Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 81

Læknablaðið - 15.10.1998, Side 81
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 783 ar á mönnum ætti að skil- greina mjög ljóst í rann- sóknarreglum. Þær reglur skal senda til umfjöllunar í óháðri nefnd sem sérstak- lega er skipuð í þessu skyni og er nefndinni ætlað að veita umsögn og leiðbein- ingar. Nefndin skal vera óháð rannsóknaraðilanum og þeim sem kostar rann- sóknina. Þessi óháða nefnd skal starfa í samræmi við lög og reglur þess lands, þar sem rannsóknin fer fram.“ Samkvæmt lögum (nr. 74/1997) segir: „Mat vís- indasiðanefndar eða siða- nefndar skv. 29. gr. á rann- sókninni verður að hafa leitt í ljós að vísindaleg og sið- fræðileg sjónarmið mæli ekki gegn framkvæmd henn- ar.“ Samkvæmt reglugerð um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði á ráðherra að setja Vísindasiðanefnd starfsreglur sem skulu vera í samræmi við ráðleggingar Evrópuráðsins til aðildar- ríkjanna, Helsinkiyfirlýs- inguna og alþjóðlegar sið- fræðilegar ráðleggingar. • Samkvæmt ráðleggingum Alþjóðafélags lækna um vísindarannsóknir ber sið- fræðilegri matsnefnd að ákvarða hvort það sé sið- fræðilega viðunandi að hefja rannsókn án þess að aflað sé samþykkis er byggt sé á vitneskju og þá hvort nægjanleg sé áætlun könn- uðar um að vernda öryggi og virða einkalíf þátttak- enda og að halda uppi leynd um gögn málsins. • I 6. grein frumvarpsdrag- anna kemur fram að nefnd- in skuli skipuð aðeins 3 mönnum (lögfræðingi, heil- brigðisstarfsmanni og ein- staklingi með þekkingu á sviði upplýsingafræði) og skuli starfsemin kostuð af leyfisgjaldi sem rekstrar- leyfishafi greiðir árlega. Við teljum að með þessu sé gengið á alþjóðlegar reglur (samanber hér að ofan), því draga má í efa að nefndin sé „óháð rekstraraðilanum og þeim sem kostar rannsókn- ina.“ Auk þess fullnægir samsetning nefndarinnar ekki venjum um siðfræði- legar matsnefndir. Mark- mið laganna um miðlægan gagnagrunn er að skapa grundvöll fyrir öflugar vís- indarannsóknir „...í þeim tilgangi að auka þekkingu til þess að bæta heilsu og efla heilbrigðisþjónustu.“ Mikilvægt er að almenning- ur hafi trú og traust á vís- indamönnum og heilbrigð- isþjónustunni. Einn megin- tilgangur vísindasiðanefnda er að sjá til þess að þetta traust haldist. • Aðgangsmat af því tagi sem kveðið er á um í 9. grein er fremur á sviði landlæknis en heilbrigðisráðuneytis og því rétt að hann skipi for- mann nefndarinnar fremur en heilbrigðisráðherra. Auk þess hefur verið bent á að tvímælis orki að fulltrúi rekstrarleyfishafa sé í nefndinni þar sem slíkt gæti veitt rekstrarleyfishafa upp- lýsingar um rannsóknaáætl- anir annarra sem trúnaður ríkti um. Til gæslu við- skiptahagsmuna rekstrar- leyfishafa mætti fremur hafa við hann samráð. Enn- fremur þarf að skilgreina mun betur hvernig beri að greina milli viðskiptahags- muna og vísindalegra. • Aðgangur vísindamanna að gagnagrunninum þarf að vera byggður á rannsókna- áætlunum sem samþykktar hafa verið af Vísindasiða- nefnd (9. grein). Reyndar er hlutur Vísindasiðanefndar óljós að því er varðar um- fjöllun um rannsóknir sem gera skal í gagnagrunninum og þarf betri skilgreingar við (samanber hér að ofan). 7. Vinnslustaður Hvernig á að tryggja að úr- vinnsla úr gagnagrunni fari eingöngu fram hérlendis ef veita á erlendum fyrirtækjum, ríkisstjórnum o.fl. áskrift eða aðgang? Þetta atriði þarf að vera skýrara. 8. Aðgangur tryggingafyr- irtœkja, dómstóla, fjármála- fyrirtœkja og fleiri Ymsir hafa með réttu haft áhyggjur af aðgangi óviðkom- andi fyrirtækja að gagna- grunni af þessu tagi. Eins og að ofan er nefnt er hætta á misnotkun ekki útilokuð og þó svo fólk hafi ekki athuga- semdir við notkun nafnlausra upplýsinga um sig til rann- sókna og þróunar er ekki víst að samþykki nái í allra huga til aðgangs fyrirtækja sem beinan hag gælu haft af því að brjóta dulkóða. Því er íhugun- arefni að setja rekstrarleyfis- hafa skilyrði um aðgang að þessum upplýsingum. Að lokum er enn minnt á nauðsyn ítarlegrar þjóðfélags- umræðu um þetta mál, og að til hennar gefist nægilegur tími. Málið er of víðtækt og flókið til að viðunandi sé að ljúka því á fáeinum mánuðum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.