Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.05.1934, Page 42
40
Stjómmálaþættir.
[Stefnir
frammi fyrir alþjóð manna, og
undir yfirskyni þjóðrækni.
Landsbankalögin.
1 tíð Ihaldsstjórnarmnar var
unnið að því, að fá löggjöf um
Landsbankann, er tryggði honum
seðlaútgáfuna og gerði honum
mögulegt að fara með hana og
verða það afl í peningamálunum,
sem þarf til þess að hafa tök á
þeim. Skoðun sem fór fram á hag
bankans til undirbúnings þessu
starfi, sýndi, að hagur hans var
mjög erfiður, sennilega engu
betri en Islandsbanka. En þessu
var ekki tekið með fjandskap og
drápshug, heldur tekið tillit til
þess er ráðstafanir voru gerðar til
eflingar bankanum, enda hefir
honum tekist að ríða stormana af
síðan. Var löggjöfin um bankann
sett á þinginu 1927. En ekki var
Framsóknarstjórnin fyr komin að
völdum en rokið var í að breyta
bankalögunum. Var nú tekin full
ríkisábyrgð á bankanum í stað
þess að áður var ábyrgðin bundin
við innskotsfé ríkisins. Við þessu
var þó varað af sjálfstæðismönn-
um út frá þeirri forsendu, að
þetta þýddi sama sem að taka
smámsaman ábyrgð á öllum
bönkunum, því að hinir bankarn-
ir gætu ekki haldið innskotsfé
sínu við hlið banka með ríkis-
ábyrgð. Þetta máttu hinir ekki
heyra og kölluðu vitleysu eina.
En hvað hefir nú komið fram, fá-
um árum síðar? Ríkisábyrgð er
nú komin á hina bankana, Og er
þetta gott dæmi um viðureign
flokkanna og framsýni í svo afar-
mörgum málum. En aðaltilgang-
urinn með þessari lagasetning
mun þó hafa verið sá, að koma að
breytingum á stjórn bankans
þannig, að einum sjálfstæðis-
manni var bægt úr bankaráðinu
og Framsóknarmaður settur í
staðinn.
íslandsbankamálið.
Ef svipuð aðferð hefði verið1
höfð við hinn bankann er senni-
legt, að hann hefði staðið af sér
boðaföllin, sem skullu á bönkun-
um þessi árin. En það fór dálítið
á annan veg. Jafnvel þó að það
kosti nokkurt pláss, verður þó að
rekja þær aðfarir nokkuð greini-
lega, því að betri mynd af því,
hvernig stjórn má ekki fara að
ráði sínu í vandasömum þjóðmál-
um og hættulegum, er naumast
til.
Hatrið gegn íslandsbanka, eða.
réttara sagt þeirra atvinnurek-
enda, sem áttu sitt undir starf-
semi þess banka, logaði sífelt á