Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 18

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 18
16 Lífsskoðanir og stjórnmál. [Stefnir að fyrirgefning hafi því aðeins siðferðilegt gildi, að hún sé einka- mál. Það á enginn með að fyrir- gefa í umboði annara. Fyrirgefn- ing í stjórnmálum getur því tæp- lega komið til greina. En með víð- sýni og mildi skyldi þó um alla hluti dæmt, og getur Sjálfstæðis- flokkurinn haft góða samvizku í því efni. Einhverjum kann nú að þykja, að mál mitt sé komið all-mjög á víð og dreif. En eg hefi þá afsök- un, að mér er það fullljóst, að það er nýjung nokkur innan þessa flokks, að mál hans séu rædd á þeim grundvelli, sem eg hefi nú gert. En tilgangur minn er að leitast við að sýna, að eins og nú er komið málum þessarar þjóðar, verður ekki lengur hjá því sneitt að veita lífsskoðunum fólksins fulla athygli og sýna þeim fulla rækt. Gagnvart þeim öflum, sem Sjálfstæðisflokkurinn á nú að berjast, hefur hann sig ekki til vegs og varanlegra valda, ef það er sannanlegt, að hann berjist ná- kvæmlega eins og hinir flokkarnir, — aðeins vegna fjárhagslegra markmiða. Sigur þessa flokks og varanleg völd geta á því einu byggzt, að það sýni sig, að þetta sé flokkur þeirra manna, sem meta lífið siðferðilegu mati, að þetta sé flokkur þeirra manna, sem hafa vakandi meðvitund um, að lífinu fylgir alvarleg ábyrgð, að þetta sé flokkur þeirra manna, sem berjast fyrir frelsi og rétti einstaklingsins, af því sérhver mannvera er eilíf stærð í alheim- inum, að þetta sé flokkur, sem byggir stefnu sína á heilbrigðum lífsskoðunum og fylgir því mál- um sínum fram af fullri einurð og alvöru. Það er eflaust gott fyi'ir þenn- an flokk að geta sýnt það og sann- að, að ráðstafanir hans og tillög- ur í fjármálum — atvinnumálum og verzlunarmálum — séu far- sælar og viturlegar, og að flokk- urinn hafi á að skipa beztu fjár- málamönnum þjóðarinnar. Það eru eflaust veigamikil meðmæli í augum margra, því víða gildir sú regla, að atkvæðið og pyngjan séu eitt. En myndu ekki líka vera margir, sem helzt munu vilja fylgja þeim flokki, sem hefði sýnt það, að hann setti sér háleitari markmið en hinir flokkarnir? Myndu ekki vera til margir menníþessu landi, sem vilja helzt fylgja þeim stjórnmálaflokki að málum, sem metur manninn meira en pyngjuna?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.