Læknablaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
443
Um þetta er enginn ágrein-
ingur. Má benda á að í lögum
um miðlægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði er skýrt tekið
fram að óháð vísindasiða-
nefnd muni fjalla um rann-
sóknir í gagnagrunninum auk
þess sem tölvunefnd fylgist
náið með öllum rannsóknum í
gagnagrunninum og að vís-
indasiðanefnd Heilbrigðis-
ráðuneytisins komi að málinu.
I fjórðu spurningu spyr
stjórn LI hvort siðlegt sé að
veita einkafyrirtæki einkarétt
til að breyta almannaverð-
mætum í einkaauð. WMA er
gefin ástæða til að ætla að ver-
ið sé að spyrja um einkaleyfi
til að kortleggja erfðamengi
og einkaleyfi í framhaldi af
því. Vitnað er í Yfirlýsingu
um erfðamengi mannsins
(Declaration on the Hurnan
Genome Project), þar sem
segir að ekki skuli veita einka-
leyfi fyrir erfðamengi manns-
ins eða hlutum þess.
Um þetta er enginn ágrein-
ingur.
Oþarfi ætti að vera að taka
fram eftir alla þá umfjöllun
sem gagnagrunnshugmyndin
hefur fengið, að stjóm LÍ
blandar hér saman rannsókn-
um á erfðamengi mannsins
annars vegar og vinnslu
heilsufarsupplýsinga í gagna-
grunni hins vegar.
Stjórn LI hefur aftur leitt
WMA á villigötur með leið-
andi spumingu og bjöguðum
bakgrunnsupplýsingum þann-
ig að svar samtakanna fjallar
ekki um miðlægan gagna-
grunn á heilbrigðissviði, held-
ur um erfðarannsóknir.
I fimmtu spurningu er spurt
um rétt sjúklinga til að draga
gögn úr gagnagrunni vilji þeir
hætta þátttöku. Tilvitnun í
Yfirlýsingu um erfðamengi
mannsins bendir til að WMA
telji að um erfðarannsóknir sé
að ræða, sem byggi á upplýstu
samþykki, eins og alltaf er í
slíkum rannsóknum. Tilvitn-
unin í Helsinkiyfirlýsinguna
bendir einnig til að WMA
gangi út frá rannsóknum þar
sem krafist er upplýsts sam-
þykkis, en ekki ætlaðs sam-
þykkis (sjá svar við sjöttu
spurningu).
Um þetta er enginn ágrein-
ingur.
Svar WMA fjallar greini-
lega um annað fyrirbæri en
miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði. Er hér enn og
aftur um að kenna óvönduð-
um málatilbúnaði stjórnar LÍ.
I sjöttu spurningu er spurt
hvenær veita megi aðgang að
sjúkraskrám til rannsókna.
WMA vitnar í „Statement on
the Use of Computer in Medi-
cine“ (Doc. 20.8). í þeirri
tilvitnun er undirstrikað mjög
rækilega, að það feli ekki í sér
brot á trúnaði læknis við sjúk-
ling að veita aðgang að eða
flytja trúnaðarheilsufarsupp-
lýsingar (confidential health
care information), án upplýsts
samþykkis, til að framkvæma
vísindarannsóknir, til endur-
skoðunar og eftirlits á stjórn-
un heilbrigðisstofnana, til
fjárhagsendurskoðunar, mats
á áætlunum og fleira, svo
fremi að trúnaðar sé gætt.
Lög um miðlægan gagna-
grunn á heilbrigðissviði eru
fyllilega í samræmi við þetta,
auk þess sem þau fylgja viður-
kenndum alþjóðlegum reglum
og samþykktum um sama
efni. Astæða er til að undir-
strika, að í ofangreindri til-
vitnun er verið að fjalla um
persónutengdar trúnaðarupp-
lýsingar. Allar upplýsingar
sem verða unnar í gagna-
grunninn hafa farið í gegnum
þrefalda dulkóðun persónu-
auðkenna auk þess sem með
aðgangshindrunum verður
tryggt að aldrei verður hægt
að fá upplýsingar um einstak-
linga í gagnagrunninum. Lög-
in um miðlægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði ganga því
miklu lengra í persónuvernd
en ofangreind samþykkt.
I sjöundu og síðustu spum-
ingu er spurt um hver sé
gæslumaður sjúkraskráa. Svar
WMA er mjög loðið. Þar segir
einungis, að margt af því sem
á undan hafi verið reifað
styðji hugmyndina um að
læknir skuli fjalla af gætni
um (have discretion over)
notkun sjúkraskráa sjúklinga
sinna.
Aðrir gagnagrunnar
Ekki verður hjá því komist í
lokin að bera saman miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði
og nokkra erlenda miðlæga
gagnagrunna, í Danmörku,
Svíþjóð, Bandaríkjunum og
svo á Nýja-Sjálandi. Þann síð-
astnefnda notaði Ross Ander-
son, ráðgjafi LI í tölvuörygg-
ismálum, sem dæmi öðrum til
fyrirmyndar. I engum þessara
gagnagrunna er gert ráð fyrir
að samþykki sjúklinga þurfi
til flutnings heilsufarsupplýs-
inga í miðlægan gagnagrunn,
né að læknar stofnana ráði þar
nokkru um (á íslandi er þó
skilyrði um samráð við
lækna); hvergi er þörf upp-
lýsts samþykkis fyrir tölfræði-
legum rannsóknum og hvergi
er hægt að eyða upplýsingum,
sem fluttar hafa verið í gagna-
grunnana.
Miðlægur gagnagrunnur á
heilbrigðissviði sker sig úr
hópnurn með heimild lil sjúk-
linga að neita flutningi heilsu-
farsupplýsinga í gagnagrunn-
inn. Þetta er reyndar mögulegt
á Nýja-Sjálandi, en aðeins