Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 47

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 47
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 755 Biðlistar og aukið misrétti - Hvað með biðlistana, hafa þeir styst? „Biðlistar eru einnig afar viðkvæmt pólitískt umfjöllun- arefni. Þeir hafa lengst í kjöl- far bættrar tækni og aukinnar eftirspumar eftir þjónustu en pólitískt skipaðir stjómendur eru ákaflega lítt hrifnir af því að ræða biðlista opinberlega. Það er einna helst hér á landi sem rannsóknir hafa verið gerðar á högum sjúklinga á biðlistum og það er vitað að stór hluti þeirra sem bíður eft- ir aðgerð eða innlögn þjáist mikið á biðtíma, bæði líkam- lega og sálarlega þar sem mik- ill kvíði getur komið upp og er það síst til þess fallið að bæta ástand sjúklings. Um 70% sjúklinga á biðlistum kvarta um verulega hvíldarverki og þarfnast stöðugra svefn- og verkjalyfja. Hjá okkur er biðlistum eftir kransæðaaðgerðum haldið innan sæmilegra marka en biðlistar eftir hjartaþræðing- um hafa lengst. Það fer hins vegar enginn í kransæðaað- gerð án hjartaþræðingar og staðreyndin er sú að dánar- tíðni sjúklinga sem bíða eftir kransæðaaðgerð er tvisvar til fjórum sinni hærri en sjúk- linga á öðrum biðlistum.“ - Er misrétti að aukast með- al sjúklinga á Norðurlöndum? „Frá því tryggingastofnanir voru settar á fót á Norðurlönd- um hafa menn ekki ekki búið við misræmi í þjónustu, en núna á síðustu sex til sjö árum hefur það komið upp. Þjón- ustugjöld sjúklinga eru víða of há og bæði í Svíþjóð, Finn- landi og á Islandi hefur komið fram að 20-30% fólks í tekju- lægstu hópum samfélagsins hafa frestað eða hætt við að leita sér læknis vegna fjár- skorts. Menn tala einnig um vaxandi þunglyndi meðal fólks, án þess að kunna á því skýringar. Heimilislausum hefur fjölgað mjög á öllum Norðurlöndunum og umönn- un þeirra og eins geðsjúkra situr eftir, þessir einstaklingar komast ekki lengur inn á fínu spítalana okkar og ástandið er orðið þannig að trúfélög sjá meira og minna um þetta fólk, sérstaklega fólk sem er í vímu- efnum. Annað atriði mjög alvarlegt varðar tannlæknaþjónustu, en bæði í Noregi, Svíþjóð og á Islandi er einungis um helm- matran súmatriptan TÖFLUR; N 02 C X 04______ R, E Hver tafla inniheldur Sumatriptanum INN, súkkínat, 70 mg eða 140 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 50 mg eða 100 mg. STUNGULYF sc; N 02 CX04 R, E 1 ml inniheldur Sumatriptanum INN, súkkínat, 16,8 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 12 mg, Natrii chloridum 7 mg, Aqua ad iniectabilia ad 1 ml. | Eiginleikar:5úmatriptan virkjar sérhæft serótónínviðtaka af undirflokki 5-HTio í heilaæðum. Lyfið veldur þannig samdrætti í heilaæðum, einkum greinum a. carotis. Víkkun þessara æða er talin orsök verkjanna við mígreni. Verkun lyfsins hefst um 10-15 mínútum eftir gjöf undir húð, en 30 mínútum eftir inntöku. Aðgengi eftir gjöf undir húð er nánast 100%, en að meðaltali 14% eftir inntöku . Blóðþéttni nær hámarki innan 25 mínútna eftir gjöf undir húð, en oftast innan 45 mínútna eftir inntöku. Dreifingarrúmmál er 2,7 l/kg. Binding við plasmaprótein er 20-30%. Lyfið umbrotnar að miklu leyti (80%) í óvirk umbrotsefni í lifur og skilst út í nýrum. I Ábendingar: Erfið mígreniköst, þar sem ekki hefur náðst viðunandi árangur með öðrum lyfjum. Cluster (Hortons) höfuðverkur. Lyfið á einungis að nota, þegar greiningin mígreni eða Cluster-höfuðverkur er vel staðfest. Frábendingar:Xransæðasjúkdómur, alvarlegur háþrýstingur, blóðrásartruflanir í útlimum, nýrnabilun, lifrarbilun. