Læknablaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 92
472
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Bónustorrek
Sú sérstaka staða hefur
komið upp hjá okkur læknum
í Garðabæ síðastliðna mánuði
að kaupið hefur lækkað.
Vegna fjölgunar í læknaliði
stöðvarinnar erum við nú
minna undirmönnuð en áður
og samkvæmt úrskurði Kjara-
nefndar minnkar þá hinn svo-
kallaði bónus í samræmi við
það. Betri mönnun leiðir af
sér betri þjónustu en minna
kaup = kjaranefndarparadox-
inn. Sneyptir sitjum við því
Garðbæingar með sömu
menntun og að vinna sömu
vinnu og kollegarnir allt um
kring en fyrir minna kaup.
Fyrsta bónuskrísan eftir úr-
skurð Kjaranefndar er stað-
reynd.
Nú eru góð ráð dýr og leiðir
til úrlausnar fáar
Leið 1: Leggjast í bréfa-
skriftir til ýmissa ráðandi
kontórista á rammlæstum
göngum ráðuneytanna, van-
máttugrar stjórnar heilsu-
gæslustöðvarinnar, kjararáða
og auðvitað Kjaranefndar
sjálfrar. Við höfum að vísu af
því reynslu hér á Stór-Hafnar-
fjarðarsvæðinu að bréf af
þessum toga eru ótrúlega létt-
væg komin oní skúffu á kont-
ór. Og á örskömmum tíma
verðum við orðnir víðfrægir
kverúlantar sem ekki sættum
okkur við kaupið sem okkur
var dæmt. Nei, ekki freistandi
leið.
Leið 2: Hætta. Segja upp og
leita sér að betur launuðu
starfi þar sem er almennilega
undirmannað. Vandinn er sá
að þar vilja læknarnir alls ekki
bæta við stöðum því þá lækk-
ar kaupið. Já eða leggja bara
til hliðar áralanga þjálfun og
reynslu sem generalisti og
snúa sér að öðru. Ekki óhugs-
andi leið.
Leið 3: Fara að dæmi forn-
manna sem sumir að minnsta
kosti ortu sig út úr krísum og
héldu síðan uppteknum hætti
við að launa næsta fornmanni
lambið gráa. Að svo komnu
virðist þessi leið illskást jafn-
vel þó tekið sé tillit til þess að
hagmælgi okkar eru skorður
settar. Ekki trúi ég þó öðru en
kollegar okkar um landið
hjálpi okkur að kveða okkur
úr krísunni. Og hefst hér
Bónustorrek:
/ Garðabœnum á lœkkuðum
launum
lœkna og gera að sárum og
kaunum.
A útsölu núna
fœrð líkn fyrir frúna
við fjölmörgum búksorgum
hennar og raunum.
Gleðilegt sumar
Jón Steinar Jónsson
læknir
Heilsugæslunni í Garðabæ
Myndband um brjóstagjöf
Heilsugæslan í Reykjavík
hefur látið þýða myndbandið
Brjóstið er best: um móður-
mjólk, brjóstagjöf og tengsl-
in við ungbarnið.
I myndbandinu er leitast við
að svara eftirfarandi spurn-
ingum:
• Hvað gerir móðurmjólkina
að fullkominni fæðu fyrir
ungbörn?
• Hvemig kemst þú best af
stað með brjóstagjöfina og
hvernig er hægt að leysa
algeng vandamál sem geta
komið upp?
• Hvaða kosti hefur brjósta-
gjöf fyrir móðurina og
barnið?
• Hvernig á að gefa brjóst,
hversu oft og hversu lengi?
• Hvernig geta foreldrar auð-
veldað nýfædda barninu
fyrstu kynnin af heiminum?
Bókasafn Heilsugæslunnar
í Reykjavík, bamadeild Heilsu-
vemdarstöðvar Reykjavíkur og
Samstarfshópur um brjósta-
gjöf höfðu umsjón með útgáfu
myndbandsins.
Myndbandið er 36 mínútur
á lengd. Það kostar 4.000
krónur. Bókasafn Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík annast
dreifingu.
Elín Eiríksdóttir veitir allar
nánari upplýsingar í síma 552
2400, netfang Elin.Eiriksdottir
@hr.is
Úr fréttatilkynningu