Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 67

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 67
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 773 einkum við um þá sjúklinga sem vegna sjúkdóms eru ekki til þess færir að taka ákvörðun. Sjá þarf til þess að aðrir sjúklingar fái tæki- færi til að tjá sig um slíkan flutning upplýsinga um þá. 4. Stjóm LI leggur áherslu á að vísindarannsóknir á íslandi séu áfram gerðar í góðri sátt almennings og vísindamanna. Það frumvarp sem lagt var fram á síðasta þingi og sem boðað hefur verið fyrir kom- andi haustþing snertir afar viðkvæm atriði er varðar heilsufar og einkahagi þjóðar- innar. Mikil umræða hefur orðið um málið ekki síst fyrir atbeina ráðuneytisins sem á eftirbreytniverðan hátt kynnti endurskoðað frumvarp á net- inu. Svo almenn og lýðræðis- leg umræða sem síðan hefur fylgt tekur óhjákvæmilega meiri tíma en þegar umfjöllun er í þröngum hópi. Það er hins vegar hætta á að tortryggni geti farið að gæta í garð vís- indasamfélagsins ef sett verða lög um miðlægan gagnagrunn sem ekki er góð sátt um. Það verður því að gefast tóm til frekari skoðunar í haust. Stjórn LI tekur gjarnan þátt í áframhaldandi umræðu enda látið sig málið varða. Eðlilegt er að sú umræða fari fyrst fram meðal lækna og annarra vísindamanna því með því móti getur upplýsing til al- mennings orðið hnitmiðaðri. Það er hins vegar nauðsynlegt að fram fari endurskoðun í kjölfar þeirra athugasemda sem fram hafa komið. Samantekt 1. Stjórn LI telur að ekki hafi komið fram nægileg rök til uppsetningar miðlægs gagnagrunns á heilbrigðis- sviði einkum þar sem ekki hefur verið sýnt fram á notagildi hans í vísinda- skyni fram yfir dreifða gagnagrunna og vegna þeirrar áhættu sem augljós- lega verður að taka. 2. Ahrif miðlægs gagnagrunns á trúnaðarsamband sjúk- lings og læknis eru óásætt- anleg. 3. Lög um miðlægan gagna- grunn geta ekki náð tilgangi sínum nema um þau ríki víðtæk sátt, en því fer fjarri. Provachol Töflur; C 10 A A 03. Hvert tafla inniheldur Pravastatinum INN, natríumsalt, 20 mg eða 40 mg. Ábendingar: Veru/eg hækkun kólesteróls í blóði: Til að lækka heildar- og LDL-kólesteról hjó sjúklingum með kólesterólhækkun. Kransæðasjúkdómar: Sem viðbót við sérstakt mataræði hjó sjúklingum með kólesterólhækkun og æðakölkunarsjúkdóma, til að hægja d stigvaxandi æðakölkun og minnka tíðni hjartadreps og dauða.Til að draga úr hættu ó endurteknu hjartadrepi, þörf fyrir kransæðaaðgerðir og til að draga úr hættu ó heilablóðfalli og skammvinnu blóðþurrðarkasti (TIA) hjó sjúklingum sem óður hafa fengið hjartadrep, en eru með eðlilegt magn kólesteróls í blóði. Til að koma í veg fyrir kransæðasjúkdóma: Sem viðbót við sérstakt mataræði hjó sjúklingum með of mikið magn kólesteróls f blóði ón einkenna um kransæðasjúkdóm. Skammtar og lyfjagjöf: Áður en Pravachol meðferð hefst, þarf að útiloka kólesterólhækkun vegna Ifkamlegra sjúkdóma og sjúklingar eiga að vera ó kólesteróllitlu mataræði ó meðan meðferð stendur. Að auki, eru læknar hvattir til að kynna sér meðferðarleiðbeiningar sem gefnar hafa verið út hér ó landi. Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru 10-40 mg einu sinni ó dag, að kvöldi fyrir svefn. Hómarksverkun af gefnum skammti næst innan 4 vikna. Þess vegna skal mæla blóðfitu reglulega og ókveða skammta út fró niðurstöðum. Áldraðir og sjúklingar með skerta lifrar- eða nýmastarfsemi: Reynsla af notkun lyfsins bendir ekki til þess að breyta þurfi skömmtum fyrir þessa sjúklinga. Eins og við aðra lyfjameðferðir skal byrja ó lógum skömmtum. Börn: Vegna ófullnægjandi klfnfskra gagna er ekki mælt með notkun hjó einstaklingum yngri en 18 óra. Blönduð meðferð: Áhrif Pravachol ó heildar og LDL-kólesteról aukast þegar það er gefið með gallsýrubindandi resíni. Þegar gallsýrubindandi resín er gefið (t.d. kólestýramfn, kólestípól) skal gefa Pravachol annaðhvort 1 klst. eða meira fyrir eða a.m.k. 4 klst. eftir resín gjöfina. Aðgengi pravastatíns breytist ekki ef nikótínsýra, próbukól eða gemfibróiíl er gefið samtímis (sjó varnaðarorð, beinagrindarvöðvar). Sjúklingar sem taka ónæmishindrandi lyf eins og cícklosporín (sjó varnaðarorð, beinagrindarvöðvar) samtímis pravastatíni, skulu hefja meðferðina með 10 mg af pravastatíni ó dag. Skammtinn skal síðan hækka varlega smóm saman. