Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 31
Stefuir]
Stjórnmálaþættir.
29
Að sá var tilgangurinn, að fela
hið sanna um fjárbruðl stjórnar-
innar fram yfir kosningarnar,
kemur skýrt í ljós af því, hvernig
þáverandi f jármálaráðherra gaf
villandi skýrslu um fjárhags-
afkomu ársins 1930 á þessu sama
þingi (1931). Hann gaf þar upp,
að dálítill tekjuafgangur væri á
því ári, en felldi undan að skýra
frá útgjöldum, sem námu milljón-
um. Mátti þó vita um útgjöld
þessi, bæði vegna þess að mörgum
voru kunnar þær framkvæmdir,
sem hér voru dregnar undan, og
svo af því, að þessi útgjöld komu
fram í skýrslu ráðherrans um
það, til hvers stóra lánið enska fór
(gula lánið svonefnda, af því að
því var helzt hægt að líkja við
ókjaralán, sem Japanar tóku).
Þetta nam 4VÉ> milljón eða 6 mill-
jónum, eftir því hvort talið var
með hlutabréfafé Útvegsbank-
ans.
Nú er það alveg tvímælalaust,
að öll þessi fjáreyðsla hlaut að
koma fram. Það sem fellt var
undan reikningi ársins 1929
hlaut að koma fram í niðurstöðu
ársins 1930, og hitt hlaut einnig
að koma í ljós, þegar reikningur
þess árs kæmi. Tilgangurinn með
öllu þessu falsi gat því enginn
annar verið en sá, að villa mönn-
um sýn fram yfir kosningamar.
Að vísu sáu Sjálfstæðismenn
gegnum þennan vef, eins og t. d.
fyrirspurn Jóns Þorlákssonar í
efri deild 20. marz ber með sér,
og margt, sem um þetta var skrif-
að í blöð og talað í útvarp, að ó-
gleymdri 38. athugasemdinni í
landsreikningi 1929, sem er und-
irskrifað í des. 1930. En gegn öllu
þessu beittu Framsóknarmenn
sínu gamla og venjulega vopni, að
berja það blákalt fram að hér
væri ekkert annað á ferð en
venjuleg ,,Morgunblaðslygi“, ,,í-
haldsrógur" og þessháttar. Sjálf-
stæðismenn væru með getsakir og
spádóma til þess eins, að spilla
fyrir ,bændavinunum‘. Það er
fyrst landsreikningurinn sjálfur,
saminn og undirritaður af þeirra
eigin stjórn, sem varð og hlaut að
opna augu manna fyrir sannleik-
anum.
En þá var Framsókn búin að
fleyta sér inn í meirihlutann á
þingi með hylmingunum á fjár-
hagnum ásamt öðru. .
Fjársukkið hjá Framsókn.
Fyrst í stað reyndu Framsókn-
armenn að verja þessa dæma-
lausu fjármálastjórn með því að
skrumskæla tölur Landsreikning-
anna. En þetta vígi reyndist ekki