Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 87
Langtíma verkjastílling!
Durogesic FORÐAPLÁSTUR; N 02 A B 03 X R E
Eiginleikar: Forðaplásturinn er ætlaður til samfelldrar meðferðar með fentanýli.
Fentanýl er sterkt morfínlyf sem fyrst og fremst binst p-viðtökum. Ábendingar:
iangvinnir verkir, af völdum illkynja sjúkdóma, sem eru næmir fyrir morfmlyfjum.
Erábendingar: Slævð öndun. Varúð: Aukinn heilaþrýstingur, minnkuð
nieðvitund, meðvitundarleysi og órói í kjölfar neyslu áfengis og svefnlyfja.
Hægur hjartsláttur. Astmi. Slímsöfnun í lungum. Samtímis notkun annarra
slævandi lyfja. Fylgjast þarf náið með sjúklingum með skerta lifrar- eða
nýrnastarfsemi svo og öldruðum sjúklingum og sjúklingum í kröm.
Meðganga og brjóstagjöf: Morfínlyf geta hamið öndun hjá nýburum. Ef um
langvarandi notkun lyfsins á meðgöngu hefur verið að ræða má gera ráð fyrir
fráhvarfseinkennum hjá baminu eftir fæðinguna. Fentanýl berst í brjóstamjólk
• nægilegu magni til þess að hafa áhrif á bamið, jafnvel þó að gefnir séu venjulegir
skammtar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir em ógleði/uppköst (28%)
°g syfja (23%). Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun öndunar og er skammtaháð,
en þessi aukaverkun er sjaldgæf hjá sjúklingum, sem myndað hafa þol gegn
roorfínlyfjum. Algengar (>1%): Álmennar: Kláði. Hjarta- og œðakerfi: Lágur
blóðþrýstingur, hægur hjartsláttur. Miðtaugakerfi: Syfja, rugl, ofskynjanir,
sæluvíma. Hömlun öndunar. Mcltingarfœri: Ogleði, uppicöst, hægðatrcgða. Húð:
Erting í plástursstæðinu (roði, kláði, útbrot). Þvagfœri: Þvagteppa. Húðertingin
hvcrfur venjulega innan sólarhrings eftir að plástur hefur verið fjarlægður.
Sjúklingar, sem fá morfínlyf, geta myndað þol og einnig orðið háðir lyfinu.
Milliverkun: Fentanýl samverkar með barbítúrsýmlyfjum. Skammtastæröir
nnnda fullorðnum: Skömmtun er einstaklingsbundin og byggir á almennu
astandi sjúklings svo og á fyrri sögu um notkun morfínlyfja. HaFi sjúklingur
ekki fengið sterk morfínlyf áður ber að stilla inn stuttverkandi morfínlyf fyrst
°8 síðan breyta þeim skammti yfir í Durogesic. Skammtur lyfsins er svo
endurskoðaður með jöfnu millibili þar til æskilegum áhrifum er náð. Þegar breytt
er úr morfínlyfjum til inntöku eða stungulyfjum yFir í Durogesic skal nota
eftirfarandi til leiðbeiningar:
1. Leggið saman notkunina á sterkum verkjalyfjum síðasta sólarhring.
2. Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf cn morfín, breytið þá yfir í jafngildis-
skammt (sjá sérlyfjaskrá) af morfíni til inntöku.
3. Notið töflu (sjá sérlyfjaskrá) til þess að ákveða upphafsskammt Durogesic
og miðið við morfínskammt til inntöku á sólarhring. (90 mg af morfíni til inntöku
á dag er sambærilegt við Durogesic 25 míkróg/klst. Þannig skal nota Durogesic
50 míkróg/klst. ef morfínskammtur til inntöku er 135-225 mg/sólarhring). Skipta
skal um plástur eftir 72 klst. HæFilegur skammtur fyrir hvern einstakling er
fundinn með því að auka skammtinn þar til verkjastillingu er náð. Fáist ekki
nægjanleg verkun af fyrsta plástri, má auka skammtinn eftir 3 daga. Síðan er
unnt að auka skammtinn á þriggja daga fresti. ÞurFi sjúklingurinn meira en 100
míkróg/klst. má nota fleiri en einn plástur í senn. Durogesic skal líma á efri hluta
líkamans eða á upphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða húð. Ef hár eru
á staðnum ber að klippa þait af en ekki raka en hárlaus svæði eru æskilcgust.
Ef þvo þarf svæðið áður en plásturínn er settur á, skal gera það með hreinu vatni.
Ekki má nota sápu, olíu, áburð eða önnur efni sem geta ert húðina eða breytt
eiginleikum hennar. Þegar skipt er um plástur skal hann settur á annan stað.
Fyrri stað má ekki nota fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Skammtastæröir handa
börnum: Lítil reynsla er af notkun lyfsins til meðferðar hjá bömum.Athugið:
Durogesic á ekki að nota gegn bráðaverkjum eða verkjum eftir skurðaðgerðir.
Pakkningar og verð (1.4.1998): Foröaplástur 25 míkróg/klst.: 10 cm 2x5 stk.
- 5967 kr. Forðaplástur 50 míkróg/klst: 20 cm 2x5 stk. -10428 kr. Foröaplástur
75 míkróg/klst.: 30 cm 2x5 stk. - 14060 kr. Foröaplástur 100 míkróg/klst.:
40 cm 2x5 stk. - 17052 kr.
JANSSEN-CILAG
thorarensen lyf
Vamagarðar 18 - 104 Reykjavik • Slmi 568 6044