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Virkir lifrarsjúkdómar eða óskýrð langtíma hækkun á prófunum á lifrarstarfsemi. Varnaðarorð og varúðarreglur: Pravachol á ekki að nota ef kólesterólhækkun er vegna hækkunar á HDL-C eða hjá sjúklingum með arfhreina ættgenga kólesterólhækkun (homozygotic familial hypercholesterolaemia). Lifrarstarfsemi: Gera skal prófanir á lifrarstarfsemi. Sérstakar varúðar skal gæta hjá sjúklingum þar sem transamínasaþéttni hækkar. Hætta skal meðferð ef viðvarandi verður þreföld hækkun á alanín aminótransferasa (ALT) og aspartat aminótransferasa (AST) miðað við venjulega þéttni. í klfnískri rannsókn fengu 0,5% sjúklinga á pravastatín meðferð viðvarandi hækkun (meira en þreföld eðlileg efri mörk) á transamínasa í sermi. Þessi hækkun var ekki tengd klínfskum einkennum og einkennum lifrarsjúkdóma og lækkuðu venjulega í fyrri gildi, þegar meðferð var hætt. Gæta skal varúðar þegar pravastatín er gefið sjúklingum með sögu um lifrarsjúkdóma eða mikla áfengisneyslu. Beinagrindarvöðvar: Eins og hjá öðrum HMG-CoA redúktasa blokkum hefur einstaka sinnum komið fram hækkun ó kreatínfosfókínasaþéttni (CK). Ef um verulega hækkun CK f sermi er að ræða (meira en tíföld eðlileg mörk), eða ef grunur leikur á vöðvakvilla, er ráðlegt að hætta pravastatín meðferð. Örfá tilvik rákvöðvasundrunar (rhabdomyolysis) sem valdið hefur skertri nýrnastarfsemi vegna mikils vöðvarauða í þvagi (myoglobinuria), hafa komið fram. Aukin tíðni vöðvaþrota (myositis) og vöðvakvilla (myopathy) hefur sést hjá sjúklingum sem taka HMG-CoA redkúktasa blokka, sérstaklega hjá þeim sem hafa fengið ciklosporín (sjá milliverkanir), fibrínsýruafleiður eða nikótínsýru samtfmis. Samsett meðferð pravastatíns og fíbrfnsýru getur verið gagnleg hjá vissum sjúklingum sem þurfa enn frekari lækkun blóðfitu. En þar sem ekki er hægt að útiloka vöðvakvilla, skal forðast samsetta meðferð pravastatfns og fíbrfnsýruafleiða. Mllliverkanlr við lyf eða annað: Engin klínísk áhrif hafa komið fram í rannsóknum á milliverkunum. Kólestýramín/kólestípól: Engin veruleg lækkun varð á aðgengi eða verkun þegar pravastatín var gefið 1 klst. fyrir eða 4 klst. eftir kólestýramín gjöf eða 1 klst. fyrir kólestipól gjöf og venjulega máltíð. Samtfmis gjöf leiddi hinsvegar til um það bil 40-50% lækkunar á aðgengi pravastatíns. Ciklosporín: I nokkrum rannsóknum hefur ciklosporfn í plasma verið mælt hjá sjúklingum sem fengu pravastatfn og ciklosporín samtfmis. Niðurstöður þessara mælinga benda ekki til hækkunnar ciklosporíns þéttni sem hefur klínísk áhrif. í einni rannsókn, hækkaði plasmaþéttni pravastatfns hjá sjúklingum sem gengist höfðu undir hjartaígræðslu og voru á ciklosporíni. Meðganga og brjóstagjöf: f dýrarannsóknum hefur ekki komið fram vansköpun á fóstri. Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi lyfsins á meðgöngu. Konur á barneignaraldri eiga að nota örugga getnaðarvörn á Pravachol meðferð, þar sem kólesteról og önnur efni kólesterólmyndunar eru nauðsynleg fyrir þroska fóstursins. Ekki má taka HMG-CoA redúktasa blokka á meðgöngu. Lftið magn pravastatfns skilst út f brióstamjólk. Brjóstagjöf ætti að hætta á meðan pravastatín meðferð stendur. Akstur og stjómun vinnuvéla: Pravachol hefur engin áhrif á einbeitingu við bifreiðaakstur eða stjórnun vélknúinna tækja. Aukaverkanir: Pravachol þolist venjulega vel. Aukaverkanir eru venjulega vægar og ganga til baka. Pravastatín var ekki tengt drermyndun hjá sjúklingum sem voru f klfnfskri rannsókn í allt að 1 ár eða lengur og ekki í langtíma dýrarannsóknum. AIgengar (>1%): Húð: Útbrot. Sjaldgæfar (0,1-1%): Miðtaugakerfi: Höfuðverkur, þreyta. Meltingarfæri: Ógleði, uppköst, niðurgangur. Stoðvefir: Vöðvaverkir, brjóstverkir. Mjög sjaldgæfar (<0,1 %): Lifur: Aukið magn lifrarensíma f blóði. Stoðvefir: Rákvöðvasundrun (rhabdomyolysis). Ofskömmtun: Einungis 2 tilvik ofskömmtunar hafa verið skróð, bæði voru einkennalaus og engin óeðlileg hækkun á blóðprófum kom fram. Ef of stór skammtur er tekinn inn, skal meðhöndla einkenni. Pakkningar og verð í ágúst 1998: Töflur 20 mg: 28 stk. (þynnupakkað)- kr. 3.905. Töflur 40 mg: 28 stk. (þynnupakkað)- kr. 6.120; 98 stk. (þynnupakkað)- kr. 19.474. Framleiðandi: Bristol-Myers Squibb. Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabær.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.