Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Síða 38
36
Stj órnmá laþættir.
[Stefnir
um var breytt á annan hátt.
Hann hafði gefið liðlega 100 þús.
kr., en var nú áætlaður 300.000
kr. Var þó hald margra, að hann
yrði hærri, en ekki liggja enn
fyrir fullnægjandi gögn til að
dæma um það. Þá var breytt lög-
unum um tóbakseinltasöluna þann
ig, að nú mátti miða álagninguna
við tóbakið að viðbeettum tolli í
stað þess að áður var hún miðuð
við vöruna án tolls. Þetta var vit-
anlega ekkert annað en nýr skatt-
ur. Þá fékk stjórnin heimild til
25% viðauka til tekju- og eigna
skattinn, sem auðvitað var notuð.
Á þinginu var hreinasta skatta-
æði. Jafnaðarmenn vildu fá verð-
toll á tóbak upp á 200.000 krón-
ur, en það féll. Framsóknarþing-
menn háðu kapphlaup í skatt-
aukatillögum. Stóríbúðaskattiu*,
Háleiguskjattur og Verðhækkun-
arskattur o. f 1., allt eru þetta
dæmi um vanhugsaðar skattatil-
lögur frá þessu þingi. Engar á-
ætlanir gátu fylgt neinu af þessu
og við gagnrýni kom í ljós, að til-
lögumenn vissu ákaflega lítið
hvað þeir voru að fara, annað en
það, að nú væri búið að eyða og
þyrfti að halda áfram að eyða og
að einhversstaðar kynni að vera
til eyrir, sem reita mætti. Hinni
hugsuninni skýaut ekki upp, að
draga þyrfti úr gjöldunum. Á
þessum krepputímum hækkaði
þingið 1932 skattabyrðina um
eitthvað nálægt 1.000.000 króna.
Sama kapphlaupið endurtók
sig á þingipu 1933, nema í talsvert
stærri stíl. Stjórnin gekkst meðal
annars fyrir þessu. Bifreiðaskatt-
urinn var framlengdur. Þá var
breytt tolllögunum þannig, að
skattur á öli og kaffibæti var
stórhækkaður.
Ö1 hækkaði úr 30 a. upp í
80 a + 25% ==1.00 kr.
áætlað.................. 59.532
Kaffibætir úr 60 a. upp í
160 a. + 25% =2.00 kr. 87.463
Samtals 146.995
Þá var réynt að hækk'a
skemmtanaskattinn um 100%, en
var samþykkt að hækka hann um
80%.
Verðtollurinn, sem Framsókn-
armenn höfðu fyrst skammað
Sjálfstæðismenn fyrir, meðan
þeir voru að borga ríkisskuldirn-
ar, en hækkuðu svo strax og þeir
komust að völdum til þess að hafa
nógan eyðslueyri, var nú enn
hækkaður. Búinn var til nýr
flokkur 50% ; ýmsar vörur færð-
ar í 30% flokkinn, sem áður
höfðu verið lægra tollaðar og loks