Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 31

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 31
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 743 öllum aldurshópunum var 1,5:1. Við flokkun talmeinafræðinga á athugasemdum foreldra var oftar lýst talörðugleikum (72%) en málörðug- leikum (18%). Talmeinafræðingamir litu at- hugasemdir foreldra alvarlegri augum eftir því sem börnin urðu eldri. Alyktanir: I flestum tilvikum voru áhyggjur foreldra taldar vísa til raunverulegra vanda- mála að mati talmeinafræðinga. Fram komu vísbendingar um að ekki sé gerður mikill greinarmunur á máli og tali. Rannsaka þarf bet- ur hvemig áhyggjur foreldra af málþroska birt- ast og hvernig þær tengjast tali, máli eða öðrum þroska. Slíkar upplýsingar geta verið leiðbein- andi um hvernig á að standa að fræðslu til for- eldra og eru líklegar til þess að skerpa reglu- bundið eftirlit með þroska. Inngangur Ahyggjur foreldra af þroska barna sinna eru oft fyrsta tilefni rannsókna. Ennfremur láta for- eldrar gjarnan í ljós áhyggjur við reglubundið eftirlit með þroska. Ef áhyggjur foreldra, sem koma með börn sín til eftirlits, eru látnar jafn- gilda mati á þroska þá hafa þær sýnt sig segja vel fyrir um raunveruleg þroskavandamál. Þetta á þó aðeins við, ef um er að ræða staðlaða upplýsingasöfnun. Bandarískar rannsóknir hafa sýnt fram á, að yfir 70% bama á leikskóla- aldri (fjögurra ára og eldri) með raunveruleg vandamál má finna með því að foreldrar tjá ákveðnar áhyggjur. Sömuleiðis sagði áhyggju- leysi foreldra réttilega fyrir um í yfir 70% til- vika að vandamál væru ekki til staðar. Þær áhyggjur sem líklegastar era til þess að segja fyrir um raunveruleg vandamál varða mál- þroska, heyrn, fínhreyfingar, hegðun (meðal annars athygli) og almenna þroskaframvindu (1,2). Hefð er fyrir því að nota málþroska sem yfir- hugtak yfir allar aldurstengdar breytingar og framvindu í tali og máli. Tal er flutningur máls- ins, að gera sig skiljanlegan með reglum tiltek- ins málsamfélags um samsetningu hljóða, framburð, áherslu og hrynjandi. Málið sjálft stendur fyrir hugsunina sem flutt er í orðum og alla þá málvísindalegu eiginleika sem því fylgja. Við mat á báðum þáttum þarf að taka til- lit til aldurs, þroska, heilsu og því umhverfi sem viðkomandi lifir í. SCHERING M £ I Oaen ScherinX, 940261 VÍS 98-58. sepl. 98 TÖFLUR: G03AA10. Hvertafla innilieldur: Ethinylestradiolum INN 20 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Ábendingar: Getnaðarvöm. Frábendingar: Þungun, alvarleg röskun á starfsemi lifrarinnar, gula eða þrálátur kláði við fyrri þungun, Dubin-Johnson heilkenni, Rotor heilkenni, æxli í lifur eða saga um æxli í lifur, segarek, saga um segarek eða aðstæður sem valda hættu á því, t.d. truflun á blóðstorkuþáttum, hjartalokusjúkdómar og gáttatitringur, sigðfrumublóðleysi, þekkt æxli eða saga um æxli sem kynhormónar geta haft áhrif á, t.d. krabbamein í brjósti eða legslímhúð, alvarleg sykursýki með æðabreytingum, truflanir á fituefnaskiptum, saga um herpes,("herpes gestationis" er ákveðinn húðsjúkdómur, sem getur komið upp á meðgöngu og lýsir sér m.a. með blöðmm á húð, brengluðum lifrarprófum o.fl., versnandi kölkun í miðeyra á meðgöngutíma, blæðingar úr leggöngum af óþekktri orsök, ofnæmi fyrir einhveiju innihaldsefna Meloden. Aukaverkanir: Sjaldgæfar em höfuðverkur, magakveisa, ógleði, eymsli í bijóstum, breytingar á líkamsþyngd, breytingar á kynhvöt, þunglyndi getur komið fyrir. Hjá konum sem hafa tilhneigingu til þess, getur notkun lyfsins stundum valdið litarbreytingum í andliti (chloasma), sem aukast við sólskin. Þær konur ættu að forðast að vera lengi í sólskini. Greint hefur verið frá einstaka tilvikum af óþoli gagnvart augnlinsum við notkun getnaðarvamataflna. Þær konur sem nota linsur og verða fyrir breyttu þoli gagnvart þeim ættu að fara í skoðun til augnlæknis. Varúð: Ástæður til að hætta notkun Meloden strax: Mígrenihöfuðverkur í fyrsta sinn, versnun á mígreni eða aukin tíðni óvenjulega mikils