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Ekki má nota samtímis lyf, sem innihalda ergótamín. Sumatran má ekki gefa fyrr en 24 klst. eftir gjöf ergótamíns og ergótamín má ekki gefa fyrr en 6 klst. eftir gjöf Sumatran. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er vitað hvort lyfið geti skaðað fóstur, en dýratilraunir benda ekki til þess. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í móðurmjólk. Aukaverkanir: Allt að 50% sjúklinganna fá einhverjar aukaverkanir. Ýmis þessara óþæginda hverfa eftir 30-60 mínútur og gætu sum þeirra verið hluti af mígrenikastinu. Algengar (>1%): Þreyta, sljóleiki. Tímabundin blóðþrýstingshækkun og húðroði. ógleði og uppköst. Máttleysi og spenna ívöðvum. Náladofi og hitatilfinning. Svimi. Þrýstingstilfinning með mismunandi staðsetningu, oftast fyrir brjósti. Sjaldgæfar (0.1%-1%): Hækkun lifrarenzýma í blóði. Milliverkanir: Ekki májiota^amtímis lyf sem innihalda ergótamín. Engar sérstakar milliverkanir hafa fundist við própranólól, díhýdróergótamín, pízótífen eða alkóhól. Varúð: Varabersjúklinga vjð stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins. Við notkun lyfsins geta komið fram tímabundin einkenni eins og brjóstverkur og þrýstingstilfinning, sem getur verið töluverð og leiðir stundum upp í háls. Þó þessi einkenni líkist hjartaöng, heyrir til undantekninga að þau séu af völdum samdráttar í kransæðum. Herpingur í kransæðum getur leitt til hjartsláttartruflana, blóðþurrðar og hjartavöðvadreps. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem líkjast hjartaöng, svo og þá sem hafa aukna áhættu á kransæðasjúkdómum, ber að rannsaka með tilliti til blóðþurrðar. Athugið: Stungulyfið.má.ekki gefa í æð vegna herpings í kransæðum og mikillar blóðþrýsingshækkunar, sem getur átt sér stað. Vegna takmarkaðrar klíniskrar reynslu er ekki mælt með notkun lyfsins handa sjúklingum eldri en 65 ára. Skammtastærðir handa fullorðnum: Lyfið á ekki að nota í fyrirbyggjandi augnamiði. Lyfið á að gefa við fyrstu merki um mígrenikast en getur verkað vel þó það sé gefið síðar. Sumatran er ekki ætlað til varnandi meðferðar. Töflur: Venjulegur upphafsskammtur er ein 100 mg tafla. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra töflu að minnst tveimur klst. liðnum og ekki er mælt með hærri sólarhringsskammti en 300 mg. í sumum tilvikum getur verið nægjanlegt að nota 50 mg töflur. Töflurnar á að gleypa heilar með vatni. Stungulyf: Venjulegur upphafsskammtur er 6 mg (ein sprauta) undir húð. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra sprautu (6 mg) innan 24 klst., en minnst ein klst. verður að líða á milli lyfjagjafa. Takmörkuð reynsla er af gjöf fleiri en fjögurra skammta (24 mg) á mánuði. Skammtastærðir handa börnum: Lyflð er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: Töflur 50 mg: 12 stk. (þynnupakkað) Verð kr. 11.355 Töflur 100 mg: 6 stk. (þynnupakkað) Verð kr.. 9.655 Stungulyf: Einnota dæla 0.5 mg (=6 mg virkt efni) x 2 + lyfjapenni (Glaxo Pen) Verð kr. 7.961 Afgreiðslutilhögun: R Greiðsluþátttaka: E Apríl 1998
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.