Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 14

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 14
12 Lífsskoðanir og stjórnmál. [Stefnir möguleikunum til að eignast heil- brigða og eðlilega lífsreynslu. — Þetta er náttúrlega engin almenn regla, en það gefur mér afsökun fyrir þá njenn, sem aldrei hafa reynt fátækt, er eg heyri þá tala um mannlegt líf eins og flón. Nei, eg vil játa, að eg vil vernda einstaklingsfrelsið, af því mér er það heilagt mál. Eg hefi þá skoð- un, að mannveran á jörð sé ekki eins ómerkilegt fyrirbrigði eins og ýmsir vilja halda fram. Eg er þeirrar skoðunar, að við eigum ó- dauðlega sál, sem sé alls ekki sama, hvernig farið er með. — Og eg er þeirrar skoðunar og tel þá skoðun full-vel rökstudda af því, sem menn vita um þróun lífsins og sögu mannkynsins, að það er búið að kosta ekki svo lítið um- stang að gera mennina að því, sem þeir eru. — Eg vil benda á þá líffræðilegu staðreynd, að því hærra í þróunarstiganum, sem ein líftegund er sett, því fjölbreytt- ari og sérkennilegri eru einstak- lingarnir innan sömu tegundar, og mest er fjölbreytnin meðal mannanna. Eg vil benda á það, að innræti manna er ennþá fjöl- breyttara en nokkru sinni andlits- fall þeirra, en innræti manna nefni eg hneigðir þeirra og þrár, vonir þeirra og metnaðarmál, smekk þeirra og dómgreind gagn- vart öllum hlutum. Eg vil benda á þá alkunnu staðreynd, að hver maður er ánægðastur, þegar hann er að leysa þau verkefni, sem hann hefir valið sér sjálfur, án þess að vera knúinn til þess af kringumstæðunum þ. e. a. s. öðr- um mönnum. Eg vil benda á þá staðreynd, að menn, sem aldrei fá að njóta frelsis, hætta að vera menn en þokast niður á sama stig sljóleikans og vanaþrældómsins, sem húsdýr standa á. Eg vil benda á þá staðreynd, að hverri mannveru er meðfæddur metnað- ur, sem nýtur sín aðeins í sem frjálsastri samkeppni og að af samkeppninni leiðir sú stæling persónuleikans, sem allar fram- farir byggjast á bæði hjá einstak- lingum og þjóðum. Allar þessar staðreyndir, og fleiri mætti telja, hafa komið mér á þá skoðun, að það þjóð- skipulag sé skaðlegt, sem heftir frelsi einstaklingsins og dregur úr metnaði hans og framtaki. Hins vegar vil eg ekki láta telja mig til þeirra, sem líta á núver- andi þjóðskipulag sem gallalaust og fullkomið fyrirkomulag. Nei, auðvitað er það gallað. Það er að- eins þrep, sem menn hafa komizt upp á og verða að standa á, þang-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.