Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.1996, Side 89

Læknablaðið - 15.04.1996, Side 89
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 339 veita viötöku úr hendi hins tryggða. Svæfingar vegna tannaðgerða greiðir TR í sömu hlutföllum og tannaðgerðina sjálfa. 6. grein Fyrir læknishjálp sérfræðings samkvæmt samningi þessum greiðir TR það, sem á vantar að greiðsla sjúklings samkvæmt 5. gr. nemi fullri þóknun að frá- dregnum afslætti samkvæmt 3. og 4. gr. 7. grein í greiðsluhluta TR samkvæmt 6. gr., er innifalið gjald til Líf- eyrissjóðs lækna 7%. Gjald þetta rennur til Elli- og örorku- tryggingasjóðs lækna eða til annars lífeyrissjóðs, óski læknir þess. TR skal halda eftir gjaldi þessu og greiða til viðkomandi lífeyrissjóðs nema þegar um er að ræða greiðslur fyrir blóð- meina- og meinefnarannsóknir svo og röntgenrannsóknir. Með sama hætti skal greiða 0,2% í Orlofsheimilasjóð lækna. Sjóðagjöld greiðist mánaðar- lega til viðkomandi sjóða. Sjóðagjöld reiknast ekki af greiðslum til lækna, sem orðnir eru 70 ára. 8. grein Reikningur læknis til TR skal vera í stöðluðu formi og skal þar meðal annars tekið fram nafn, kennitala og heimili sjúklings, hvaða dag verkið var unnið og hvað var gert, gjaldskrárlið þess, einingafjölda og greiðslu- hlut sjúklings. Sjúklingur skal staðfesta reikning með undir- skrift sinni við hverja heimsókn, og skal hann fá afrit hans. Enn- fremur skal koma fram hvar þjónustan var veitt. Reikningar læknis til TR skulu flokkaðir eftir þjónustu- mánuðum og eftir því hvar þjónustan var veitt og skal fylgi- seðill, þar sem getið er fjölda reikninga, heildarfjölda ein- inga, heildarfjárhæð reikninga og heildargreiðslu sjúklinga, annars vegar á stofu og hins veg- ar á stofnun, fylgja reikningum hvers mánaðar. Reikningar fyrir unnin verk hvers mánaðar þurfa að berast TR í síðasta lagi 10. næsta mán- aðar. Reikningar, sem berast síðar greiðast að hámarki 3/4 og eftirstöðvar í síðasta lagi við þar næsta ársfjórðungsuppgjör. Fyrir sérfræðistörf í hvorum tveimur fyrstu mánuðum hvers ársfjórðungs greiðir TR reikn- inga inn á bankareikning læknis innan 12 daga frá móttöku reikninga ásamt fylgiseðlum, séu reikningarnir athugasemda- lausir. Frá því TR berast reikn- ingar vegna þriðja mánaðar í hverjum ársfjórðungi skal TR innan tveggja virkra daga frá því að reikningar ásamt fylgiseðlum berast TR greiða að minnsta kosti 40% af hluta sjúkratrygg- inganna af reikningum þessa þjónustumánaðar samkvæmt útreikningi læknis á fylgiseðli enda hafi þeir borist TR í síð- asta lagi 10. dag næsta mánaðar. Uppgjör hvers ársfjórðungs skal hefjast 15 dögum síðar og vera lokið fyrir mánaðamót. Upp- gjöri ársins skal lokið eigi síðar en fyrsta virkan dag eftir 25. febrúar næsta árs. 9. grein TR og LR skulu í sameiningu vinna að eðlilegri og samræmdri beitingu gjaldskrárinnar. Skulu aðilar skipa sérstaka samráðs- nefnd, er í séu tveir menn frá hvorum aðila. Samráðsnefndin skal halda fasta fundi, að minnsta kosti annan hvern mánuð, júní til ágúst undanskildir. Samráðsnefnd skal hafa heimild til að setja sérfræðing- um hámarksfjölda eininga inn- an þess heildareiningafjölda, sem samið er um. Jafnframt skal samráðsnefnd hafa heimild til að ákvarða einstökum sér- fræðingum hámark eininga fyrir læknisverk, ef starfsaðferðir þeirra víkja frá því sem tíðkast í viðkomandi sérgrein eða falla ekki að umsaminni gjaldskrá miðað við þá tímaviðmiðun, sem samráðsnefnd telur hæfi- lega. Nefndin fylgist með fram- kvæmd samningsins og úrskurð- ar um álitamál sem upp kunna að koma. Úrskurðir nefndar- innar skulu vera bindandi fyrir aðila samningsins. Auk þess, sem annars staðar er getið í samningi þessum, skal nefndin einnig annast eftirfar- andi: 1) Gera breytingar á gjaldskrá aðila innan umsamins heild- areiningafjölda. 2) Skera úr ágreiningi um flokkun lækna í afsláttar- flokka samkvæmt 3. gr. 3) Skera úr ágreiningi um hvort læknisverk heyri undir sér- grein viðkomandi læknis. Getur nefndin krafið við- komandi sérfræðing um sannanir fyrir því að hann hafi fengið tilskylda þjálfun til að vinna viðkomandi læknisverk, þó að það falli ekki undir sérgrein hans. 4) Ákveða skiptingu umsam- inna heildareininga niður á almanaksmánuði og hafa umsjón með greiðslum og uppgjöri til sérfræðinga. 5) Önnur atriði er varða sam- skipti TR og LR eða ein- stakra lækna. Nefndarmenn geta skotið innbyrðis ágreiningi til funda samninganefnda.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.