höfuðverkjar, skyndileg tmflun á sjón eða heym eða aðrar skyntmflanir, fyrstu merki um æðasegabólgu eða segarek (t.d. óvenjulegir verkir eða þroti í fótum, stingandi verkur samfara öndun eða hósti án nokkurrar augljósrar ástæðu), verkur og þrengsli fyrir bijósti, sex vikum fyrir fyrirhugaða skurðaðgerð og meðan á rúmlegu stendur, t.d. eftir slys, skurðaðgerð, gula, lifrarbólga, kláði um allan líkamann, aukin flogaveikisköst, marktæk hækkun blóðþrýstings, alvarlegt þunglyndi, alvarlegir verkir í efri hluta kviðarhols eða stækkun lifrar, þungun. Við eftirfarandi aðstæður skal ekki nota getnaðarvamatöflur nema undir ströngu eftirliti læknis. Versni einhverjar þessara aðstæðna, getur verið ástæða til þess að hætta notkun getnaðarvamalyfsins: sykursýki eða skert sykurþol, háþrýstingur, æðahnútar, saga um bláæðabólgu, kölkun í miðeyra, MS-sjúkdómur (multiple sclerosis), flogaveiki, porfýría, kalkstjarfí (tetany), Sydenham's chorea, skert nýmastarfsemi, saga um truflun á blóðstorknun, offita, saga um bijóstakrabbamein í Qölskyldunni og saga um hnúta í brjóstum, saga um þunglyndi, rauðir úlfar (systemic lupus erythematosus), vöðvahnútar í legi (uterine myoma) og mígreni. Að því sem best er vitað er ekki hægt að útiloka samband milli notkunar hormóna til getnaðarvama og aukinnar hættu á sjúkdómum er stafa af segareki í slagæðum og bláæðum, svo sem kransæðastífla, blóðtappi í lungum, æðasegabólga, slag eða segamyndun í sjónhimnu. Læknir skal vera á verði fyrir fyrstu merkjum um slíka sjúkdóma. Vakni gmnur um einhvem þeirra, skal strax hætta að nota Meloden. Hætta á segastíflu í slagæðum (t.d. slagi eða kransæðastíflu) virðist aukast enn þegar miklar reykingar, hækkandi aldur og notkun getnaðarvamataflna fer saman. Vegna þessa skal ráðleggja konum, sem em eldri en 35 ára og nota getnaðarvamatöflur eindregið frá því að reykja. Auk þess geta tilteknir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, of há blóðfita, offita og sykursýki aukið áhættuna hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur. Meta skal hvort æskilegt sé að nota lyfið þegar um þessa sjúkdóma er að ræða með tilliti til áhættunnar sem sjúkdómurinn veldur og ræða það við konuna áður en hún ákveður að nota lyfið. Lýst hefur verið breytingum á þéttni þríglýseríða, kólesteróls og lípóprótína í blóði samfara notkun getnaðarvamataflna. Getnaðarvamatöflur geta einnig valdið skertu sykurþoli. Lýst hefur verið hækkuðum blóðþrýsting hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur. Blóðþrýstingurinn fer venjulega aftur í eðlilegt horf eftir að hætt er að nota lyfið. Sumar konur geta orðið fyrir tíðateppu eða óreglulegum blæðingum þegar þær hætta notkun getnaðarvamataflna, einkum þegar um slíkt var að ræða áður en notkun þeirra hófst. Greina skal konum frá þeim möguleika. í sjaldgæfum tilvikum hefur orðið vart við góðkynja og enn sjaldnar illkynja lifraræxli sem geta leitt til einstakra tilvika af lífshættulegum innvortis blæðingum eftir notkun hormóna á borð við þá sem em í lyfmu. Verði vart við alvarlega verki í efri hluta kviðarhols, merki um stækkun á lifur eða blæðingar í kviðarholi, skal hafa möguleika á lifraræxli í huga við sjúkdómsgreiningu. Við fyrri rannsóknir var greint frá aukinni hættu á sjúkdómum í gallblöðru sem vom staðfestir við uppskurð, hjá þeim konum sem notuðu estrógen og getnaðarvamatöflur. Síðari rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að hættan á sjúkdómum í gallblöðm sé hverfandi lítil. Milliverkanir: Efnasambönd sem hvetja lifrarensím svo sem barbítúröt, prímídón, hýdantóín, fenýlbútasón, rífampisín, karbamazepín og griseófúlvín geta dregið úr verkun Meloden. Skammtastœrðir: Fyrsta taflan úr Meloden pakkningunni skal tekin fyrsta dag tíðahringsins. 1 tafla á dag næstu 21 daga en síðan er 7 daga hlé. Pakkningar: 21 stk. x 3. Nánari upplýsingar í texti Sérlyfjaskrár. Handhafi markaðsleyfis: ScheringAG. Umboðsmaður á Islandi: Thorarensen Lyfehf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.