Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Síða 61
Stefnir]
Skoðanakúgun.
155
skoðun, og hann sé að fara sig-
urför um heiminn.
Rússar voru kallaðir kúguð
þjóð áður. Nú eru þeir kúguð
þjóð innst og yzt, fátækir hið
ytra, fáfróíiir hið innra. Þeir fá
ekki að anda að sér lofti nema
það sé pestnæmt af þjóðmálalyg-
um. Heil þjóð er alin á tilbúinni
andlegri fæðu. Þeir eru teknir úr
guðs góða heimi og látnir lifa í
hrákasmíð nokkurra bolsjevikka.
Átakanlegt dæmi upp á vald
þessarar starfsemi er saga Trot-
skys.
Trotsky var annað mesta átrún-
aðargoð þjóðarinnar. Lenin og
Trotsky, það voru hinir tveir
miklu himinlíkamir, sem lýstu
rússnesku þjóðinni í myrkrum
byltingarinnar. Á hverjum opin-
berum stað voru myndir af þess-
um 2 þjóðhetjum, og myndir af
þeim voru bornar í öllum skrúð-
göngum. Þeir voru sá skýstólpi
og eldstólpi, sem þjóðin fylgdi
á þessari ógurlegu eyðimerk-
urgöngu. — Og þó var Trotsky
að sumu leyti enn vinsælli, hers-
höfðinginn, sem skóp rauða her-
inn og stökkti „óvinum bylting-
arinnar" á flótta, ræðusnillingur-
inn, gáfumaðurinn, sem mönnum
fannst neistar sindra frá, hvar
sem hann kom.
En svo náði Stalín taumhaldinu.
Lenín var dáinn. En Trotsky lifði,
og hann var hættulegasti meðbið-
illinn. Og nú var þessu ógurlega
stórskotaliði fréttastarfseminnar
beint að honum.
Hann var vinsæll og sterkur,
en hann varð fljótt að víkja. —
Ekkert vígi stenzt stórskotahríð
þegar ekkert skotvopn er til á
móti. Hann er hraktur og rek-
inn stað úr stað og loks hröklaðist
hann úr landi.
Nú var um að gera að láta
hann hverfa. Og þetta sama tæki
var alveg örugt til þess starfa
líka. Nafn hans var aldrei nefnt
á prenti. Skólabækur voru allar
skrifaðar að nýju til þess að losna
við frásagnir um afreksverk hans,
og aðeins minnst lítillega á, að
hann hefði gerst óvinur byltingar-
innar og drottinssvikari. Myndir
af honum hurfu allar. Allir kafiar
um hann voru sniðnir úr kvik-
myndum þeim, sem boða fólkinu
trú bolsjevikka.
Árangurinn kvað vera sá, að
Trotsky má nú heita gleymdur
í Rússlandi. Eftir lifir aðeins veik
minning um uppvöðslusegg og