Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1998, Síða 82

Læknablaðið - 15.10.1998, Síða 82
784 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Umsögn landlæknisembættisins um endurskoðað frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði Hér er birt meginniðurstaða landlæknisembættisins um frum- varp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði ásamt almenn- um athugasemdum. Auk þess gerir landlæknir athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins en plássleysi hamlar því að Læknablaðið geti birt þær allar. Vísað er til þess að þegar frumvarpið var fyrst lagt fram á síðastliðnu vori birtust hér í blaðinu athugasemdir landlæknis við einstakar greinar þess. Meginniðurstaða Endurskoðað frumvarp til laga um gagnagrunna á heil- brigðissviði er mun skýrar orðað en það sem lagt var fyr- ir Alþingi vorið 1998. Eftir- farandi atriði horfa til bóta: • Sjúklingi er heimilt að hafna því að upplýsingar um hann fari í þennan gagnagrunn. • Lögin taka ekki til sjúkra- skrárkerfa einstakra heil- brigðis- og rannsóknastofn- ana og gagnasafna vegna vísindarannsókna á ein- stökum sjúkdómum. • Tölvulögin skulu gilda um þennan gagnagrunn. Markmið frumvarpsins er þó eftir sem áður óljóst þar sem ekki kemur fram með skýrum hætti hvaða upplýsingum eigi að safna, hvernig hægt sé að samhæfa óskilgreindar upplýsingar og með hvaða hætti þær eigi að auka þekkingu til þess að bæta heilsu og heilbrigðis- þjónustu. Landlæknir er enn þeirr- ar skoðunar að fylgt verði fyrri stefnu Heilbrigðis- og tryggingainálaráðuneytisins þess efnis að gögn varðveit- ist þar sem þau verða til og forðast verði að smíða einn miðlægan allsherjargagna- grunn með heilsufars-, ætt- fræði- og erfðaupplýsingum um íslenska þegna enda vandséð hvernig tryggja megi persónuvernd í slíkum gagnagrunni. Núgildandi lög, sbr. einkum lög nr. 121/ 1989 um skráningu og með- ferð persónuupplýsinga, II.- IV. kafla, lög um réttindi sjúklinga og reglur eru full- nægjandi fyrir gerð og vinnslu með slíka gagna- grunna á heilbrigðissviði. Telji iöggjafinn engu að síður að ástæða sé til að setja sérstök lög um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og að markaðsaðila verði veitt heimild til reksturs slíks gagna- grunns telur landlæknir brýnt að tekið verði tillit til eftirfar- andi sjónarmiða: • Nauðsynlegt er að skýra nánar í frumvarpinu með hvaða hætti sjúklingur geti hafnað þátttöku og hvernig farið er með upplýsingar um látna menn eða þá sem ekki geta tjáð vilja sinn. • Rétt er að það komi fram í lögunum með enn skýrari hætti en gert er í frum- varpinu að samhæfing upp- lýsinga í dreifðum gagna- grunnum til flutnings í mið- lægan gagnagrunn hindri ekki myndun sértækra gagnagrunna í vísinda- skyni. Aðgangur vísinda- manna að hinum miðlæga gagnagrunni er þó eftir sem áður takmörkunum háður samkvæmt frumvarpinu. • Óháður aðili veiti leyfi til reksturs gagnagrunnsins, hafi eftirlit með starfsem- inni og afturkalli leyfið ef ekki er farið að fyrirmælum starfsleyfis. Landlæknir er ráðunautur ráðherra og rík- isstjórnar um allt er varðar heilbrigðismál og einnig ber landlækni að hafa eftir- lit með heilbrigðisstarfs- mönnum, sbr. lög um heil- brigðisþjónustu, 1. ntgr. 3. gr. Landlæknir leggur því eindregið til að í stað þess að ráðherra skipi nefnd um gerð og starfrækslu gagnagrunns samkvæmt lagafrumvarpinu, sem er á skjön við gildandi lög, verði landlækni falið hlut- verk hennar og embætti landlæknis eflt með deild sérhæfðs starfsfólks til að sinna þessum störfum. Jafnframt er mikilvægt að þessi deild hafi eftirlit með upplýsingavæðingu heil- brigðisþjónustunnar al- mennt. • Enda þótt skýrt sé kveðið á um það í endurskoðuðu lagafrumvarpi að heilbrigð- isráðuneyti og landlæknir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.