Læknablaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
425
Hannes Petersen, Stefán B. Matthíasson, Ari Jóhannesson,
Margrét Oddsdóttir, Ludvig Á. Guðmundsson
Könnun á símenntunarmálum lækna
á vegum Fræðslustofnunar lækna
C 6%
22%
65%
A - Höfuðborgarsvæði/Akur-
eyri; B - Sérfræðingar;
C - Sjúkrahús
A- Landsbyggð; B - Ung-
læknar; C - Heilsu-gæslu-
og heimilislæknastöðvar
A- Svara ekki; B -Annað;
C - Einkareknar sérfræði-
þjónustustöðvar
C - Annaö
Mynd 1. Skipting þátttakenda eftir A) búsetu, B) starfssviði og C)
aðalvinnustað.
Inngangur
Á aðalfundi Læknafélags
Islands í Borgarnesi, haustið
1997 voru lagðar fram tillögur
um reglugerð fyrir Fræðslu-
stofnun lækna. í tillögum
þessum var kveðið á um hlut-
verk og starfssvið Fræðslu-
stofnunar lækna sem talið var
það helst að styrkja viðhalds-
menntun (sí- eða endurmennt-
un) og fræðslustarf lækna.
Lagt var til að stofnfé Fræðslu-
stofnunar lækna yrðu eignir
Námssjóðs lækna. Einnig átti
Fræðslustofnunin að sjá um
rekstur sameiginlegra húsa-
kynna Læknafélags íslands og
Læknafélags Reykjavíkur að
Hlíðasmára 8 í Kópavogi og
áttu tekjur af útleigu salarins
að renna til Fræðslustofnunar
lækna. Vilji fundarmanna var
að á starfssviði Fræðslustofn-
unar yrði megin áhersla lögð á
stjómunarnám lækna, en á
fundinum kom fram að stjóm-
unarnámi í menntun lækna er
mjög ábótavant allt frá námi í
læknadeild, í sérnámi erlendis
og almennt í allri viðhalds-
menntun lækna.
Efniviður og aðferðir
Eitt af fyrstu verkum nýrrar
stjórnar Fræðslustofnunar var
að kanna hvernig framhalds-
menntunarmálum lækna væri
háttað og hvar áhugasvið þeirra
lægi með tilliti til viðhalds-
menntunar. Til að komast að
því var framkvæmd skoðana-
könnun haustið 1998 meðal
starfandi lækna á íslandi.
Spurningarlistar voru sendir
til allra starfandi lækna á ís-
landi, yngri en 70 ára og
reyndist fjöldi þeirra vera 881.
Stjóm Fræðslustofnunar lækna
samdi spumingamar og hafði
sér til ráðgjafar Ólaf Þ. Harð-
arson dósent við félagsvís-
indadeild HÍ. Úrvinnsla gagna
var gerð í forritinu Delfi.
Niðurstöður
Af þeim 881 sem sendur var
spurningarlisti sendu 288 inn
svör og reyndist svarhlutfallið
því vera 33%. Meirihluti
þeirra er þátt tóku í könnun-
inni voru búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu og voru flestir
sérfræðingar á sjúkrahúsum
(mynd 1). Af þeim er svöruðu
útskrifuðust flestir frá lækna-
deild á árabilinu 1973 til
1988, en fjöldi þeirra er út-
skrifaðist á ámnum 1990 til
1993 var mjög lítill, sem gefur
til kynna að þeir séu flestir í
sérnámi erlendis (mynd 2).
Könnunin var kaflaskipt og
fjallaði fyrsti kaflinn um „þátt-
töku þína í símenntun “. Við
spumingunni um tíma (klukku-
stundir) sem varið var til sjálfs-