Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 95

Læknablaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 95
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 475 hindra þetta og ekki talað til hans.“ Eitt sinn sofnaði þessi mað- ur úti á víðavangi í smala- mennsku að næturlagi og heimildarmaður okkar segir svo frá: „Svo þegar ég kom, talaði ég til hans, en í stað þess að ansa stóð hann upp og hljóp og stefndi á klapparhól í um 60 til 70 metra fjarlægð. Ég tók sprettinn á eftir, en þá brá mér, því nú dró verulega í sundur. Svona hljóp hann og stoppaði ekki fyrr en á hóln- um. Þegar ég talaði til hans ansaði hann og nuddaði augun og var sjáanlega að vakna og sá þá að hann var ekki á rétta staðnum og vissi ekki hvernig á því stóð. Það er þessi mikli fráleikur sem þarna kom fram sem er mér svo óskiljanlegur og minnisstæður. Við höfðum margan sprettinn hlaupið við fé og annað og ég þóttist vita nákvæmlega hvað hann gæti, en þarna kom annað fram og svo fótfimin, þarna var karga- þýfi, grjót og mosi, en það var ekki að sjá annað en hann færi um sléttan völl og þetta gerði hann án þess að vita af því.“ Það voru margar sögur um að menn syngju upp úr svefni. Af slíkri sönglist hefur vafalít- ið verið misjöfn ánægja eins og marka má af þessari frásögn: „Vinnumaður heima söng upp úr svefninum. Hann svaf í piltaherbergi uppi á lofti. Við í stofu fyrir neðan. Við kviðum alltaf fyrir þegar marraði í rúmi Jóns og hann hóf upp annar- lega rödd sína, sem hljómaði draugslega í kyrrðinni.“ (Kona úr S-Þingeyjarsýslu.) Laglausir menn áttu það til að syngja upp úr svefni af leikni og lagvissu og það jafn- vel texta sem þeir kunnu alls ekki í vöku og menn sem ann- ars voru algerlega lausir við hagmælsku ortu vísur. Er það í samræmi við það sem fyrr var sagt um svefngengla sem fram- kvæmdu það í svefni sem þeir ekki gátu í vöku. Hér á eftir eru tvær sögur af þessu tagi: „Heima hjá foreldrum mín- um var gömul kona, sem var undirlögð sjúkdómi sem um síðir dró hana til dauða. Þegar hún söng í svefni, og það all- oft hátt og sálma sem hún kunni ekki í vöku, þá boðaði það alltaf nokkurn bata og varð hún glöð við ef við sögð- um henni að nú hefði hún sungið sálma í nótt.“ (Karlmaður úr N-Þingeyjarsýslu.) „Mig minnir að móðir mín hefði þessa sögu um gest eftir föðurmóður sinni, sem var þrautvönduð kona og vel greind. Gesturinn kvað um nótt upp úr svefni án þess að vakna við, þessa vísu, sem hann kannaðist ekki við að kunna í vöku. Á það hlustaði kona sem nam hana þegar (því þá voru gerfiskáld og form- leysingjar ekki búin að eyði- leggja athygligáfu þjóðarinnar og næmi). Vísan er svona: Heyrið, herrar dýrir, heyrið, herum eyrum, lieyrið, valdsmenn vorir: Vandið dómsorð í landi. Sekt oss bítur synda, syndir marga hlinda. Blindur leiðir hlinda, búið fall - ýöknum allir. Ekki kannaðist gesturinn heldur við að vera hagorður í vöku svo raunverulegan höf- und hennar er ekkert hægt að tilgreina.“ (Karlmaður úr N-Múlasýslu.) Dæmi voru um að menn sem sváfu í sama herbergi héldu uppi samræðum í svefni: „Tveir feðgar, nafngreindir, sváfu sinn í hvoru rúmi. Einu sinni segir gamli maðurinn upp úr svefni, hægt og skýrt: „Þá var nú brosað, piltar mín- ir, þegar rauða kýrin fauk.“ Sonurinn sofandi í rúminu á móti svarar fljótmæltur: „Þá hefur hann nú bara verið hvass, pabbi minn.““ Og dæmi voru um að menn bæði neyttu matar og tóbaks í svefni: Maður nokkur lagði áherslu á að verða vakinn í kvöldkaffi ef hann sofnaði áður. Vinnu- konunni sem færði honum kaffið gekk illa að vekja hann. Loks reis hann snögglega upp og sagði heldur stygglega: „Það er naumast þér er útbært þetta kaffi“, tók við bollanum, drakk úr honum í skyndi og lagðist síðan sofandi á kodd- ann. Morguninn eftir hafði hann ekki hugmynd um þetta, enda var hann steinsofandi þegar hann drakk úr bollanum. Annar sem var mikill neftób- aksmaður hafði pontuna ævin- lega undir koddanum því að hann var vanur að fá sér í nefið á milli dúra. Einn morguninn var hún horfin en eftir langa og örvæntingarfulla leit fannst hún í hlandkoppnum undir rúminu. „Ja héma,“ varð þá manninum að orði, „mig dreymdi að ég var að gefa einhverjum mann- fjanda í nefið með mér og rétti honum baukinn." Af því að hérna fremst var minnst á þann möguleika að fólk passaði sjálft sínar sjúkra- skrár (sem vissulega hefði ákveðin vandamál í för með sér) þá gæti einn kosturinn verið sá í þær bættust sögur úr daglega lífinu á borð við þær sem hér eru að ofan. Enda yrði að gera ráð fyrir slfku í formi þeirra ef vel ætti að vera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.