Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1999, Page 92

Læknablaðið - 15.05.1999, Page 92
472 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Bónustorrek Sú sérstaka staða hefur komið upp hjá okkur læknum í Garðabæ síðastliðna mánuði að kaupið hefur lækkað. Vegna fjölgunar í læknaliði stöðvarinnar erum við nú minna undirmönnuð en áður og samkvæmt úrskurði Kjara- nefndar minnkar þá hinn svo- kallaði bónus í samræmi við það. Betri mönnun leiðir af sér betri þjónustu en minna kaup = kjaranefndarparadox- inn. Sneyptir sitjum við því Garðbæingar með sömu menntun og að vinna sömu vinnu og kollegarnir allt um kring en fyrir minna kaup. Fyrsta bónuskrísan eftir úr- skurð Kjaranefndar er stað- reynd. Nú eru góð ráð dýr og leiðir til úrlausnar fáar Leið 1: Leggjast í bréfa- skriftir til ýmissa ráðandi kontórista á rammlæstum göngum ráðuneytanna, van- máttugrar stjórnar heilsu- gæslustöðvarinnar, kjararáða og auðvitað Kjaranefndar sjálfrar. Við höfum að vísu af því reynslu hér á Stór-Hafnar- fjarðarsvæðinu að bréf af þessum toga eru ótrúlega létt- væg komin oní skúffu á kont- ór. Og á örskömmum tíma verðum við orðnir víðfrægir kverúlantar sem ekki sættum okkur við kaupið sem okkur var dæmt. Nei, ekki freistandi leið. Leið 2: Hætta. Segja upp og leita sér að betur launuðu starfi þar sem er almennilega undirmannað. Vandinn er sá að þar vilja læknarnir alls ekki bæta við stöðum því þá lækk- ar kaupið. Já eða leggja bara til hliðar áralanga þjálfun og reynslu sem generalisti og snúa sér að öðru. Ekki óhugs- andi leið. Leið 3: Fara að dæmi forn- manna sem sumir að minnsta kosti ortu sig út úr krísum og héldu síðan uppteknum hætti við að launa næsta fornmanni lambið gráa. Að svo komnu virðist þessi leið illskást jafn- vel þó tekið sé tillit til þess að hagmælgi okkar eru skorður settar. Ekki trúi ég þó öðru en kollegar okkar um landið hjálpi okkur að kveða okkur úr krísunni. Og hefst hér Bónustorrek: / Garðabœnum á lœkkuðum launum lœkna og gera að sárum og kaunum. A útsölu núna fœrð líkn fyrir frúna við fjölmörgum búksorgum hennar og raunum. Gleðilegt sumar Jón Steinar Jónsson læknir Heilsugæslunni í Garðabæ Myndband um brjóstagjöf Heilsugæslan í Reykjavík hefur látið þýða myndbandið Brjóstið er best: um móður- mjólk, brjóstagjöf og tengsl- in við ungbarnið. I myndbandinu er leitast við að svara eftirfarandi spurn- ingum: • Hvað gerir móðurmjólkina að fullkominni fæðu fyrir ungbörn? • Hvemig kemst þú best af stað með brjóstagjöfina og hvernig er hægt að leysa algeng vandamál sem geta komið upp? • Hvaða kosti hefur brjósta- gjöf fyrir móðurina og barnið? • Hvernig á að gefa brjóst, hversu oft og hversu lengi? • Hvernig geta foreldrar auð- veldað nýfædda barninu fyrstu kynnin af heiminum? Bókasafn Heilsugæslunnar í Reykjavík, bamadeild Heilsu- vemdarstöðvar Reykjavíkur og Samstarfshópur um brjósta- gjöf höfðu umsjón með útgáfu myndbandsins. Myndbandið er 36 mínútur á lengd. Það kostar 4.000 krónur. Bókasafn Heilsugæsl- unnar í Reykjavík annast dreifingu. Elín Eiríksdóttir veitir allar nánari upplýsingar í síma 552 2400, netfang Elin.Eiriksdottir @hr.is Úr fréttatilkynningu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.