sérstaka samráðs-
nefnd, er í séu tveir menn frá
hvorum aðila.
Samráðsnefndin skal halda
fasta fundi, að minnsta kosti
annan hvern mánuð, júní til
ágúst undanskildir.
Samráðsnefnd skal hafa
heimild til að setja sérfræðing-
um hámarksfjölda eininga inn-
an þess heildareiningafjölda,
sem samið er um. Jafnframt
skal samráðsnefnd hafa heimild
til að ákvarða einstökum sér-
fræðingum hámark eininga fyrir
læknisverk, ef starfsaðferðir
þeirra víkja frá því sem tíðkast í
viðkomandi sérgrein eða falla
ekki að umsaminni gjaldskrá
miðað við þá tímaviðmiðun,
sem samráðsnefnd telur hæfi-
lega. Nefndin fylgist með fram-
kvæmd samningsins og úrskurð-
ar um álitamál sem upp kunna
að koma. Úrskurðir nefndar-
innar skulu vera bindandi fyrir
aðila samningsins.
Auk þess, sem annars staðar
er getið í samningi þessum, skal
nefndin einnig annast eftirfar-
andi:
1) Gera breytingar á gjaldskrá
aðila innan umsamins heild-
areiningafjölda.
2) Skera úr ágreiningi um
flokkun lækna í afsláttar-
flokka samkvæmt 3. gr.
3) Skera úr ágreiningi um hvort
læknisverk heyri undir sér-
grein viðkomandi læknis.
Getur nefndin krafið við-
komandi sérfræðing um
sannanir fyrir því að hann
hafi fengið tilskylda þjálfun
til að vinna viðkomandi
læknisverk, þó að það falli
ekki undir sérgrein hans.
4) Ákveða skiptingu umsam-
inna heildareininga niður á
almanaksmánuði og hafa
umsjón með greiðslum og
uppgjöri til sérfræðinga.
5) Önnur atriði er varða sam-
skipti TR og LR eða ein-
stakra lækna.
Nefndarmenn geta skotið
innbyrðis ágreiningi til funda
samninganefnda.